Upplýsingar um umsækjanda

Núverandi húsnæði








Heilsufar





Umsókn


Skilmálar

Skil á viðbótargögnum

Ég samþykki að skila inn eftirfarandi gögnum vegna vinnslu umsóknar til Velferðarsviðs Húnabyggðar, annað hvort á pappír eða rafrænt á Signet Transfer:

  • Afrit af síðasta skattframtali, staðfestu af ríkisskattstjóra
  • Tekjuyfirlit fyrir síðustu 3 mánuði, staðgreiðsluyfirlit skatta eða launaseðla
  • Læknisvottorði

Upplýst samþykki fyrir öflun nauðsynlegra upplýsinga og gagna 

Með skilum á rafrænni umsókn veitir umsækjandi Velferðarsviði Húnabyggðar, heimild til að afla upplýsinga sem nauðsynlegar eru til að framfylgja lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 til að taka ákvörðun um hvort réttur til úthlutunar sé til staðar í ljósi núverandi aðstæðna. Við vinnslu umsóknar  hefur Velferðarsvið Húnabyggðar heimild til að afla upplýsinga frá skattyfirvöldum, Þjóðskrá Íslands, leigusölum íbúðarhúsnæðis, heilbrigðisstofnunum og öðrum þeim fyrirtækjum og stofnunum sem gætu nýst við að
varpa ljósi á stöðu umsækjanda. Einnig veitir samþykkið Velferðarsviði Húnabyggðar heimild til að afla upplýsinga frá umsækjanda sjálfum um fjárhagslegar aðstæður, húsnæðisaðstæður, fjölskyldustærð, atvinnustöðu, heilsufar og félagslegar aðstæður. Upplýsingarnar eru nauðsynlegar til að unnt sé að eggja fullnægjandi mat á umsókn. Hið sama á við um öflun nauðsynlegra upplýsinga frá sambærilegum aðilum erlendis þegar við á.

Umsækjandisamþykkir að ofangreindar upplýsingar verði sóttar, nýttar og vistaðar í gagnagrunn Húnabyggðar í tengslum við ákvörðunartöku um úthlutun húsnæðis, sem og við eftirlit í tengslum við afgreiðslu umsóknar hjá Húnabyggð.
Umsækjandi vottar hér með að allar upplýsingar sem veittar eru í sambandi við umsókn/vinnslu máls séu réttar.
Persónulegar upplýsingar verða ekki sendar annað, til að mynda til þriðja ríkis eða annarrar stofnunar/fyrirtækis, án leyfis umsækjanda og eru varðveittar sem trúnaðarmál.
Með samþykki þessu er Velferðarsviði Húnabyggðar heimilt á hverjum tíma að sækja upplýsingar sem nauðsynlegar eru við afgreiðslu umsóknar þessarar, sem og uppfærslu annarra upplýsinga sem samþykkið nær til, á meðan hið upplýsta samþykki er í gildi. Unnt er að afturkalla upplýst samþykki hvenær sem er og tekur afturköllunin gildi þegar Velferðarsvið Húnabyggðar hefur móttekið afturköllunina með sannanlegum hætti. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu á grundvelli samþykkis fram að afturkölluninni.
Umsækjandi skuldbindur sig til að láta vita um breytingar á högum sínum sem hafa áhrif á vinnslu og meðferð umsóknar.
Ábyrgðaraðili vinnslu upplýsinga þeirra sem samþykki þetta tekur til er Húnabyggð. Framangreint samþykki um öflun upplýsinga er í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, með síðari breytingum. 

Upplýst samþykki

Ég hef kynnt mér skilmálana hér að ofan.