Unnið verður við malbikun á Hnjúkabyggð og Aðalgötu í dag. Gera má ráð fyrir einhverjum töfum á umferð í dag vegna framkvæmdanna. Bent er á hjáleið um Miðholtið.
Undirbúningur að því að yfirleggja malbik á hluta Mýrarbrautar er hafinn. Malbika á frá Mýrarbraut 23 að Mýrarbraut 29. Umferð um götuna verður takmörkuð á meðan og mikilvægt að virða lokanir á meðan á framkvæmdum stendur. Einnig er verið að malbika Holtabrautina ofan við Sunnubraut og Smárabraut og er umferð lokuð á meðan.
Blönduósbær óskar eftir tilboðum í snjómokstur og hálkueyðingu á Blönduósi 2018-2021. Um er að ræða snjómokstur á götum, plönum, gangstéttum og hálkuvörnum. Útboðsgögn fást afhent á bæjarskrifstofu Blönduósbæjar frá og með 14. september og er skilafrestur til 1. október 2018 kl. 11:00 á bæjarskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduós.
Þrengja þarf að umferð við Hnjúkabyggð 32-34 vegna vinnu við tengingar á fráveitu. Vinsamlegast sýnið framkvæmdaraðlium tillitssemi á með á verkinu stendur.
Tæknideild Blönduósbæjar