Umsókn um skólavist í 1. bekk Húnaskóla 2026-2027
Eftirfarandi bréf fór til foreldra barna í leikskóla Húnabyggðar, fædd 2020, 3. febrúar 2026:
Ágætu foreldrar verðandi 1. bekkjar í Húnaskóla.
Nú styttist í að barnið þitt hefji nám í 1. bekk í Húnaskóla. Undanfarnin ár hefur innritun þeirra sem eiga lögheimili í Húnabyggð verið sjálfvirk frá leikskóla yfir í grunnskóla en nú verður breyting á. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur komið upp Nemendagrunni og nú munu allar innritanir nemenda, sem og beiðni um skólaskipti fara þar í gegn. Hér er hlekkur á umsóknina: https://island.is/umsoknir/grunnskoli
Á heimasíðu Húnaskóla og Húnabyggðar (Þjónusta – Menntun og fræðsla - Skólaþjónusta) er kominn hlekkur á rafræna umsókn í gegnum Ísland.is og opnar umsóknarferlið 9. febrúar. Þið eruð beðin að fylla út allar þær upplýsingar sem beðið er um. Hér er hlekkur á leiðbeiningarmyndband: https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/nemendagrunnur-kennsla
Skólastjóri Húnaskóla mun afgreiða umsóknir eftir 15. mars og mun svarbréf berast í stafræna pósthólfið ykkar á Ísland.is
Varðandi umsókn á skóladagheimili og skráningu í mötuneyti, að þá verða skráningar þar í upphafi skólaárs og koma nánari upplýsingar um það frá Húnaskóla.
Ef einhverjar spurningar vakna eða þið lendið í vandamálum hafið samband við Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra Húnaskóla, thorhalla@hunaskoli.is eða Dagnýju Rósu Úlfarsdóttur fræðslustjóra, dagny@hunabyggd.is
Um Nemendagrunn
Nemendagrunnur er miðlægur gagnagrunnur sem geymir áreiðanlegar og samræmdar upplýsingar um alla nemendur á grunnskólaaldri á Íslandi. Markmiðið er að tryggja að réttar upplýsingar fylgi hverju barni í gegnum alla skólagöngu þess frá leikskóla til framhaldsskóla og áfram í nám og þjálfun.
Frá því í lok árs 2023 hefur Miðstöð menntunar og skólaþjónustu unnið að þróun á Nemendagrunni sem mun fela í sér grundvallarbreytingu á yfirsýn fyrir menntakerfið. Nemendagrunnurinn er nú tilbúinn. Nemendagrunnurinn er meginforsenda þess að Matsferill, sem við höfum kynnt fyrir skólasamfélaginu og foreldrum, nái fram að ganga. Þá spilar Nemendagrunnurinn lykilhlutverk varðandi það að styðja við áherslur stjórnvalda um stuðning við skólastarf, inngildandi menntun, samþættingu þjónustu, samspil milli þjónustukerfa og stafræna umbreytingu.
Með Nemendagrunni sameinast ríki og sveitarfélög um uppbyggingu á gagnagrunni þar sem mikilvægum gögnum úr skólakerfinu er safnað markvisst saman á samræmdan hátt. Það þýðir að viðeigandi aðilar í skólakerfinu munu hafa aðgang að rauntíma gögnum sem á móti skilar sér í markvissara starfi. Með þessari yfirsýn verður hægt að meta betur árangur sveitarfélaga við stefnumótun um menntamál og úthlutun fjárheimilda.
Meginmarkmiðið er að tryggja að upplýsingar um börn séu til staðar og umsýsla þeirra sé samræmd, rétt og fylgi barni í gegnum skólagöngu þess. Þannig munum við stuðla að því að hverju barni sé mætt með réttum úræðum, á réttum tíma og útfrá þeim stað sem það er statt á hverju sinni. Því nemendagrunnur setur barnið í miðjuna.
Eignarhald gagnanna verður á höndum sveitarfélaga sem sótt geta þau með opnum gagnaskilum til frekari hagnýtingar en Miðstöð menntunar og skólaþjónustu mun hafa umsjón með grunninum.
Innleiðing á nemendagrunni hjá öllum sveitarfélögum er forsenda þess að þau geti tekið uppsamræmdan Matsferil á árinu 2026. Matsferill, sem er safn matstækja, dregur upp heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda, reglulega yfir skólagönguna. Þeim er ætlað að auðvelda starfsfólki skóla að miða kennslu við þarfir hvers nemanda og koma auga á þau börn sem telja má í áhættu vegna framvindu í námi og þroska. Matsferill er því verkfæri sem hjálpar til við þrepaskipta þjónustu eins og farsældarlögin gera ráð fyrir.
