Í upphafi fundar lagði forseti sveitarstjórnar fram tillögu um að bætt yrði inn á fundinn einum dagskrárlið vegna erindis frá Borealis. Tillagan var borin upp og samþykkt samhljóða og dagskrárliðurinn verður númer 9.
Dagskrá
- Byggðarráð 142. fundur
Fundargerð 142. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 69. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
1.1. Málefni Heimilisiðnaðarsafnsins
Fyrir fundinum lá fundargerð stjórnar Heimilisiðaðarsafnsins frá 31.03.2026, ársreikingur fyrir árið 2025 og umsókn Heimilisiðaðarsafnsins um rekstrarstyrk.
Styrkurinn sem óskað er eftir er að upphæð 10.400.000kr. fyrir árið 2026, þar af eru áætlaðar 1.500.000-2.000.000kr. vegna sérstakra og nauðsynlegra endurbóta á safnhúsinu.
Byggarráð samþykkir samhljóða að veita Heimilisiðnaðarsafninu umbeðinn styrk og felur sveitarstjóra að láta útbúa viðauka vegna framkvæmdastyrksins.
1.2 Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga 2026
Kjörstaður Húnabyggðar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi – Norðursal, gengið inn frá Melabraut.
Utankjörfundaatkvæðagreiðsla hefst 17. apríl hjá Sýslumönnum.
1.3 Minnisblað vegna vsk á skemmtiferðaskip
Lagt fram til kynningar.
1.4 Umsagnir frá stjórn SSKS
Lagt fram til kynningar.
1.5 Fundargerð 138. fundar stjórnar SSNV
Lagt fram til kynningar.
1.6 Fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Lagt fram til kynningar.
1.7 Framkvæmdaáætlun 2026
Bergþór Gunnarsson kom inn á fundinn undir þessum lið.
Jón Gíslason kom inn á fundinn klukkan 15:24.
Farið var yfir helstu verkefni sem verið er að vinna en nú er að ljúka endurgerð tveggja íbúða í Hnitbjörgum. Farið var sérstaklega yfir verkefni sem liggja fyrir og tengjast fjárfestingaáætlun 2026. Vegna sumra verkefna er verið að tala við verktaka og fá verðhugmyndir o.s.frv. Vinna þarf áætlunina áfram og skipuleggja tímaröð verkefna ársins eins og þau koma fyrir. Sveitarstjóra falið að vinna áætlunin áfram og kynna uppfærða útgáfu sem fyrst fyrir byggðarráði.
- Fræðslunefnd 26. fundur
Fundargerð 26. fundar fræðslunefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 69. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 2 og 3 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
2.1 Menntastefna Húnabyggðar 2026-2027
Kynnt drög að Menntastefnu fyrir Húnabyggð, fyrir skóla- og frístundastarf.
Hún byggir á grunnþáttum menntunar, 12 meginmarkmiðum, 3 megináherslum og 5 grunnstoðum sem koma fram í Menntastefnu Íslands til 2030 og hefur stefnan tilvísanir í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Ætlunin er að ná utan um allt starf með börnum og unglingum og stuðla að farsæld í leik og starfi og tryggja jöfn tækifæri til náms og leiks.
Með stefnunni fylgir aðgerðaráætlun sem er ætlað að styðja við framkvæmd stefnunnar til fjögurra ára. Einnig verða sett gæðaviðmið sem nýtast sem smærri skref við framkvæmd og eftirfylgni stefnunnar og fylgja þau þeim gæðaviðmiðum sem til eru fyrir leikskólastarf, grunnskólastarf og frístundastarf. Innra mats kerfi skólanna verður nýtt til að meta framvinduna og ætlunin er að koma upp álíka innra mats kerfi fyrir frístundastarf.
Samvinna fræðslunefndar og íþrótta-, tómstunda og lýðheilsunefndar er lykilatriði í stuðningi við innleiðingu stefnunnar og framfylgd hennar.
Bókun: Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til samráðs í skólasamfélaginu, starfsfólks og foreldra og einnig til íþrótta-, tómstunda og lýðheilsunefndar. Óskað er eftir að athugasemdir sendist til formanns fræðslunefndar eða fræðslustjóra fyrir 5. maí. Fræðslustjóra og formanni fræðslunefndar er falið að yfirfara athugasemdir og bregðast við ef þarf. Í kjölfarið er stefnunni vísað til byggðaráðs Húnabyggðar til meðferðar og þaðan til staðfestingar í sveitarstjórn.
2.2 Skóladagatal Leikskóla Húnabyggðar
Kristín Birgisdóttir aðstoðarleikskólastjóri kynnti tillögu að skóladagatali skólaársins 2026-2027. Skóladagatalið er nokkuð hefðbundið en ákveðið var að opna fyrr fyrsta dag eftir sumarfrí og loka seinna síðasta dag fyrir sumarfrí.
Skipulagsdagar eru fimm yfir skólaárið en bara þrír heilir dagar. Hálfur dagur í opnun og lokun við sumarfrí og einn og hálfur skiptast niður á fimm skipulagsfundi. Starfsdagur Húnabyggðar er fyrir utan þessa skipulagsdaga.
Einn skipulagsdagur er sameiginlegur með Húnaskóla en þá mun fara fram námskeið í skyndihjálp.
Fræðslunefnd samþykkir tillögu að skóladagatali Leikskóla Húnabyggðar 2026-2027.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða skóladagatal leikskóla Húnabyggðar fyrir 2026-2027.
2.3 Skóladagatal Húnaskóla 2026-2027
Þórhalla Guðbjartsdóttir skólastjóri kynnti tillögu að skóladagatali skólaársins 2026-2027
Skólinn verði settur 21. ágúst 2026 og slitið 4. júní 2027. Fyrirkomulag starfsdaga er með áþekkum hætti og á núverandi skólaári. Auk skipulagsdaga er gert ráð fyrir sérstökum frídögum 4. sept. (réttarfrí), 6. nóv. og 9. nóv.(vetrarfrí)
Fræðslunefnd samþykkir tillögu að skóladagatali Húnaskóla 2026-2027.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða skóladagatal grunnskóla Húnabyggðar fyrir 2026-2027.
2.4 Skóladagheimili - Minnisblað
Formaður og fræðslustjóri greindu nefndarmönnum frá fundi sem þau áttu við starfsfólk Skóladagheimilisins. Rætt var um húnsæðisvanda skóladagheimilsins og hvaða möguleikar væru fyrir næsta skólaár.
Fræðslunefnd samþykkir að minnsblað formanns fari fyrir byggðarráð til samþykktar.
2.5 Skólaakstur – Húnaskóli - 2026-2027
Byggðarráð hefur samþykkt að nýta sér ákvæði i samningi við skólabílstjóra og framlengja samning þeirra til eins árs.
Lagt fram til kynningar.
2.6 Dreifnám FNV
Fræðslustjóri kynnti könnun á hug nemenda varðandi framhaldsskóla. Fyriséð er að enginn sæki um dreifnám á Blönduósi á næsta skólaári.
Formaður greindi frá samtali sínu við skólameistara FNV og eru þeir samþykkir því að gera hlé á starfsemi dreifnáms á Blönduósi.
Fræðslunefnd beinir því til byggðarráðs og síðar til staðfestingar í sveitastjórn að ekki verði boðið upp á dreifnám á Blönduósi næsta skólaár en leiti allra leiða til þess að bjóða upp á akstursþjónustu í FNV frá og með næsta hausti ef vilji foreldra og nemenda er fyrir því.
2.7 Önnur mál
Ásdís Ýr kynnti samstarfsverkefni farsældarráðs og lögreglu þar sem fyrirhugað er að bjóða upp á Ungmennaþing Barnaheilla í 3. viku september. Leitað verður til stofnanna og fyrirtækja eftir styrkjum. Fyrirséð er að óskað verður eftir liðsinni úr skóla- og frístundasamfélaginu.
Í lok fundar vildi formaður þakka nefndarmönnum, áheyrnarfulltrúum og starfsfólki fyrir samstarfið á liðnu kjörtímabili sem senn er að ljúka og þessi fundur líklega sá síðasti hjá nefndinni. Margar stórar ákvarðanir voru teknar í fræðslumálum á kjörtímabilinu, þá serstaklega á fyrri hluta þess með sameiningu skólastofnana. Er nýrri fræðslunefnd óskað velfarnaðar í starfi.
- Atvinnu- og menningarnefnd 23. fundur
Fundargerð 23. fundar atvinnu- menningarnefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 69. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
3.1 Viðburðadagskrá ársins 2026
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir og Svanhildur Pálsdóttir komu inn á fundinn undir þessum lið.
Kristín Ingibjörg fór yfir viðburðadagatalið og þar kennir ýmissa grasa eins og venjulega. Þar má nefna:
- 5–7. júní: Prjónagleði
- 13–14. júní: Smábæjaleikar knattspyrnudeildar Hvatar.
- Júní: 17. júní hátíðarhöld í Húnabyggð.
- Júní: Rabarbarahátíð í gamla bænum. Ekki enn vitað hvort þessi hátíð verði haldin í sumar. Verður aðalfundur 9. maí, þá verður ákvörðun tekin.
- 16–19. júlí: Húnavaka
- Júlí–1. Ágúst: North Bound – gravel adventure Iceland, hjólaviðburður haldinn af einkaaðilum.
- Ágúst: Vatnsdæla og Hinsegin hátíð.
- September: Sláturhátíð (í vinnslu), hópsláturgerð, tónleikar o.fl.
- 23–30. september: Í tilefni af BeActive íþróttaviku Evrópu mun Húnabyggð bjóða upp á fjölbreytta dagskrá sem hvetur fólk til að hreyfa sig og huga að eigin heilsu. Þar verða meðal annars ýmsir hreyfi viðburðir, heilsufarsmælingar og fræðandi fyrirlestrar um heilsu og vellíðan.
- Október: Hláturhátíð (í vinnslu) ýmsir gleði tengdir viðburðir og uppistand.
- Október-4. nóvember: Skúnaskrall, Barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra. Samstarfsverkefni SSNV og allra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dagskrá er í vinnslu.
- Aðventan í Húnabyggð: Stefnt er að því að halda ýmsa viðburði í aðdraganda jóla í Húnabyggð. Undirbúningur hefst í haust.
Eins og sést er mikið um að vera og nóg að skipuleggja og hlakka til.
Svanhildur fór yfir skipulag Prjónagleðinnar 2026 en það hefur gengið hefur mjög vel að skipuleggja viðburinn og gríðarlegur áhugi er á viðburðinum. Prjónagleðin í ár stefnir í að vera stærsta Prjónagleðin sem haldin hefur verið. Mikill áhugi og spenna er fyrir dagskránni og námskeiðunum og ekki skemmir fyrir að heimsfræg prjónastjarna, Stephen West, heimsækir viðburðinn. Það er mikil tilhlökkun í prjónurum og allt stefnir í frábæra prjónahelgi.
3.2 North Bound – gravel adventure Iceland
Atvinnu- og menningarnefnd vill vekja athygli á viðburði sem einkaðili er að vinna að og er hjólaviðburður sem haldin verður í sveitarfélaginu um Verslunarmannahelgina, sjá nánar á heimasíðu viðburðarins https://northboundgrvl.com/. Hjólað verður víðsvegar um sveitarfélagið og uppi á hálendinu og eru vonir bundnar við að bæði íslendingar og sérstaklega Bandaríkjamenn skrái sig til leiks en skipuleggjandinn rekur fyrirtæki sitt í Bandaríkjunum.
3.3 Handbók HeimaHafnar
Erindi vísað til nefndarinnar frá byggðarráði.
Atvinnu- og menningarnefnd fjallaði um málið sem er mjög jákvætt og mikilvægt en á sama tíma umfangsmikið og krefst samstarfs ólíkra aðila. Atvinnu- og menningarnefnd leggur til við sveitarstjórn þar sem um langtíma þróunarverkefni er að ræða að því verði beint sérstaklega til SSNV og að skoðað verði hvort hægt sé að skoða þetta mál fyrir landshlutann í heild sinni eða hluta hans ef það þykir fýsilegra.
- Byggðarráð 143. fundur
Fundargerð 143. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 69. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
4.1 Framkvæmdaáætlun 2026
Farið var yfir verkefnaáætlun ársins og þá sérstaklega framkvæmdir við fasteignir sveitarélagsins. Vinna við áætlunina mun halda áfram og sveitarstjóra falið að kynna uppfærða útgáfu sem fyrst fyrir byggðarráði.
4.2 Lóðaumsókn
Fyrir fundinum lá umsókn Borealis um lóðir við Fálkagerði 6, 9 og 11. Byggðarráð samþykkir lóðaumsóknirnar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ganga frá málinu.
4.3 Niðurstaða útboðs á hreinsun rotþróa
Lögð fram niðurstaða útboðs á hreinsun rotþróa sem unnið var af Consensa fyrir Húnaþing vestra, Húnabyggð og Skagafjörð. Byggðarráð samþykkir mat umsjónarmanns útboðs og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.
4.4 Umsögn til Umhverfis- og samgöngunefndar frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra
Lagt fram til kynningar.
4.5 Bréf frá umboðsmanni barna: sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
Lagt fram til kynningar.
4.6 Samtök orkusveitarfélaga: Umsögn um verndar- og orkunýtingaráætlun
Lagt fram til kynningar.
- Fjallskilanefnd 8. fundur
Fundargerð 140. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 67. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 3 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
5.1 Sauðadalur
Báðar deildir hafa tekið málið fyrir og bókanir deildanna eru samhljóða þ.e. að báðar deildir leggja til að núverandi samningi verði sagt upp og samningaviðræður fyrir fjallskil á Sauðadal fyrir næsta ár hefjist sem fyrst. Fjallskilanefnd beinir því til byggðarráðs að núgildandi samningi verði sagt upp.
5.2 Styrkvegaframkvæmdir
Lagðar fram þrjár nýjar tillögur um styrkvegaframkvæmdir frá fjallskiladeild Skagaheiða. Tillögurnar verða settar inn í þær tillögur sem þegar eru komnar fram. Endanlegar ákvarðanir um styrkvegaframkvæmdir verða teknar á næsta fundi nefndarinnar.
5.3 Göngur og réttir
Réttir í Skrapatungu-, Auðkúlu-, Hlíðar og Undirfellsréttum verða 5-6. september. Dagsetningar fyrir aðrar réttir eru ekki endanlega ákveðnar.
Í yfirstandnandi vinnu með breytingar á fjallskilasamþykkt A-Hún hefur verið gert ráð fyrir því að réttir geti verið fyrr en nú er. Þær fjallskiladeildir sem ákveðið hafa að hafa réttir fyrr en skilgreint er í núgildandi fjallskilasamþykkt, þurfa að sækja um sérstaka undanþágu til sveitarstjórnar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita fjallskiladeildum Skrapatunguafrétta, Auðkúluheiðar og Grímstungu- og Haukagilsheiða leyfi til að breyta dagsetningum á fjárréttum haustið 2026 þannig að aðalréttir Undirfellsréttar verði 4-5. september, aðalréttir Auðkúluréttar verði 5. september og að fyrri réttir í Skrapatungurétt verði 6. september og seinni réttir 20. september.
5.4 Fjallskilasamþykkt A-Hún
Ný drög að samþykktinni rædd og ákveðið að fela sveitarstjóra að leita álits sérfræðinga á álitamálum sem þarf að uppfæra eins og t.d. um mörk o.fl. Ákveðið að halda umræðum um uppfærsluna áfram á næsta fundi nefndarinnar. Áréttað er að í uppfærði fjallskilasamþykkt er lagt til að Kjalarlandsrétt verði skilgreind sem skilarétt.
5.5 Önnur mál
Rætt um upprekstur hrossa á afrétti innan Húnabyggðar og mögulegri uppbyggingu stóðrétta þ.e. að slíkir viðburðir geti vaxið og dafnað. Það eru ýmis mál sem þarf að skoða hvað þetta varðar en í dag eru það helst Hrossahólf á Auðkúluheiði, Laxárdalur og Skagaheiði sem notuð eru fyrir upprekstur hrossa. Upprekstur er einnig á Grímstunguheiði en fjallskiladeild Grímstungu- og Haukagilsheiða telur að upprekstur hrossa á þær heiðar séu barn síns tíma, sérstaklega þar sem yfirleitt er um að ræða trippi. Finna þurfi þessum málum í betri farveg á þessu svæði.
Ekkert annað rætt og ákveðið að næsti fundur nefndarinnar verði 15. júní klukkan 15:30.
- Byggðarráð 144. fundur
Fundargerð 144. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 69. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 4 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
6.1 Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Guðmundi Hauki Jakobssyni að fara með atkvæði sveitarfélagsins á aukaaðalfundi samtakanna miðvikudaginn 29. apríl 2026.
6.2 Starfsemi Íþróttamiðstöðvarinnar
Katrín Benediktsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið og fór yfir starfsemi Íþróttamiðstöðvarinnar. Frábær árangur hefur náðst í rekstrinum á undanförnum árum þar sem tekjur hafa vaxið, gjöld lækkað, starfsmönnum hefur fjölgað, opnunartími hefur verið lengdur og aðsókn stóraukist. Byggðarráð fagnar góðum árangri og undirstrikar að íþróttamiðstöðin er mjög mikilvægur liður í þjónustu við íbúa og gesti sveitarfélagsins.
6.3 Erindi frá fræðslunefnd
Tekið fyrir erindi frá fræðslunefnd vegna málefna skóladagheimilisins. Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram ásamt þeim stjórnendum sem tengjast lausn málsins og skilgreina lausn sem fyrst.
6.4 Fundargerð Heimastjórnar
Tekin fyrir fundargerð heimastjórnar þar sem vakin er athygli á því að ekki sé rétt að semja við sveitarfélögin Skagaströnd og Skagafjörð um nýja skilgreiningu á sveitarfélagsmörkum á Skagaheiði miðað við þær forsendur sem fyrir liggja. Málið hefur verið í vinnslu um nokkurn tíma og Húnabyggð hefur vakið athygli málsaðila á því að skoða þurfi málið betur áður en Húnabyggð samþykkir endanlega niðurstöðu. Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma bókun fundarins formlega á framfæri við málsaðila og byggðarráð undirstrikar þá skoðun Húnabyggðar að skoða þurfi málið betur áður en endanleg niðurstaða fæst og að núverandi sáttarlína sé ekki viðunandi lausn.
Bókun fundar
Sveitarstjóri hefur þegar óskað eftir því við Skagafjörð að málið verði rætt frekar. Sveitarstjórn fer þess á leit við sveitarstjórn Skagafjarðar að málið verði rætt frekar milli sveitarfélaganna.
6.5 Umsókn í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Umsókn Húnabyggðar um styrk vegna framkvæmda í aðgengismálum að Húnabraut 5 var samþykkt og fékk sveitarfélagið styrk að upphæð 5.000.000kr. vegna verkefnisins sem kostaði alls rúmlega 16 milljónir.
6.6 Umhverfis- og tiltektardagar Húnabyggðar
Byggðarráð samþykkir að skipuleggja umhverfis- og tiltektardaga í Húnabyggð dagana 28-30. maí. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirbúa og auglýsa málið.
6.7 Til umsagnar 595. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lagt fram til kynningar.
6.8 Ársreikningur Brákar hses
Lagt fram til kynningar.
6.9 Fundur fagráðs um málefni fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
6.10 Formleg opnun ráðhúss Húnabyggðar
Byggðarráð felur sveitarstjóra að auglýsa formlega opnun á ráðuhúsi Húnabyggðar að Húnabraut 5, laugardaginn 30. maí.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir að breyta tillögu byggðarráðs og að formleg opnun ráðhússins verði fimmtudaginn 28. maí og að hreinsunardagarnir verði 23-28. maí.
- Byggðarráð 145. fundur
Fundargerð 145. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 69. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 2 og 10 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
7.1 Eignayfirlýsingar vegna slita á byggðasamlögum
Lagt fram til kynningar.
7.2 Erindi frá fræðslunefnd vegna dreifnáms
Á fundi fræðslunefndar 20. apríl síðastliðinn var eftirfarandi bókað:
Fræðslustjóri kynnti könnun á hug nemenda varðandi framhaldsskóla. Fyriséð er að enginn sæki um dreifnám á Blönduósi á næsta skólaári.
Formaður greindi frá samtali sínu við skólameistara FNV og eru þeir samþykkir því að gera hlé á starfsemi dreifnáms á Blönduósi.
Fræðslunefnd beinir því til byggðarráðs og síðar til staðfestingar í sveitastjórn að ekki verði boðið upp á dreifnám á Blönduósi næsta skólaár en leiti allra leiða til þess að bjóða upp á akstursþjónustu í FNV frá og með næsta hausti ef vilji foreldra og nemenda er fyrir því.
Byggðarráð staðfestir samhljóða ályktun fræðslunefndar og vísar málinu til staðfestingar sveitarstjórnar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir að hlé verði gert á starfsemi dreifnáms á Blönduósi frá og með næsta skólaári. Boðið verður upp á akstursþjónustu frá og með upphafi skólaárs 2026-2027 fyrir nemendur úr Húnabyggð í FNV á Sauðárkróki.
7.3 Erindi frá foreldrafélagi Húnaskóla
Erindið er móttekið og lausn á málinu verður unnin í sumar.
7.4 Uppsetning vegriðs við Stóru Giljá
Byggðarráð fagnar verkefninu sem eykur öryggi vegfarenda en áréttar að Vegagerðinni ber að sækja um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins varðandi verkefni við vegakerfi Vegagerðarinnar innan marka sveitarfélagsins.
7.5 Ósk um leyfisveitingu til að halda torfærukeppni
Byggðarráð veitir leyfi fyrir sitt leiti eins og áður hefur verið gert og felur sveitarstjóra að upplýsa hestamannafélagið Neista og skotfélagið Markviss um viðburðinn.
7.6 Afsal Hnjúkabyggð 33
Lagt fram til kynningar.
7.7 Norðurá – grænt bókhald 2025
Lagt fram til kynningar.
7.8 Norðurá – aðalfundur 2026
Lagt fram til kynningar.
7.9 Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
7.10 Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi til áfengisveitinga
ASS vék af fundi undir þessum lið.
Tekið fyrir erindi frá Guðjóni Ebba Guðjónssyni vegna tækifærisleyfis og byggðarráð veitir jákvæða umsögn fyrir sitt leiti.
ASS og GRL viku af fundi undir umfjöllun um þennan lið.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir ákvörðun byggðarráðs.
- Skipulags- og samgöngunefnd 61. fundur
Fundargerð 61. fundar skipulags- og samgönguefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 69. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 1-6 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
SB boðaði forföll og í hans stað ABF.
8.1 Umsókn um uppsetningu spennistöðvar við Hurðabak 2
Lagt er fram erindi frá RARIK ohf. er varðar uppsetningu spennistöðvar (smáhýsis) við Hurðarbak 2 á Ásum í Húnabyggð. Framkvæmdin tengist strenglagningu sem fór fram á árinu 2025. Samkvæmt erindinu hefur staðsetningu spennistöðvarinnar verið breytt í samráði við landeigendur og er nú gert ráð fyrir að hún verði staðsett aftan við vélaskemmu á lóðinni. Fyrir liggur samþykki landeiganda fyrir staðsetningunni.
Skipulags-og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd við umsóknina og leggur til við sveitarstjórna að samþykkja umsóknina.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir umsóknina samhljóða.
8.2 Másstaðir, merkjalýsing
Lögð er fram merkjalýsing dags. 13. apríl 2026 vegna jarðarinnar Másstaða. Umsóknin tekur til annars vegar samruna landeigna og hins vegar stofnunar nýrrar lóðar úr landi Másstaða, samkvæmt uppdrætti og fylgigögnum.Fyrirhugað er að fella lóðina Másstaðir lóð (L144724) inn í upprunaland Másstaða (L144723) og í kjölfarið stofna nýja lóð úr landinu. Ný lóð fær staðfangið Steinkot og er skráð stærð hennar 5.995,5m².
Skipulags- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við erindið og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir merkjalýsinguna samhljóða.
8.3 HB - Umsókn um framkvæmdaleyfi -vegna efnistöku.
Lagt er fram erindi frá Vegagerðinni um framlengingu á útgefnu framkvæmdaleyfi vegna efnisvinnslu í námum í Húnabyggð. Sótt er um að gildistími framkvæmdaleyfis verði framlengdur til 31. desember 2027.Framkvæmdaleyfið tekur til efnisvinnslu úr námu 21777 Syðri-Löngumýri og úr námu 18039 Blöndueyrar, við Svínvetningabraut (veg 731-03). Efnið er ætlað til lagfæringa og viðhalds á héraðsvegum og tengivegum á svæðinu.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlengingu framkvæmdaleyfisins til 31. desember 2027.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir framlengingu framkvæmdaleyfisins samhljóða.
8.4 Óverulega breytinga á deiliskipulagi við Fálkagerði
Lögð fram tillaga Arkís arkitekta ehf. fyrir hönd Borealis Facilities ehf. að óverulegri breytingu á deiliskipulagi gagnavers við Svínvetningabraut sem nær til lóðanna Fálkagerðis 1-7, Fálkagerðis 9 og Fálkagerðis 11. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði sameinaðar í eina lóð og byggingarreitir verði sameinaðir. Sameinuð lóð er einnig stækkuð til vesturs og suðurs. Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti.
Skipulags-og samgöngunefnd telur að um sé að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til framangreinds er breytingin ekki talin krefjast grenndarkynningar og verður því afgreidd án auglýsingar. Skipulags-og samgöngunefnd samþykkir breytinguna og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir breytinguna samhljóða samkvæmt bókun skipulags- og samgöngunefndar.
8.5 Umsókn um framkvæmdaleyfi á lóðum 9-11 að Fálkagerði.
Lagt er fram erindi frá Borealis Data Center ehf. um framkvæmdaleyfi á lóðum 9-11 við Fálkagerði í Húnabyggð. Umsóknin varðar jarðvinnu, þ.m.t. uppgröft og fyllingu á lóðum í þeim tilgangi að undirbúa svæðið fyrir fyrirhugaða uppbyggingu og byggingarframkvæmdir.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir umrædda framkvæmd.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfisins.
8.6 Breyting á aðalskipulagi Húnavatnshrepps, Blöndulína 3
Tekið fyrir að nýju erindi um breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 vegna Blöndulínu 3. Erindið var á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 3. júní 2025 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að tillagan skyldi auglýst, að lokinni auglýsingu var erindið tekið fyrir á fundi nefndarinnar þann 3. febrúar þar sem afgreiðslu erindisins var frestað. Um er að ræða 220kV loftlínu sem liggur um Húnabyggð á um 18km löngum kafla frá Blöndustöð austur í Skagafjörð um Kiðaskarð niður í Mælifellsdal.
Tillaga með greinargerð, umhverfisskýrslu og uppdrætti var auglýst með athugasemdafresti frá og með 4.12.2025-15.01.2026. Þær athugasemdir sem bárust á kynningartíma gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að ganga frá gildistöku breytingarinnar í samræmi við 2. mgr. 33. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að gang frá gildistöku breytingarinnar í samræmi við 2. mgr. 33. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Erindi frá Borealis
Fyrir fundinum lá erindi frá Borealis þar sem óskað er eftir því að Húnabyggð vinni með Borealis að gerð viljayfirlýsingar um áframhaldandi uppbyggingu við gagnaver fyrirtæksins á Blönduósi. Sveitarstjórn samþykkir erindið og felur sveitarstjóra að vinna að gerð viljayfirlýsingarinnar með Borealis.
- Skýrsla sveitarstjóra
Sveitarstjóri fór yfir niðurstöður ársreiknings og minnisblað sveitarstjóra um ársreikning Húnabyggðar 2025.
