Menntastefna fyrir Húnabyggð var staðfest af sveitarstjórn 11. ágúst og birt á heimasíðu sveitarfélagins.
Menntastefna Húnabyggðar markar framtíðarsýn í skóla- og frístundastarfi sveitarfélagsins, hvatningu til einstaklinga að hafa áhrif og taka virkan þátt í að
viðhalda samfélagi sínu, breyta því og þróa það. Hún er leiðarvísir allra þeirra sem vinna með börnum og unglingum í átt að farsælu námi og frístundastarfi. Lögð
er áhersla á að veita framúrskarandi menntun í umhverfi þar sem allir séu þátttakendur í lærdómsumhverfi þar sem þeir fá tækifæri til náms og lærdóms, að
auka hæfni sína, finna að þeir skipti máli og fái tækifæri á eigin forsendum og án mismununar. Með því móti læra börn og ungmenni að byggja sig upp andlega
og líkamlega, verða gildandi borgarar í samfélaginu og geta unnið með öðrum. Menntastefnan tekur líka til menntunar fullorðinna í sveitarfélaginu og hvernig
sveitarfélagið getur stutt við íbúa sína til frekara náms.
Hlutverk Menntastefnu Húnabyggðar er að styðja við skapandi og fjölbreytt starf í leik og starfi, efla þann mannauð sem er til staðar hverju sinn og hvetja til
samstarfs milli stofnana og við nærsamfélagið. Gildi Húnabyggðar, virðing, traust og góð samskipti endurspeglast í öllu fræðslu- og frístundastarfi innan
sveitarfélagsins og lögð er áhersla á að hver einstaklingur fái að blómstra á sínum forsendum. Húnabyggð leggur áherslu á að við stofnanir sínar starfi vel
menntað, metnaðarfullt og framsækið starfsfólk og styður við starfsþróun þess.
Megináherslur stefnunnar eru farsæld, fjölbreytileiki og faglegt lærdómssamfélag og byggir hún á 5 stoðum Menntastefnu Íslands til 2030. Stefnan byggir einnig á gildandi lögum um skólastarf og aðalnámskrám, ásamt Barnasáttmálanum og Heimsmarkmiðum. Samhliða stefnunni er aðgerðaáætlun sem er lifandi skjal fyrir skólasamfélagið að vinna með. Gæðaviðmið eru sett í innramats kerfum skólanna til að vinna nánar með aðgerðaáætlunina.
Það er ástæða að óska okkur öllum til hamingju með metnaðarfulla og framsýna menntastefnu!
