Markmið verkefnisins var að búa til sameiginlega forvarnaráætlun fyrir Norðurland vestra til fjögurra ára sem stuðla myndi að farsæld og forvörnum allra barna á svæðinu.

Forvarnir eru til alls fyrst. Áætlunin gildir fyrir öll börn á leik/grunn og framhaldsskóla aldri á svæðinu og er öllum aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra.

Sótt var um styrk til Sprotasjóðs Rannís veturinn 2024 til að verkefnið gæti orðið að veruleika. Fengust 4 milljónir í verkefnið og er þetta afrakstur þeirrar vinnu. Verkefnisstjóri við gerð áætlunarinnar var Berglind Hlín Baldursdóttir.

Að verkefninu komu fræðslustjórar og forvarnarfulltrúar á öllu norðurlandi vestra. Allir stjórnendur skólanna starfsmenn, kennarar, foreldrar, SSNV, lögreglan og heilsugæslan.

Nemendur fengu svo tækifæri til að taka þátt í gegnum forvarnarteymi svæðanna og nemendaráð skólanna skjálfa sem og kannanir, þátttöku leiki og instagramsíðu verkefnisins.

Það er von okkar að allir geti nýtt sér áætlunina. Aðlagað hana að sínum stofnunum og nýtt það sem í henni er. Loka markmið verkefnisins var að gera sameiginlega
forvarnaráætlun fyrir allt svæðið sem allir hefðu aðgang að og teljum við að það hafi tekist.

Þann 1. desember 2025 skrifaði Sveitarfélagið Skagaströnd undir samning við Mennta- og barnamálaráðuneytið vegna 26 milljóna króna styrks fyrir FORNOR, sem leitt er af Skagaströnd í samstarfi við sveitarfélög á Norðurlandi vestra. Með styrknum gefst tækifæri til að innleiða sameiginlega forvarnaráætlun á svæðinu og festa hana betur í sessi.

 

Forvarnaráætlun PDF

Forvarnaráætlun Word

Getum við bætt efni þessarar síðu?