26. fundur 20. apríl 2026 kl. 15:00 - 16:00 Ráhús Húnabyggðar
Nefndarmenn
  • Magnús Sigurjónsson formaður
  • Ásdís Ýr Arnardóttir aðalmaður
  • Atli Einarsson aðalmaður
  • Ragnhildur Haraldsdóttir varamaður
  • Renate Janine Kemnitz aðalmaður
Starfsmenn
  • Þórhalla Guðbjartsdóttir
  • Kristín Birgisdóttir
  • Dagný Rósa Úlfarsdóttir
  • Katrín Benediktsdóttir
  • Kristín Jóna Sigurðardóttir
  • Lára Dagný Sævarsdóttir
  • Elvar Jóhannesson
  • Pétur Arason
Fundargerð ritaði: Magnús Sigurjónsson formaður

Magnús Sigurjónsson , formaður nefndarinnar, bauð fundarmenn velkomna til 26. fundar Fræðslunefndar Húnabyggðar. Óskar formaður eftir að bæta við lið 6. Dreifnám FNV. Samþykkt samhljóða.

Gengið var til dagskrár.

Dagskrá:

  1. Menntastefna Húnabyggðar 2026-2027

Kynnt drög að Menntastefnu fyrir Húnabyggð, fyrir skóla- og frístundastarf.

Hún byggir á grunnþáttum menntunar, 12 meginmarkmiðum, 3 megináherslum og 5 grunnstoðum sem koma fram í Menntastefnu Íslands til 2030 og hefur stefnan tilvísanir í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Ætlunin er að ná utan um allt starf með börnum og unglingum og stuðla að farsæld í leik og starfi og tryggja jöfn tækifæri til náms og leiks.

Með stefnunni fylgir aðgerðaráætlun sem er ætlað að styðja við framkvæmd stefnunnar til fjögurra ára. Einnig verða sett gæðaviðmið sem nýtast sem smærri skref við framkvæmd og eftirfylgni stefnunnar og fylgja þau þeim gæðaviðmiðum sem til eru fyrir leikskólastarf, grunnskólastarf og frístundastarf. Innra mats kerfi skólanna verður nýtt til að meta framvinduna og ætlunin er að koma upp álíka innra mats kerfi fyrir frístundastarf.

Samvinna fræðslunefndar og íþrótta-, tómstunda og lýðheilsunefndar er lykilatriði í stuðningi við innleiðingu stefnunnar og framfylgd hennar.

Bókun: Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til samráðs í skólasamfélaginu, starfsfólks og foreldra og einnig til íþrótta-, tómstunda og lýðheilsunefndar. Óskað er eftir að athugasemdir sendist til formanns fræðslunefndar eða fræðslustjóra fyrir 5. maí. Fræðslustjóra og formanni fræðslunefndar er falið að yfirfara athugasemdir og bregðast við ef þarf. Í kjölfarið er stefnunni vísað til byggðaráðs Húnabyggðar til meðferðar og þaðan til staðfestingar í sveitarstjórn.

  1. Skóladagatal Leikskóla Húnabyggðar

Kristín Birgisdóttir aðstoðarleikskólastjóri kynnti tillögu að skóladagatali skólaársins 2026-2027. Skóladagatalið er nokkuð hefðbundið en ákveðið var að opna fyrr fyrsta dag eftir sumarfrí og loka seinna síðasta dag fyrir sumarfrí.

Skipulagsdagar eru fimm yfir skólaárið en bara þrír heilir dagar. Hálfur dagur í opnun og lokun við sumarfrí og einn og hálfur skiptast niður á fimm skipulagsfundi. Starfsdagur Húnabyggðar er fyrir utan þessa skipulagsdaga.

Einn skipulagsdagur er sameiginlegur með Húnaskóla en þá mun fara fram námskeið í skyndihjálp.


Fræðslunefnd samþykkir tillögu að skóladagatali Leikskóla Húnabyggðar 2026-2027

  1. Skóladagatal Húnaskóla 2026-2027

Þórhalla Guðbjartsdóttir skólastjóri kynnti tillögu að skóladagatali skólaársins 2026-2027
Skólinn verði settur 21. ágúst 2026 og slitið 4. júní 2027. Fyrirkomulag starfsdaga er með áþekkum hætti og á núverandi skólaári. Auk skipulagsdaga er gert ráð fyrir sérstökum frídögum 4. sept. (réttarfrí), 6. nóv. og 9. nóv.(vetrarfrí)

Fræðslunefnd samþykkir tillögu að skóladagatali Húnaskóla 2026-2027

  1. Skóladagheimili - Minnisblað

Formaður og fræðslustjóri greindu nefndarmönnum frá fundi sem þau áttu við starfsfólk Skóladagheimilisins. Rætt var um húnsæðisvanda skóladagheimilsins og hvaða möguleikar væru fyrir næsta skólaár.

Fræðslunefnd samþykkir að minnsblað formanns fari fyrir byggðarráð til samþykktar.

  1. Skólaakstur – Húnaskóli - 2026-2027

Byggðarráð hefur samþykkt að nýta sér ákvæði i samningi við skólabílstjóra og framlengja samning þeirra til eins árs.

Lagt fram til kynningar.

  1. Dreifnám FNV

Fræðslustjóri kynnti könnun á hug nemenda varðandi framhaldsskóla. Fyriséð er að enginn sæki um dreifnám á Blönduósi á næsta skólaári.

Formaður greindi frá samtali sínu við skólameistara FNV og eru þeir samþykkir því að gera hlé á starfsemi dreifnáms á Blönduósi.

Fræðslunefnd beinir því til byggðarráðs og síðar til staðfestingar í sveitastjórn að ekki verði boðið upp á dreifnám á Blönduósi næsta skólaár en leiti allra leiða til þess að bjóða upp á akstursþjónustu í FNV frá og með næsta hausti ef vilji foreldra og nemenda er fyrir því.

  1. Önnur mál

Ásdís Ýr kynnti samstarfsverkefni farsældarráðs og lögreglu þar sem fyrirhugað er að bjóða upp á Ungmennaþing Barnaheilla í 3.viku september. Leitað verður til stofnanna og fyrirtækja eftir styrkjum. Fyrirséð er að óskað verður eftir liðsinni úr skóla- og frístundasamfélaginu.

Í lok fundar vildi formaður þakka nefndarmönnum, áheyrnarfulltrúum og starfsfólki fyrir samstarfið á liðnu kjörtímabili sem senn er að ljúka og þessi fundur líklega sá síðasti hjá nefndinni. Margar stórar ákvarðanir voru teknar í fræðslumálum á kjörtímabilinu, þá serstaklega á fyrri hluta þess með sameiningu skólastofnana. Er nýrri fræðslunefnd óskað velfarnaðar í starfi.

Getum við bætt efni þessarar síðu?