
Heimilisfang: Hólabraut 17, 540 Blönduós
Sími Barnabær: 455-4740
Heimasíða Leikskóla Húnabyggðar
Netfang: barnabaer@hunabyggd.is
Leikskólastjóri: Sigríður B. Aadnegard
Aðstoðarleikskólastjóri: Kristín Birgisdóttir
Leikskóli Húnabyggðar varð til við sameiningu sveitarfélaganna Blönduóssbæjar og Húnavatnshrepps. Við leikskólann eru tvær starfsstöðvar, við Hólabraut og Stóri Fjallabær, sem staðsettar eru í Húnaskóla. Börnin eru á aldrinum 12 mánaða – 5 ára. Leikskólinn starfar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008, reglugerð um starfsumhverfi leikskóla nr. 655/2009 og Aðalnámskrá leikskóla frá 2023.
Boðið er upp á sveigjanlegan vistunartíma og er leikskólinn opinn frá kl 7:45 – 16:15
Á starfsstöð við Hólabraut eru 4 deildir: Þúfubær, Hólabær, Fellabær og Fjallabær. Stóri Fjallabær er staðsettur í húsnæði Húnaskóla. Á Stóra-Fjallabæ dvelja elstu nemendur leikskóla Húnabyggðar og koma þeir nemendur sem búa í dreifbýli með skólabílum.
Fyrir sameiningu sveitarfélaganna var leikskólinn Barnabær starfræktur á Blönduósi og leikskólinn Vallaból á Húnavöllum. Leikskólinn á Blönduósi var stofnaður árið 1972. Hann hóf starfsemi sína í grunnskóla Blönduóss og var þá einungis starfandi yfir sumartímann. Árið 1975 breyttist hann í heilsárs leikskóla og árið 1977 fluttist leikskólinn að Árbraut 35. Leikskólinn fluttist í núverandi húsnæði árið 1981. Árið 2007, í janúar, var hafist handa við viðbyggingu sem tekin var í notkun í nóvember sama ár. Einnig var eldri bygging skólans endurnýjuð. Leikskólinn á Húnavöllum var opnaður í ágúst árið 2008 í nýju glæsilegu húsnæði sem staðsett er á Húnavöllum við Reykjabraut. Leikskólinn var formlega vígður í desember það sama ár og hlaut nafnið Vallaból.
Gildi leikskólans er: VIRÐING GLEÐI VINÁTTA
Virðing
- í leikskólanum leggjum við áherslu á að börn læri að bera virðingu og umhyggju fyrir öðru fólki. Leitast er við að koma til móts við þarfir allra og borin er virðing fyrir margbreytileika mannlífsins og öðrum menningarheimum.
Gleði
- Í leikskólanum leggjum við áherslu á að efla gleði í leik og námi. Okkur líður vel þegar við erum glöð og við lítum jákvæðum augum á það sem við erum að gera.
Vinátta
- í leikskólanum leggjum við áherslu á góð samskipti, samhjálp og samvinnu með því eflum við vináttutengsl.
