Lausar eru til umsóknar tvær íbúðir í Hnitbjörgum á Blönduósi. Hnitbjörg er kjarni tíu íbúða fyrir aldraða í sjálfstæðri búsetu.
Um er að ræða tveggja herbergja íbúðir. Ein íbúð er laus á 2.hæð, útgengt er í sólskála. Önnur íbúð laus á 1.hæð, þar sem útgengt er í sólskála og út á verönd. Báðar íbúðirnar eru lausar til afhendingar strax.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 17. apríl 2026. Sótt er um á rafrænu eyðublaði sem er aðgengilegt á vef Húnabyggðar, https://www.hunabyggd.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-leiguibud-fyrir-aldrada eða á eyðublaði sem liggur frammi á skrifstofu Velferðarsviðs Húnabyggðar, Húnabraut 5, Blönduósi. Haft verður samband við þá aðila sem eiga inni umsóknir. Úthlutun fer fram samkvæmt reglum Velferðarsviðs Húnabyggðar.
