Rúllubaggaplast sótt

Rúllubaggaplast sótt

Rúllubaggaplast verður sótt í dreifbýli Blönduósbæjar miðvikudaginn 10. apríl 2019. Þeir sem vilja láta taka plast þurfa að hafa samband við bæjarskrifstofu, í síma 455-4700 eða með tölvupósti á katrin@blonduos.is fyrir þriðjudaginn, 9 apríl til að láta vita af því hvort sækja þurfi plast. ATH. Einnig eru teknir áburðarpokar en losa þarf plastpokann innan úr áburðarpokanum þannig að þeir séu aðskildir.
Skoða nánar Rúllubaggaplast sótt
Auglýsing á deiliskipulagi við Ströngukvísl

Auglýsing á deiliskipulagi við Ströngukvísl

Í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar Húnavatnshrepps, 30. janúar 2019, er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi að svæðinu við Ströngukvíslarskála skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skoða nánar Auglýsing á deiliskipulagi við Ströngukvísl
Tapað - fundið (hús og bíllykill)

Tapað - fundið (hús og bíllykill)

Bíllykill og húslykill funndust við flokkun á endurvinnsluefni hjá Sorphreinsun VH ehf.
Skoða nánar Tapað - fundið (hús og bíllykill)
Auglýsing á deiliskipulagi á nýjum íbúðarlóðum á Blönduósi.

Auglýsing á deiliskipulagi á nýjum íbúðarlóðum á Blönduósi.

Í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar Blönduósbæjar, 12. febrúar 2019, er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi að nýjum íbúðarlóðum við Fjallabraut, Lækjarbraut og Holtabraut fyrir íbúðabyggð skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan samanstendur af skipulagsuppdrætti og greinargerð.
Skoða nánar Auglýsing á deiliskipulagi á nýjum íbúðarlóðum á Blönduósi.
Könnun á fjarskiptasambandi í dreifbýli á Norðurlandi vestra

Könnun á fjarskiptasambandi í dreifbýli á Norðurlandi vestra

Á haustþingi SSNV í október 2019 var skipuð samgöngu- og innviðanefnd. Hlutverk nefndarinnar er að vinna að upplýsingaöflum vegna samgönguáætlunar SSNV með starfsmönnum samtakanna. Ítarleg upplýsingaöflun og greining á þáttum er varða samgöngu- og innviðamál er grundvöllur þess að setja megi saman raunhæfar áætlanir um uppbyggingu samgöngumannvirkja og annarra innviða í landshlutanum
Skoða nánar Könnun á fjarskiptasambandi í dreifbýli á Norðurlandi vestra
Býr í þér viðburðarstjórnandi?

Býr í þér viðburðarstjórnandi?

Blönduósbær leitar að áhugasömum aðila, með þekkingu og reynslu af viðburðarstjórnun, til að stjórna viðburðum í sveitarfélaginu. Um er að ræða tímabundna ráðningu með möguleika á framlengingu til lengri tíma.
Skoða nánar Býr í þér viðburðarstjórnandi?
Kynning á dreifnámi í Austur-Húnavatnssýslu

Kynning á dreifnámi í Austur-Húnavatnssýslu

Fimmtudaginn 14. febrúar næstkomandi, klukkan 17:00, munu Lee Ann Maginnis, umsjónarmaður dreifnáms í A-Hún, Margrét Helga Hallsdóttir, námsráðgjafi FNV, Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri og fulltrúar frá nemendafélagi FNV kynna námsframboð, félagslíf og aðstöðu dreifnáms í A- Hún og FNV. Allir nemendur í 9. og 10. bekk í grunnskólum A-Hún eru sérstaklega boðaðir til fundarins ásamt foreldrum eða forráðamönnum.
Skoða nánar Kynning á dreifnámi í Austur-Húnavatnssýslu
Ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna A-Hún.

Ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna A-Hún.

Stjórn Brunavarna A-Hún hefur ráðið Ingvar Sigurðsson sem slökkviliðsstjóra Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu og mun hann hefja störf, í fullu starfi, eigi síðar en 1. maí 2019. Ingvar er löggiltur slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og hefur starfað í tæp 10 ár sem hlutastarfandi slökkviliðsmaður hjá Brunavörnum Árnessýslu 2009-2019 en starfar núna sem einn af fjórum vakthafandi varðstjórum slökkviliðsins, og sinnir þar bakvöktum og þjálfun. Einnig hefur hann starfað við sjúkraflutninga hjá HSu á árinu 2015.
Skoða nánar Ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna A-Hún.
Starf í þjónustumiðstöð Blönduósbæjar

Starf í þjónustumiðstöð Blönduósbæjar

Blönduósbær leitar að aðila í framtíðarstarf í þjónustumiðstöð. Við leitum að metnaðarfullum einstakling með áherslu á vinnu við veitur og þjónustu við stofnanir sveitarfélagsins. Aðilinn verður að vera stundvís, sýna sjálfstæð vinnubrögð og búa yfir góðum mannlegum samskiptum.
Skoða nánar Starf í þjónustumiðstöð Blönduósbæjar
Heimaþjónusta/ Pomoc Domowa

Heimaþjónusta/ Pomoc Domowa

Blönduósbær óskar eftir að ráða starfsfólk í framtíðarstarf við heimaþjónustu. Æskilegt er að viðkomandi hafi bílpróf og sé orðinn 25 ára. Vinnutími er samkomulag á milli þjónustuþega og starfsmanns. Um er að ræða hlutastarf sem er tilvalið með annarri vinnu.
Skoða nánar Heimaþjónusta/ Pomoc Domowa
Getum við bætt efni þessarar síðu?