- mars 2026
Fundur settur klukkan 15:10 og slitið klukkan 17:34.
Nefndarmenn
Guðmundur Haukur Jakobsson forseti
Zophonías Ari Lárusson aðalmaður
Auðunn Steinn Sigurðsson aðalmaður
Ragnhildur Haraldsdóttir aðalmaður
Grímur Rúnar Lárusson aðalmaður
Ásdís Ýr Arnardóttir aðalmaður
Jón Gíslason aðalmaður
Sverrir Þór Sverrisson aðalmaður
Elín Aradóttir aðalmaður
Starfsmaður
Pétur Arason sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Dagskrá
- Kjörstaður Húnabyggðar í sveitarstjórnarkosningum 2026
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að kjörstaður sveitarfélagsins verði í Norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar að Melabraut 2 á Blönduósi.
- Gjaldskrá fráveitu Húnabyggðar
Lögð fram til kynningar uppfærð gjaldskrá sem áður var samþykkt en er nú samantekin í einu skjali.
- Umhverfisnefnd 9. fundur
Fundargerð 9. fundar umhverfisnefndar Húnabyggcðar lögð fram til staðfestingar á 66. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 2 og 3 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
3.1 Úrgangsmál og hringrásarhagkerfi
Berglind Björnsdóttir frá SSNV kom á fundinn undir þessum lið og kynnti loftslagsstefnu Húnavatnssýslna sem unnin var af KPMG undir stjórn SSNV. Rætt var um stefnuna og sérstaklega aðgerðaráætlunina sem liggur fyrir að Húnabyggð þarf að skilgreina fyrir sitt leiti. Umræður sköpuðust um úrgangsmál, urðunarmál og umhverfismál almennt.
3.2. Umsögn um rannsóknarleyfi vegna Fossárvirkjunar
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við veitingu rannsóknarleyfis enda liggur leyfi landeigenda fyrir.
Bókun fundar
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við málið en tekur fram að um er að ræða ósk um umsögn um rannsóknarleyfi og ekki annað.
3.3. Rannsóknarleyfi vegna virkjunar á vatnasviði Vatnsdalsár
Umhverfisnefnd áréttar að nefndin er mótfallin því að þetta rannsóknarleyfi hafi verið veitt. Umhverfisnefnd óskar eftir því við sveitarstjórn að þessari ákvörðun verði mótmælt þar sem t.d. leyfi landeigenda liggja ekki fyrir. Að öðru leiti vísar nefndin í fyrri bókun nefndarinnar um málið þann 8. nóvember 2025.
EA bað um fundarhlé 15:29 og EA, JG og SÞS véku af fundi.
Fundur hófst aftur 15:36.
EA og SÞS lögðu fram eftirfarandi tillögu að bókun:
Á fundi sveitarstjórnar Húnabyggðar, 11. nóv. 2025, þar sem umsagnarbeiðni um rannsóknarleyfi vegna vatnsaflsvirkjunar á vatnasviði Vatnsdalsár var til umfjöllunar, var eftirfarandi bókað:
„Sveitarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (GRL sat hjá) að veita ekki formlega umsögn um umsókn um rannsóknarleyfi þar sem ekki liggur fyrir formlegt samþykki allra landeigenda á umræddu svæði. Þá telur sveitarstjórn að skýra þurfi betur í umsókninni hvert uppsett afl fyrirhugaðrar virkjunar á að vera og hver stærð miðlunarlóns sé nákvæmlega.”
Umhverfis- og Orkustofnun hefur nú veitt rannsóknarleyfi vegna umræddrar virkjunar (dags. 12. jan. 2026). Þær upplýsingar sem ekki lágu fyrir í nóvember hafa komið fram og einnig er ljóst að mikill meirihluti landeiganda lagðist gegn því að rannsóknarleyfið yrði veitt. Sveitarstjórn Húnabyggðar tekur undir umsögn umhverfisnefndar Húnabyggðar frá 8. nóvember 2025 og samþykkir jafnframt beiðni nefndarinnar frá 17. febrúar síðastliðnum um að ákvörðun um leyfisveitingu verði mótmælt. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að koma þeim mótmælum á framfæri við hlutaðeigandi aðila.
ASS bað um fundarhlé 15:51.
Fundur hófst aftur 16:03.
JG vék af fundi 16:04.
Forseti bar tillöguna upp til samþykktar, hún var felld með sex atkvæðum (ASS, RH, ZAL, GRL, AYA og GHJ) en tveir samþykktu (EA og SÞS).
Bókun meirihluta sveitarstjórnar:
Umsögn umhverfisnefndar frá 8. fundi 3. nóvember 2025 sem staðfest var af sveitarstjórn 11. nóvember 2025 hefur verið komið á framfæri við Umhverfis- og orkustofnum.
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjóra falið að afla upplýsinga frá Umhverfis- og orkustofnun um meðferð umsagna umsagnaraðila og reglna um útgáfu rannsóknarleyfa.
Sveitarstjórn samþykkir tillögunna samhljóða með átta atkvæðum.
JG kom aftur inn á fundinn 16:16.
- Byggðarráð Húnabyggðar 136. fundur
Fundargerð 136. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 66. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 3 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Yfirferð á vátryggingum Húnabyggðar
Guðmundur Ásgrímsson tryggingaráðgjafi kom inn á fundinn og fór yfir vátryggingarmál Húnabyggðar. Töluverðar breytingar hafa verið í vinnslu vegna slita byggðarsamlaga og vegna þess að fleiri eignir eru komnar í eignasafn sveitarfélagsins. Sveitarfélagið er með góðan samning sem endurskoða þarf fyrir næsta ár og töluverðir fjármunir hafa sparast á síðustu árum í kjölfarið á endurnýjuðum tryggingasamningum.
- Ljósastaurar við Ennisbraut
Farið var yfir kostnaðaráætlun þess að setja ljósastaura við Ennisbraut á nýja vegkaflanum frá Mýrarbraut að Þverárfjallsvegi og á nýjan hluta Holtabrautar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að útbúa endanlega kostnaðaráætlun fyrir verkefnin.
- Skipun fulltrúa í farsældarráð
Húnabyggð skipar Auðunn Sigurðsson og Berglindi Hlín Baldursdóttur sem aðalmenn og Ragnhildi Haraldsdóttur og Sverri Þór Sverrisson sem varamenn í farsældarráð.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir skipan fulltrúa í farsældarráð.
- Umsókn um framlag vegna úrbóta í aðgengismálum fólks með fötlun
Lögð fram til kynningar umsókn Húnabyggðar til Jöfnunarsjóðs um styrk vegna verkefna í aðgengismálum.
- Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
- Handbók HeimaHafnar
Lagt fram til kynningar og byggðarráð vísar frekari umfjöllun málsins til atvinnu- og menningarnefndar.
- North Bound – gravel adventure Iceland
Byggðarráð vill vekja athygli á viðburði sem einkaðili er að vinna að og er hjólaviðburður sem haldin verður í sveitarfélaginu um Verslunarmannahelgina, sjá nánar á heimasíðu viðburðarins https://northboundgrvl.com/. Hjólað verður víðsvegar um sveitarfélagið og uppi á hálendinu og eru vonir bundnar við að bæði íslendingar og sérstaklega Bandaríkjamenn skrái sig til leiks en skipuleggjandinn rekur fyrirtæki sitt í Bandaríkjunum.
- Eftirlit með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum
Lagt fram til kynningar.
- Reiknilíkan fyrir leik- og grunnskóla – nemendagrunnur og persónuvernd
Lagt fram til kynningar.
4.10 Fundargerð 135. fundar stjórnar SSNV
Lagt fram til kynningar.
- Fræðslunefnd 25. fundur
Fundargerð 25. fundar fræðslunefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 66. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 1 þarfnast sérstakrar samþykktar. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Innritunarreglur leikskóla
Leikskólastjóri lagði fram breytingar á 2. og 5. grein innritunarreglna leikskóla og eru breytingarnar undirstrikaðar.
- Sótt er um leikskóladvöl á heimasíðu leikskólans. Innritun nemenda fer fram allt árið í samræmi við forgangsreglur og aðstæður í leikskólanum hverju sinni. Umsóknir þeirra nemenda sem hefja skólavist í upphafi nýs skólaárs skulu berast fyrir 1. júní ár hvert og eru þær umsóknir afgreiddar í lok júní/byrjun júlí. Þó gildir sú undantekning að börn sem ná 12 mánaða aldri eftir 1. maí hefja ekki vist fyrr en 1. september.
- Innritun er alfarið í höndum leikskólastjórnenda þar sem aðstæður í leikskólanum ráða því hvenær leikskólaganga getur hafist. Aðlögun á yngstu deildinni getur verið krefjandi og fylgir henni töluvert álag, bæði fyrir börn og starfsfólk. Því er það í höndum leikskólastjórnenda að skipuleggja innritun sem fer fram á miðju skólaári með þeim hætti að hún valdi sem minnstri röskun á starfsemi deildarinnar. Öllum umsóknum er svarað með tölvupósti.
Rökstuðningur leikskólastjóra er eftirfarandi:
- Til að trygga gæði námsins og vellíðan barnanna á yngstu deild leikskólans.
- Ungbörn þurfa mikinn stöðugleika til að líða vel. Ef ný börn hefja vistun reglulega yfir allt árið getur það raskað ró og öryggistilfinningu þeirra barna sem þegar eru í hópnum.
- Starfsfólk þarf svigrúm til að mynda góð og traust tengsl við hvert barn. Þegar aðlögun er afmörkuð við ákveðna tíma getur starfsfólk einbeitt sér betur að því að kynnast nýjum börnum án þess að það bitni á umönnun annarra.
- Barnahópurinn þarf tíma til að mótast og finna sameiginlegan takt. Stöðugar breytingar á barnahópnum geta hamlað því að börnin nái að finna sig örugg í umhverfinu.
- Leikskólastarf krefst skipulags og undirbúnings. Ef starfsfólk er stöðugt í aðlögunarferli nýtist minni tími í faglega vinnu, svo sem málörvun og hreyfingu, sem er mikilvægt fyrir þroska tólf mánaða barna.
- Aðlögun nýrra barna er krefjandi verkefni fyrir starfsfólk. Með því að afmarka þetta tímabil má koma í veg fyrir langvarandi álag, sem eykur líkur á meiri starfsánægju og betri þjónustu við börnin.
Bókun fundar
Fræðslunefnd samþykkir breyttar innritunarreglur leikskóla samhljóða.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir breyttar innritunarreglur leikaskóla Húnabyggðar.
- Erindi til fræðslunefndar vegna húsnæðis skóladaheimilis (Stóri-Fjallabær)
Erindi barst frá skólastjóra Húnaskóla, forstöðumanni Skóladagheimilis, tómstundafulltrúa og fræðslustjóra vegna húsnæðismála skóladagheimilisins en síðustu skólaár hefur elsti árgangur leikskóla verið með aðstöðu í Húnaskóla, í rými sem Skóladagheimilið hafði aðsetur áður. Þetta hefur leitt til þess að þrengt er að starfsemi Skóladagheimilisins og er það á ýmsum stöðum innan Húnaskóla og er vinnuaðstaða barnanna og starfsfólks krefjandi.
Bókun fundar
Fræðslunefnd þakkar fyrir erindið og gerir sér grein fyrir að aðstaða skóladagheimilisins er krefjandi og ekki eins og best verður á kosið. Miklar umræður urðu um erindið og er lagt til að fræðslunefnd boði til auka fundar með hagaðilum sem fyrst.
- Skýrla leikskólastjóra
Sigríður B. Aadnegard fór yfir skýrslu sína er varðar starf leikskólans en þessum lið var frestað á síðasta fundi fræðsluefndar.
Skýrsla um starfsemi leikskólans
Viðburðir og félagslíf: Í desembermánuði var mikið um dýrð í skólastarfinu. Elstu nemendur leikskólans sungu á aðventuhátíð í gamla bænum og tókst það mjög vel. Foreldrum var boðið í heitt kakó og piparkökur í skólanum sem skapaði góða stemningu. Foreldrafélagið stóð auk þess fyrir skemmtilegu jólaballi. Á degi leikskólans var efnt til morgunverðar þar sem foreldrar borðuðu með börnum sínum.
Upplýsingamál: Ný heimasíða skólans var tekin í notkun í desember. Hún mun bæta upplýsingamiðlun til foreldra og annarra hagsmunaaðila.
Starfsmannahald og menntun: Allar starfsgildi við skólann eru nú skipuð. Mikil áhersla er lögð á símenntun. Þrír starfsmenn eru í starfsnámi, sem veldur auknu álagi á aðra starfsmenn. Auk þess sækja fimm starfsmenn reglulegar námslotur.
Í febrúar hófst íslenskukennsla fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Sjö starfsmenn leikskólans taka þátt í náminu. Þrír þeirra eru á þriðja stigi íslenskunáms og fjórir á fyrsta stigi. Kennsla fer fram tvisvar í viku, tvo tíma í senn.
Starfsumhverfi og álag: Mikið álag var á starfsfólki í lok janúar og byrjun febrúar. Það skýrist af miklum veikindum samhliða námsleyfum starfsmanna.
Nemendur og innritun: Nemendur eru nú 71 talsins. Búið er að innrita öll börn sem fædd eru árið 2025 og hafa aldur til að hefja nám. Tvær umsóknir liggja fyrir vegna barna sem munu hefja nám eftir sumarfrí.
Bókun fundar
Fræðslunefnd þakkar Sigríði fyrir skýrsluna.
- Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd 14. fundur
Fundargerð 14. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 66. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Sumarfjör sumarið 2026
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar mætti á fundinn og kynnti Sumarfjör í Húnabyggð sumarið 2026. Kristín greindi frá því að hún væri búin að manna Sumarfjörið í sumar í samvinnu við velferðarsvið Húnabyggðar. Fyrirkomulagið á Sumarfjöri í sumar verður með svipuðu sniði og í fyrra. Fyrirhugað er að Sumarfjörið byrji mánudaginn 8. júní nk. og ljúki fimmtudaginn 16. júlí nk.
Dagskrá og skráning í Sumarfjör verður kynnt á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins um miðjan maí nk.
Lagt fram til kynningar.
- Skjólið – starfið
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar, mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir starfið í félagsmiðstöðinni í vetur. Aðsókn í Skjólið í vetur hefur verið með fínasta móti. Tveir starfsmenn hafa unnið í dagopnun Skjólsins og sex starfsmenn hafa verið í tímavinnu á kvöldin í vetur.
Kristín fór yfir að Landsmót Samfés hefði verið haldið í Húnabyggð helgina 3.-5. október sl. þar sem um 400 ungmenni mættu ásamt starfsfólki. Landsmótið fór vel fram og hafði mjög jákvæð áhrif á samfélagið hér í Húnabyggð.
Lagt fram til kynningar.
- Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar, mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti áætlanir um nýtingu styrks sem Húnabyggð fékk á haustmánuðum á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A. 10 Almenningssamgöngur á milli byggða. Hugmyndir eru um að börn í dreifbýli fái akstur heim úr félagsmiðstöð eitt kvöld í viku á fyrir fram ákveðnar stoppistöðvar. Á næstu vikum verður sett af stað tilraunaverkefni vegna þessa. Verið er að kortleggja leiðir og á næstu vikum verður hugmyndin kynnt fyrir foreldrum barna í 8.-10. bekk í dreifbýli Húnabyggðar. Aukinheldur verði lögð könnun fyrir þau um fyrirkomulag akstursins. Umræður urðu á fundinum um málið og tekur nefndin jákvætt í verkefnið.
Þá hefur Innviðaráðherra auglýst eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A. 10 Almenningssamgöngur á milli byggða. Við forgangsröðun umsókna verður litið til verkefna sem m.a. auka möguleika ungs fólks á dreifbýlum svæðum til að sækja íþrótta- og menningarstarfsemi.
Hugmyndir eru uppi um að Húnabyggð sæki að nýju um framlag og þá vegna aksturs í íþrótta-, tómstunda-, og fræðslustarfsemi á Sauðárkróki fyrir íbúa Húnabyggðar. Nefndin felur menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa Húnabyggðar að útfæra hugmyndina nánar og sækja um framlag.
- Önnur mál
Engin önnur mál lágu fyrir fundinum.
- Skipulags- og samgöngunefnd 56. fundur
Fundargerð 56. fundar skipulags- og samgönguefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 66. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 2 og 3 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
7.1 Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga
Til umfjöllunar, leiðréttingar á vinnslutillögu.
Vinna við greinargerð með vinnslutillögu.
7.2 Umsókn um breytingu á Aðalskipulagi vegna efnistökusvæðis við Hvammsá
Tekið fyrir að nýju skilgreining efnistökusvæðis við Hvammsá í Langadal. Fyrir liggur tillaga dags. 9. febrúar s.l. frá Landslagi ehf. Áður var skipulagslýsing tekin fyrir á fundi skipulags- og samgöngunefndar þann 5. nóvember 2025 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að skipulagslýsing vegna efnistökusvæðis við Hvammsá skyldi kynnt almenningi. Skipulagslýsingin var auglýst með umsagnafresti frá 14. janúar til 4. febrúar 2026. Tekið hefur verið tillit til þeirra umsagna sem bárust.
Skipulags- og samgöngunefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna tillöguna á opnu húsi skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
7.3 Aðalskipulagsbreyting vestan Svínvetningarbrautar
Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 vegna skilgreiningu nýs verslunar- og þjónustusvæðis við gatnamót Svínvetningabrautar og Norðurlandsvegar þar sem áður var skilgreindur reitur undir opið svæði, OP4-Undraveröld.
Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 9. desember 2025 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að tillagan skyldi auglýst að lokinni athugun Skipulagsstofnunar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti frá 2. janúar til 13. febrúar 2026.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir athugasemdir sem bárust við kynningu tillögunnar. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt til gildistöku skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að ganga frá afgreiðslu.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir tillöguna.
7.4 Deiliskipulag vestan Svínvetningabrautar
Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi nýs verslunar- og þjónustusvæðis við gatnamót Svínvetningabrautar og Norðurlandsvegar. Samhliða er fellt úr gildi deiliskipulag Undraveraldar við Blöndubakka.
Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 9. desember 2025 þar sem tillagan var afgreidd til auglýsingar að lokinni kynningu. Tillagan var kynnt á opnu húsi þann 12. desember og auglýst með athugasemdafresti frá 2. janúar til 13. febrúar 2026.
Nefndin felur skipulags-og byggingafulltrúa að vinna tillöguna áfram samkvæmt umræðum á fundinum og leggja fram á næsta fundi.
7.5 Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 26
Til kynningar 26. fundargerð afgreiðslufundar byggingafulltrúa.
5.1 Blöndubyggð 10, umsókn um breytta notkun
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa – 26
Farið var yfir innsendar teikningar og fylgigögn. Að teknu tilliti til framlagaðra gagna og að uppfylltum ákvæðum skipulagslaga og mannvirkjalaga er umsóknin samþykkt.
- Fjallskilanefnd 6. fundur
Fundargerð 6. fundar fjallskilanefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 66. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Girðingamál
Björn Þórisson starfsmaður Þjónustumiðstöðvar kom inn á fundinn undir þessum lið og fór yfir helstu verkefni síðasta árs og rædd voru helstu verkefni sem fyrirséð er að vinna þarf í sumar.
Þau eru m.a.:
- Vinna þarf í girðingum í eftirfarandi réttum; Stafnsrétt, Auðkúlurétt og Fossárrétt.
- Skoða þarf ástand og aðgerðir á girðingum í Rugludalshólfi.
- Eins og áður er ætlunin að taka niður girðingar á Auðkúluheiði sem ekki eru notaðar.
- Skoða þarf girðingar með fram veginum í Norðurárdal, ræða við landeigendur og Vegagerðina um hvaða aðgerðir er hægt að gera núna og á næstu árum.
- Girðing sem er u.þ.b. 3km milli Víðidalsfjalls og Miðhóps, sem er til helminga við Húnaþing vestra. Nefndin felur sveitarstjóra að kanna málið með Húnaþingi vestra.
- Laga girðingarstubb vestan við Friðmundarvatn.
- Laga girðingu milli Svínadalsfjalls og Gafls (200-300m).
- Skoða sveitarfélagsmörk og skipulag girðingavinnu vegna hreppagirðingar á Skaga.
- Fjallskilasamþykkt A-Hún
Nefndin fór yfir athugasemdir við núgildandi fjallskilasamþykkt og rædd voru atriði sem þarf að uppfæra og laga. Sveitarstjóra falið að færa inn leiðréttingar og senda uppfærða fjallskilasamþykkt á nefndina.
8.3 Önnur mál
Ekkert annað rætt og ákveðið að næsti fundur nefndarinnar verði 12. mars klukkan 15:15.
- Skipulags- og samgöngunefnd 57. fundur
Fundargerð 57. fundar skipulags- og samgönguefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 66. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 1, 2, 4 og 5 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
9.1 Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga
Til umfjöllunar lokayfirferð á vinnslutillögu.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að vinnslutillaga að aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037 verði samþykkt og verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir vinnslutillögu að aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037 og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að auglýsa og halda kynningarfund í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 19. mars 2026.
9.2 Deiliskipulag vestan Svínvetningabrautar
Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi nýs verslunar- og þjónustusvæðis við gatnamót Svínvetningabrautar og Norðurlandsvegar. Samhliða er fellt úr gildi deiliskipulag Undraveraldar við Blöndubakka.
Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 9. desember 2025 þar sem tillagan var afgreidd til auglýsingar að lokinni kynningu. Tillagan var kynnt á opnu húsi þann 12. desember og auglýst með athugasemdafresti frá 2. janúar til 13. febrúar 2026.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir athugasemdir sem bárust við kynningu tillögunnar. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt til gildistöku skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að ganga frá afgreiðslu.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir tillöguna.
9.3 Tilkynningarskyld framkvæmd vegna útlitsbreytinga við Brekkubyggð 18
Með innsendu erildi dags. 12. febrúar 2026 óskar Aðalheiður Lilja Magnúsdóttir eftir leyfi fyrir útlitsbreytingum að Brekkubyggð 18 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Nefndin telur að umrædd útlitsbreyting sé óveruleg og þarfnist því ekki grenndarkynningar. Byggingafulltrúa falið að veita umbeðið leyfi.
9.4 Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lagningu láspennustrengja við Húnabraut 2
RARIK ohf. óskar hér með eftir framkvæmdaleyfi til Húnabyggðar skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerð nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi. Framkvæmdin felur í sér lagningu tveggja lágspennustrengja frá spennistöð S-055 að Húnabraut 2A.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framkvæmdarleyfið. Samráð skal haft við skipulags-og byggingafulltrúa um framkvæmd og lagnaleið.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir framkvæmdaleyfið.
9.5 Hvammur, merkjalýsing
Eigendur Hvamms í Langadal sækja um stofnun 450,0m2 lóðar úr landi Hvamms undir undir íbúðarhús sem þar stendur, samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Birni Magnúsi Árnasyni hjá Stoð ehf. dagsettri þann 22. janúar 2026. Sótt er um að ný landeign fái staðfangið Hvammur 2.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórnar að samþykkja merkjalýsinguna.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir merkjalýsinguna.
9.6 Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 27
Til kynningar 27. fundargerð afgreiðslufundar byggingafulltrúa.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa – 27
Ekki eru gerðar athugasemdir að hálfu slökkviliðs, en þar sem í gildandi aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 er einungis heimild fyrir þrjú stök frístundarhús á lögbýlum er ekki hægt að heimila byggingu fleiri er þriggja húsa. Í vinnslu er nýtt aðalskipulag sem muna líklega heimila fleiri frístundarhús á lögbýlum.
Er því veitt heimild til byggingar allt að þriggja hús í Friðvík á þessari stundu.
- Byggðarráð Húnabyggðar 137. fundur
Fundargerð 137. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 66. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 9 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
10.1 Sameiginlegt útboð vegna tæminga rotþróa
Bergþór Gunnarsson og Börkur Ottósson komu inn á fundinn undir þessum lið og kynntu fyrirhugað sameiginlegt útboð Húnabyggðar, Skagafjarðar og Húnaþingi vestra í tæmingu rotþróa í sveitarfélögunum. Byggðarráð samþykkir að Húnabyggð taki þátt í þessu útboði sem Consensa leiðir.
10.2 Fráveituverkefni ársins 2026
Bergþór Gunnarsson og Börkur Ottósson komu inn á fundinn undir þessum lið og kynntu hugmyndir og frumkostnaðarmat framkvæmda í fráveitu vestan Blöndu á þessu ári.
10.3 Samningur við Hvöt og Hvöt/Kormák
Fyrir fundinum láu drög að samningi við meistaraflokksráð Hvatar/Kormáks fyrir árið 2026 sem byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti og felur sveitarstjóra að skoða samningsskilyrði samkvæmt umræðu fundarins og ganga frá samningnum.
GRL vék af fundi undir umræðu um þennan lið.
10.4 Hugarflugsfundur um safnamál
Lagt fram til kynningar.
10.5 Skiptayfirlýsing slitastjórnar byggðarsamlaga
Lagt fram til kynningar.
10.6 Svarbréf vegna C1 styrkumsóknar
Lagt fram til kynningar.
10.7 Hlutafjármiði Húnabyggðar í Bríet
Lagt fram til kynningar og sveitarstjóra falið að kanna hjá endurskoðendum sveitarfélagsins hvernig eignarhluturinn verður færður í bækur sveitarfélagsins í uppgjöri 2025.
10.8 North Bound Gravel race 2026
Lögð fram umsókn rekstraraðila um að halda hjólaviðburðinn North Bound gravel race 2026 sem byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti.
10.9 Erindi og ályktanir fyrir ársþing SSNV
Byggðarráð vísar umræðu um þetta til næsta fundar sveitarstjórnar Húnabyggðar.
Bókun fundar
Sveitarstjóra falið að skilgreina erindi til umræðu á ársþingi miðað við umræður fundarins og leggja þau fyrir byggðarráð til samþykktar.
10.10 Samskiptastefna NV
Lagt fram til kynningar.
10.11 Víkingurinn 2026
Lagt fram til kynningar og byggðarráð tekur jákvætt í erindið.
10.12 Umsögn HNV til Atvinnuveganefndar
Lagt fram til kynningar.
10.13 Fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga 2026
Lagt fram til kynningar.
10.14 Fundargerðir 136. og 137. fundar stjórnar SSNV
Lagt fram til kynningar.
10.15 Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
10.16 Fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Lagt fram til kynningar.
10.17 Umsögn um drög að frumvarpi um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati
Lagt fram til kynningar og sveitarstjóra falið að senda inn umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
- Skýrsla sveitarstjóra
Sveitarstjóri fór yfir núverandi verkefni en framkvæmdir ársins eru að hefjast og framkvæmdastigið að aukast hægt og rólega. Vinna með ársreikning sveitarfélagsins gengur vel og vonir eru gerðar um að hægt sé að klára þá vinnu á næstu vikum. Töluverðar breytingar hafa orðið í innra skipulagi sveitarfélagsins og starfsmannamálum. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að kynna þessar breytingar sérstaklega á heimasíðu sveitarfélagsins.
