Sumarfjör sumarið 2023

Dagskrá Sumarfjörs yngri hópur

Dagskrá Sumarfjörs eldri hópur

Skráningarblað

 Skemmtileg og fjölbreytt sumardagskrá þar sem börnum í Húnabyggð stendur til boða að sækja námskeið  í sumar. Um er að ræða Sumarfjör þar sem lögð er áhersla á leiki, skemmtun og fræðslu. Boðið er upp á íþróttir, leiki, listir, fræðslu, sundpartý og ýmislegt fleira.

Í sumar verða tveir hópar í Sumarfjöri.

Kl. 9-12 alla virka daga fyrir 6-9 ára börn (fædd 2014-2016).

Börn fædd árið 2017 stendur til boða að taka þátt seinustu tvær vikurnar.

Kl. 13-16 alla virka daga fyrir 10-12 ára börn (fædd 2011-2013).

Hér í  facebook hóp Sumarfjörs, Sumarfjör í Húnabyggð verða settar inn allar upplýsingar t.d. ef einhverjar breytingar verða á dagskrá o.fl.

Gjaldskrá fyrir Sumarfjör  sumarið 2023 er eftirfarandi:

1 vika   4.000 kr

2 vikur  6.000 kr

3 vikur   8.000 kr

4 vikur  10.000 kr

5 vikur  12.000 kr

6 vikur  14.000 kr

Systkinaafsláttur er 50% fyrir systkini sem eru skráð sömu vikuna í Sumarfjör.

Krafa mun birtast í heimabanka greiðanda.

Skráning fer fram hér, fyrir fimmtudaginn 1.júní 2023

 Umsjónarmaður Sumarfjörs er:  Hulda Birna Vignisdóttir s: 618-0688

Netfang: hulda@hunaskoli.is

Aðrir starfsmenn Sumarfjörs er starfsfólk úr Vinnuskólanum.

 Mæting alla daga á skólalóð Húnaskóla, við endum alla daga þar líka, nema annað komi fram. Gert er ráð fyrir að allir mæti með hollt og gott nesti. (Gos, orkudrykkir og sælgæti er ekki leyfilegt). Gott að hafa með sér vatnsbrúsa líka.

 Mikilvægt er að börnin séu klædd eftir veðri. Minnum á sólarvörn.

 Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!

 

 

 

 

 

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?