Grímur Lárusson bar fram eftirfarandi bókun:
Ég geri athugasemd við að þessi fundur sveitarstjórnar hafi ekki verið auglýstur opinberlega á heimasíðu sveitarfélagsins líkt og 3. mgr. 15. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 11. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Húnabyggðar gera skýlausa kröfu um.
Undirritaður áskilur sér rétt til þess að bera fram kvörtun um lögmæti fundarins til innviðaráðuneytisins.
Grímur Rúnar Lárusson varaforseti sveitarstjórnar
Dagskrá
- Viðauki 2
Viðauki 2 skilgreinist á eftirfarandi hátt:
- Viðauki vegna framkvæmda við Heimilisiðnaðarsafnið upp á 2.000.000kr. Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða viðauka 2.
- Byggðarráð 146. fundur
Fundargerð 146. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 70. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 11 og 12 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
ZAL og GRL viku af fundi undir umræðu um lið 2 og 26.
GHJ vék af fundi undir umræðu um lið 26.
Dagskrá fundarins
2.1 Yfirlit HMS vegna húsnæðis- og skipulagsmála
Lagt fram til kynningar samamtekt HMS á byggingu íbúða á svæðinu og þar kemur fram að nýbyggingar eru á undan fólksfjölgun sem er jákvætt þ.e. að nýjir íbúar geta flutt inn á svæðið án þess að hafa miklar áhyggjur af húsnæðismálum.
2.2 Erindi frá Jóni Gíslasyni vegna framkvæmda við Brautarhvamm
Erindi er varðar þær framkvæmdir sem eru í Brautarhvammi og það mikla magn af jarðvegi sem þar er ófrágenginn á veghelgunarsvæði Vegagerðarinnar var lagt fram og spurt hvaða möguleika sveitarfélagið hafi til að hlutast til um að frá þessu verði gengið.
Sveitarfélagið hefur ekki hingað til verið aðili málsins og byggðarráð ítrekar það við Vegagerðina að sótt verði um framkvæmdaleyfi og það skilgreint hvernig málið verður leyst. Sveitarstjóra falið að koma þessari bókun á framfæri við Vegagerðina og að leggja á það áherslu að málið verið leyst sem fyrst.
2.3 Samningur um kaup á landi á Reykjum
Rætt var um hugmyndir að sveitarfélagið kaupi hluta úr landi Reykja umhverfis nýjar borholur Rarik og sveitarstjóra falið að ganga frá samningsdrögum.
2.4 Leiga á íbúðum á Húnavöllum
Komin er ósk leigutaka á Húnavöllum um að leigja tvær íbúðir sem þar eru lausar og byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá samningi þar um.
2.5 Samningur um vatnsveitu
Byggðarráð samþykkir drög að samningi og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ganga frá samningnum og að samningnum verði síðan vísað til staðfestingar sveitarstjórnar.
2.6 Þjónustukjarni fyrir fólk með fötlun á Blönduósi
Byggðarráð samþykkir að sótt verði aftur um stofnframlag til HMS vegna þjónustkjarna fyrir fólk með fötlun og felur sveitarstjóra verkefnið.
2.7 Úrskurður í máli nr. UUA2602030
Lagt fram til kynningar.
2.8 Hjartastuðtæki
Byggðarráð samþykkir að fjárfest verði í hjartastuðtækjum í þær byggingar sveitarfélagsins sem talin er þörf á slíkum búnaði.
2.9 Höfnun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á umsóknum Húnabyggðar
Lagðar fram til kynningar synjanir Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna þriggja umsókna Húnabyggðar þ.e. vegna Þrístapa, Bakka Blöndu og Kálfshamarsvík. Byggðarráð lýsir yfir miklum vonbrigðum yfir þessari niðurstöðu og leggur á það áherslu að sérstakt sé að engir stykrir hafi komið inn á Norðurland vestra og mjög fá inn á Norðurland í heild sinni. Þetta skýtur skökku við þar sem svæðið hefur færri ferðamenn en önnur svæði og styrkirnir að þessu sinni komi sérstaklega inn á svæði þar sem mikil ferðamennska er. Þar sem mikið er af ferðamönnum er augljóst að ekki er sama þörfin fyrir styrkveitingum og á stöðum sem eru á fáfarnari slóðum.
2.10 Afskráningar á félögum
Byggðarráð staðfestir að Hrossaræktardeild Bólstaðarhlíðarhrepps og félagasamtökin Vísir lestrarfélag verði afskráð.
2.11 Útboð í hreinsun rotþróa
Lagt fram til kynningar og samningnum vísað til staðfestingar sveitarstjórnar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samninginn samhljóða.
2.12 Samstarfssamningar um FNV
Samningarnir lagðir fram til kynningar og byggðarráð felur sveitarstjórn að álykta um málið.
Bókun fundar
Sveitarstjórn vísar málinu til áframhaldandi vinnu byggðarráðs og sveitarstjórnar.
2.13 Áhersluverkefnið Bæjarhátíðir
Lagt fram til kynningar og byggðarráð fagnar því að Húnavaka fékk 1.000.000kr. úthlutun.
2.14 Frá Farskólanum
Lagt fram til kynningar.
2.15 Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2026
Byggðarráð fagnar því að styrkir hlutust vegna endurmenntunarverkefna kennara grunnskólans sem fræðslustjóri Húnabyggðar sótti um.
2.16 Fundur um ferðamannamál á Norðurlandi
Lagt fram til kynningar.
2.17 Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2026
Lagt fram til kynningar.
2.18 Endurskoðun á byggðakvótakerfinu
Lagt fram til kynningar.
2.19 Bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til allra framkvæmdastjóra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
2.20 Jöfnun kostnaðar við dreifingu á raforku - umsögn SSKS
Lagt fram til kynningar.
2.21 Fundargerð 48. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
2.22 Fundargerð 139. fundar stjórnar SSNV
Lagt fram til kynningar.
2.23 Fundargerð 482. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Lagt fram til kynningar.
2.24 Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambandsins
Lagt fram til kynningar.
2.25 Gjaldskrá sumarfjörs
Lögð fram drög að gjaldskrá Sumarfjörs sem byggðarráð samþykkir samhljóða og felur sveitarstjóra að láta auglýsa á heimasíðu sveitarfélagsins.
2.26 Umsagnabeiðni - gistileyfi flokkur II
Lögð fram umsókn frá Blöndu ehf. vegna leyfis til reksturs gististaðir í flokki II – B stærra gistiheimili. Byggðarráð veitir jákvæða umsögn fyrir sitt leiti.
- Byggðarráð 147. fundur
Fundargerð 147. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 70. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 2 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
3.1 Leiga á íbúðum á Húnavöllum
Fyrir fundinum lá samningur um leigu á tveimur íbúðum á Húnavöllum tímabilið 01.06-01.10.2026. Samningurinn samþykktur samhljóða og sveitarstjóra falið að ganga frá undirritun.
3.2 Tækjabúnaður fyrir refil
Fyrir fundinum láu upplýsingar um nauðsynleg tækjakaup fyrir stafræna upplifun af Vatnsdælureflinum. Byggðarráð samþykkir samhljóða að leggja fram styrk upp á 140.000kr. á móti SSNV til að hægt sé að klára verkefnið.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir framlagið.
3.3 Streymi og upptaka sveitarstjórnarfunda
Erindi frá Grími Lárussyni er varðar streymi á sveitarstjórnarfundum Húnabyggðar tekið fyrir og byggðarráð samþykkir og leggur til við sveitarstjórn að sveitarstjórnarfundum verði streymt í beinni útsendingu og að séð verði til þess að íbúar hafi aðgang að beinu streymi í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins og að upptaka verði gerð aðgengileg á heimasíðu Húnabyggðar þremur dögum eftir lok hvers sveitarstjórnarfundar.
Byggðarráð áréttar að tímasetning á fyrsta sveitarstjórnarfundi í beinu streymi ráðist af því hvenær tæknileg lausn er tilbúin, en ekki liggur fyrir hvenær það verður.
Sveitarstjóra falið að kanna tæknilegar kröfur og útfærslur á beinu streymi sveitarstjórnarfunda og leggja fram tillögu að lausn sem fyrst fyrir byggðarráð Húnabyggðar.
3.4 Héraðsdómur Norðurlands vestra – mál nr. E-89/2025
Lagt fram til kynningar.
3.5 Aðgengi að Haukagilsheiðarvegi
Erindi frá fjallskiladeild Grímstungu- og Haukagilsheiða um aðgengi að vegi upp á Haukagilsheiðir í landi Haukagils. Byggðarráð vísar erindinu til umsagnar fjallskilanefndar og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram samkvæmt umræðu fundarins.
3.6 Brunavarnir Austur-Húnvetninga
Borist hefur kæra vegna málsmeðferðar slökkviliðs Húnabyggðar nánar tiltekið vegna öryggisúttekta, skoðunarskýrslna og bréfasamskipta er varða afmörkuð mál tengd tilteknum fasteignum á Blönduósi. Vegna m.a. veikindaleyfis slökkviliðsstjóra Húnabyggðar hefur málið tafist umfram eðlilega málsmeðferð og því felur byggðarráð sveitarstjóra að hlutast til um að málið fái eðlilega málsmeðferð.
3.7 Afskráningar á félögum
Lagt fram til kynningar afskráning á félaginu „Foreldrafélag Húnavallaskóla“ sem byggðarráð staðfestir samhljóða.
3.8 Útboð vegna hreinsun rotþróa
Lagt fram til kynningar.
3.9 Bakhópur Sambandsins - úrgangsmál og hringrásarhagkerfi
Lagt fram til kynningar.
3.10 Samgönguvika 2026
Lagt fram til kynningar.
- Streymi og upptaka sveitarstjórnarfunda
Erindi frá Grími Rúnari Lárussyni tekið til umfjöllunar.
Eftirfarandi er bókun lögð fram af Grími Rúnari Lárussyni:
„Sveitarstjórn samþykkir að sveitarstjórnarfundum verði streymt í beinni útsendingu. Íbúar skulu hafa aðgang að beinu streymi í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins og skal upptaka gerð aðgengileg á heimasíðunni eigi síðar en þremur dögum eftir lok hvers fundar.
Sveitarstjóra er falið að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að öllum fundum sveitarstjórnar verði streymt frá og með næsta reglulega fundi hennar og upptaka gerð aðgengileg í samræmi við ofangreint.“
Eftirfarandi breytingartillaga kom frá Jóni Gíslasyni og Zophoníasi Ara Lárussyni:
„Sveitarstjórn samþykkir að sveitarstjórnarfundum verði streymt í beinni útsendingu. Íbúar skulu hafa aðgang að beinu streymi í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins og skal upptaka gerð aðgengileg á heimasíðunni eigi síðar en þremur dögum eftir lok hvers fundar.
Sveitarstjóra er falið að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að öllum fundum sveitarstjórnar verði streymt og að stefnt verði að því að þetta gerist á fyrsta reglulega fundi nýrrar sveitarstjórnar og upptaka gerð aðgengileg í samræmi við ofangreint.“
Bókun fundar
Forseti bar upp breytingatillögu JG og ZAL og hún var samþykkt með sjö atkvæðum en GRL og ASS sátu hjá.
- Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra
Tekin fyrir beiðni Gríms Rúnars Lárussonar um að hann verði leystur undan nefndarsetu í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra.
Eftirfarandi bókun Gríms Lárussonar fylgdi beiðninni:
Málefni fatlaðs fólks eru einn mikilvægasti þjónustuflokkur sveitarfélagsins og snerta bæði mannréttindi, lífsgæði og sjálfstæði einstaklinga. Það er sérstaklega brýnt að sveitarfélagið haldi áfram að vinna markvisst að því að bygging nýs íbúakjarna verði að veruleika, enda er núverandi húsnæði orðið ófullnægjandi og uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru í dag. Ég tel að virkt samráð í þessum hópi geti skilað árangri í þeirri vegferð.
Ég legg áherslu á að sá fulltrúi sem tekur sæti í hópnum hafi skýrt umboð frá meirihluta sveitarstjórnar til að tala fyrir hönd Húnabyggðar og fylgi málum eftir af festu.
Að því sögðu legg ég til að Guðmundur Haukur verði skipaður í samráðshópinn fyrir hönd Húnabyggðar.
Bókun fundar
Tillaga Gríms Lárussonar um afsögn úr nefndinni og að Guðmundur Haukur Jakobsson taki sæti í nefndinni er samþykkt með átta atkvæðum, en EA sat hjá.
- Skýrsla sveitarstjóra
Sveitarstjóri fór yfir þau verkefni sem nú eru í gangi og það sem er á döfinni í starfsemi sveitarfélagsins á næstu vikum og lauk yfirferð sinni með því að þakka sveitarstjórn kærlega fyrir samstarfið.
- Bókun forseta sveitarstjórnar
Forseti sveitarstjórnar vill færa öllum kjörnum fulltrúum, nefndarmönnum og starfsfólki Húnabyggðar kærar þakkir fyrir samstarf og störf á þessu fyrsta kjörtímabili hins nýja sveitarfélags.
Kjörtímabilið hefur verið sögulegt og um leið afar annasamt í kjölfar sameiningar Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar og síðar Skagabyggðar í eitt sveitarfélag, Húnabyggð. Sameining sveitarfélaga er stórt verkefni sem reynir á bæði stjórnsýslu, starfsfólk og kjörna fulltrúa. Slík vinna gerist ekki af sjálfu sér og ljóst er að verkefnið mun halda áfram á næsta kjörtímabili þar sem enn eru fram undan ýmis samþættingar- og uppbyggingarverkefni.
Samhliða þessu hafa slit þriggja rótgróinna byggðarsamlaga verið umfangsmikið verkefni sem til lengri tíma mun styrkja sveitarfélagið verulega. Þá hefur mikil vinna farið í hagsmunagæslu fyrir sveitarfélagið og svæðið allt, meðal annars í stórum innviðamálum og framtíðarmálum sem munu skipta komandi kynslóðir máli.
Á sama tíma hefur vinnustaðurinn Húnabyggð verið í stöðugri þróun og breytingar reynt mikið á starfsemi sveitarfélagsins. Starfsfólk sveitarfélagsins á sérstakar þakkir skildar fyrir fagmennsku, þolinmæði og þann metnað sem það hefur sýnt á þessum krefjandi tíma.
Sérstakar þakkir fá fulltrúar sveitarstjórnar Húnabyggðar sem saman hafa lagt grunn að nýju sveitarfélagi. Mörg stór mál hafa verið tekin föstum tökum, mörg járn verið í eldinum og staða sveitarfélagsins styrkst á mörgum sviðum.
Þrátt fyrir stór og krefjandi verkefni eru jafnframt mikil og spennandi tækifæri fram undan. Grunnurinn hefur verið lagður og framtíð Húnabyggðar er björt.
