Í vetur hefur verið unnið að gerð menntastefnu fyrir Húnabyggð. Nú liggja fyrir drög að stefnunni og hafa þau verið samþykkt í fræðslunefnd og vísað til samráðs í skólasamfélaginu hér í Húnabyggð. Drögin má nálgast hér.

Menntastefnan byggir á grunnþáttum menntunar, 12 meginmarkmiðum, 3 megináherslum og 5 grunnstoðum sem koma fram í Menntastefnu Íslands til 2030 og hefur stefnan tilvísanir í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ætlunin er að ná utan um allt starf með börnum og unglingum og stuðla að farsæld í leik og starfi og tryggja jöfn tækifæri til náms og leiks.

Við óskum eftir umsögnum og ábendingum frá íbúum fyrir 5. maí n.k. og hægt er að senda þær inn hér.

Fræðslustjóri og formaður fræðslunefndar vinna svo úr umsögnum og ábendingum sem berast og bregðast við ef þarf. Að því loknu fer menntastefnan til meðferðar hjá byggðaráði og þaðan til sveitarstjórnar til staðfestingar. 

Getum við bætt efni þessarar síðu?