Dagskrá fundarins
1. Úrgangsmál og hringrásarhagkerfi
Berglind Björnsdóttir frá SSNV kom á fundinn undir þessum lið og kynnti loftslagsstefnu Húnavatnssýslna sem unnin var af KPMG undir stjórn SSNV. Rætt var um stefnuna og sérstaklega aðgerðaráætlunina sem liggur fyrir að Húnabyggð þarf að skilgreina fyrir sitt leiti. Umræður sköpuðust um úrgangsmál, urðunarmál og umhverfismál almennt.
2. Umsögn um rannsóknarleyfi vegna Fossárvirkjunar
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við veitingu rannsóknarleyfis enda liggur leyfi landeigenda fyrir.
3. Rannsóknarleyfi vegna virkjunar á vatnasviði Vatnsdalsár
Umhverfisnefnd áréttar að nefndin er mótfallin því að þetta rannsóknarleyfi hafi verið veitt. Umhverfisnefnd óskar eftir því við sveitarstjórn að þessari ákvörðun verði mótmælt þar sem t.d. leyfi landeigenda liggja ekki fyrir. Að öðru leiti vísar nefndin í fyrri bókun nefndarinnar um málið þann 8. nóvember 2025.
