Dagskrá
1.Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga
2408023
Til umfjöllunar, leiðréttingar á vinnslutillögu.
Vinna við greinargerð með vinnslutillögu.
2.Umsókn um breytingu á Aðalskipulagi vegna efnistökusvæðis við Hvammsá.
2510008
Tekið fyrir að nýju skilgreining efnistökusvæðis við Hvammsá í Langadal. Fyrir liggur tillaga dags. 9. febrúar s.l. frá Landslagi ehf. Áður var skipulagslýsing tekin fyrir á fundi skipulags- og samgöngunefndar þann 5. nóvember 2025 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að skipulagslýsing vegna efnistökusvæðis við Hvammsá skyldi kynnt almenningi. Skipulagslýsingin var auglýst með umsagnafresti frá 14. janúar - 4. febrúar 2026. Tekið hefur verið tillit til þeirra umsagna sem bárust.
Skipulags- og samgöngunefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna tillöguna á opnu húsi skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar
3.Aðalskipulagsbreyting vestan Svínvetningarbrautar
2511006
Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 vegna skilgreiningu nýs verslunar- og þjónustusvæðis við gatnamót Svínvetningabrautar og Norðurlandsvegar þar sem áður var skilgreindur reitur undir opið svæði, OP4-Undraveröld.
Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 9. desember 2025 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að tillagan skyldi auglýst að lokinni athugun Skipulagsstofnunar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti frá 2. janúar til 13. febrúar 2026.

Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir athugasemdir sem bárust við kynningu tillögunnar. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt til gildistöku skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að ganga frá afgreiðslu.
4.Deiliskipulag vestan Svínvetningarbrautar
2509002
Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi nýs verslunar- og þjónustusvæðis við gatnamót Svínvetningabrautar og Norðurlandsvegar. Samhliða er fellt úr gildi deiliskipulag Undraveraldar við Blöndubakka.
Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 9. desember 2025 þar sem tillagan var afgreidd til auglýsingar að lokinni kynningu. Tillagan var kynnt á opnu húsi þann 12. desember og auglýst með athugasemdafresti frá 2. janúar til 13. febrúar 2026.

Nefndin felur Skipulags-og byggingafulltrúa að vinna tillöguna áfram samkvæmt umræðum á fundinum og leggja fram á næsta fundi.
5.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 26
2602001F
Til kynningar 26. fundargerð afgreiðslufundar byggingafulltrúa.
lagt fram til kynningar.
-
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 26 Farið var yfir innsendar teikningar og fylgigögn. Að teknu tilliti til framlagaðra gagna og að uppfylltum ákvæðum skipulagslaga og mannvirkjalaga er umsóknin samþykkt.
Fundi slitið - kl. 18:30.