Boð um þátttöku í könnun - Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi
03. apríl 2019
Könnunin Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi er hluti rannsóknarverkefnis á vegum Byggðastofnunar í samstarfi við rannsóknafólk við innlenda og erlenda háskóla. Könnuninni er ætlað að safna margvíslegum upplýsingum sem aukið geta skilning á málefnum minni byggðarlaga og stutt við stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum.
Blönduósbær auglýsir eftir flokksstjórum og sumarstarfsmönnum til starfa í Þjónustumiðstöð Blönduósbæjar og vinnuskóla frá 15. maí eða eftir nánara samkomulagi.
Rúllubaggaplast verður sótt í dreifbýli Blönduósbæjar miðvikudaginn 10. apríl 2019. Þeir sem vilja láta taka plast þurfa að hafa samband við bæjarskrifstofu, í síma 455-4700 eða með tölvupósti á katrin@blonduos.is fyrir þriðjudaginn, 9 apríl til að láta vita af því hvort sækja þurfi plast.
ATH. Einnig eru teknir áburðarpokar en losa þarf plastpokann innan úr áburðarpokanum þannig að þeir séu aðskildir.
Í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar Húnavatnshrepps, 30. janúar 2019, er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi að svæðinu við Ströngukvíslarskála skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Auglýsing á deiliskipulagi á nýjum íbúðarlóðum á Blönduósi.
21. febrúar 2019
Í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar Blönduósbæjar, 12. febrúar 2019, er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi að nýjum íbúðarlóðum við Fjallabraut, Lækjarbraut og Holtabraut fyrir íbúðabyggð skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan samanstendur af skipulagsuppdrætti og greinargerð.
Könnun á fjarskiptasambandi í dreifbýli á Norðurlandi vestra
21. febrúar 2019
Á haustþingi SSNV í október 2019 var skipuð samgöngu- og innviðanefnd. Hlutverk nefndarinnar er að vinna að upplýsingaöflum vegna samgönguáætlunar SSNV með starfsmönnum samtakanna. Ítarleg upplýsingaöflun og greining á þáttum er varða samgöngu- og innviðamál er grundvöllur þess að setja megi saman raunhæfar áætlanir um uppbyggingu samgöngumannvirkja og annarra innviða í landshlutanum
Blönduósbær leitar að áhugasömum aðila, með þekkingu og reynslu af viðburðarstjórnun, til að stjórna viðburðum í sveitarfélaginu. Um er að ræða tímabundna ráðningu með möguleika á framlengingu til lengri tíma.