Lausar eru til umsóknar tvær íbúðir í Hnitbjörgum á Blönduósi. Hnitbjörg er íbúðarkjarni tíu íbúða fyrir aldraða í sjálfstæðri búsetu.
Um er að ræða tveggja herbergja íbúðir. Íbúðirnar eru á 2.hæð, útgengt er í sólskála.
Sótt er um á sérstökum eyðublöðum á Hunabyggd.is (undir Stjórnsýsla – Stjórnskipulag - Umsóknir og eyðublöð) eða á skrifstofu Velferðarsviðs Húnabyggðar, Húnabraut 5 Blönduósi. Haft verður samband við þá aðila sem eiga nú þegar inni umsóknir. Úthlutun fer fram samkvæmt reglum.
Búið er að opna fyrir umsóknir og rennur umsóknarfrestur út mánudaginn 10. ágúst 2026.
 
Á linknum hér fyrir neðan er hægt að nálgast umsóknareyðublað:

 

Umsóknareyðublað er hér.

Getum við bætt efni þessarar síðu?