Dagskrá
1.Blöndubyggð 10, umsókn um breytta notkun
2602001
Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi móttekin 3. febrúar 2026 vegna fasteignarinnar að Blöndubyggð 10, 540 Húnabyggð (L144838, F2136662). Umsóknin er í umfangi 2 og tekur til breytinga innanhúss, þar sem sótt er um leyfi til að breyta 1. hæð og kjallara úr gistihúsi í íbúð, en 2. hæð verður áfram nýtt sem gistihús.
Farið var yfir innsendar teikningar og fylgigögn. Að teknu tilliti til framlagaðra gagna og að uppfylltum ákvæðum skipulagslaga og mannvirkjalaga er umsóknin samþykkt.
Fundi slitið - kl. 12:00.
