Í upphafi fundar lagði forseti sveitarstjórnar fram tillögu um að við fundinn yrði bætt einum dagskrárlið um umboð vegna aðalfundar veiðifélags Blöndu og Svartár. Tillagan var samþykkt samhljóða og verður liðurinn númer 10.
Dagskrá
- Ársreikningur Húnabyggðar 2025 – fyrri umræða
Ársreikningur Húnabyggðar fyrir árið 2025 tekinn til fyrri umræðu. Þorsteinn G. Þorsteinsson endurskoðandi hjá KPMG mætti til fundar og fór yfir samstæðureikning sveitarfélagsins, ásamt sundurliðunarbók. Að því loknu svaraði hann fyrirspurnum sveitarstjórnarmanna.
Að loknum umræðum lagði Guðmundur Haukur Jakobsson forseti fram eftirfarandi tillögu:
,,Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkir að vísa ársreikningi Húnabyggðar fyrir árið 2025 til síðari umræðu".
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum samhljóða.
- Byggðarráð 138. fundur
Fundargerð 138. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 67. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
2.1. Samningur við meistaraflokksráð Hvatar/Kormáks
Fyrir fundinum lá endanlega útgáfa samnings við meistaraflokksráð Hvatar/Kormáks sem byggðarráð samþykkir.
2.2. Leigusamningur um Húnaver
Lagður fram til kynningar skammtíma leigusamningur um eignir sveitarfélagsins í Húnaveri frá 01.03-30.09.2026 og hann samþykktur samhljóða.
2.3. Fráveitugjaldskrá Húnabyggðar
Nýtt sameiginlegt útboð sveitarfélaganna Húnabyggð, Húnaþing vestra og Skagafjarðar kallar á breytingar á gjaldskrá fráveitu Húnabyggðar sem byggðarráð felur sveitarstjóra að gera drög að og leggja fyrir byggðarráð.
2.4. Skólaakstur Húnabyggðar
Byggðarráð felur sveitarstjóra að framlengja núverandi samninga við verktaka skólaaksturs Húnabyggðar um eitt ár að því gefnu að allir verktakar séum með tilskilin leyfi og séu tilbúnir í að framlengja samningi sínum um eitt ár.
2.5. Nemendaverndarráð leikskóla Húnabyggðar
Byggðarráð samþykkir ósk leikskólastjóra stofnun nemendaverndarráðs fyrir leikskóla Húnabyggðar. Byggðarráð felur leikskólastjóra að sjá um að nemendaverndarráðið komi saman, skipti með sér verkum og haldi starfsemi ráðsins gangandi.
2.6. Vinnslusamningur MMS
Lagt fram til kynningar
2.7. Samningur um persónuvernd
Lagt fram til kynningar
2.8. Markviss
Lögð fram til kynningar starfsáætlun skotfélagsins Markviss, byggðarráð þakkar fyrir samantektina og greinilegt er að lífleg starfsemi er í félaginu.
2.9. Fundur samráðsvettvangs Sóknaráætlunar Norðurlands
Lagt fram til kynningar
2.10. Bakhópur um úrgangsmál
Lagt fram til kynningar og byggðarráð vísar málinu til kynningar í umhverfisnefnd og skipulags- og samgöngunefnd.
2.11. fundur fagráðs um málefni fatlaðs fólks á NV
Lagt fram til kynningar
2.12. Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar
2.13. Tómstundaakstur
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið og kynnti tilraunarverkefni sem verið er að setja af stað þar sem ungmennum í dreifbýli (8-10. bekk) er keyrt heim eftir lokun Skjólsins.
- Fjallskilanefnd 7. fundur
Fundargerð 7. fundar fjallskilanefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 67. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
3.1. Álit um fjallskilamál á Sauðadal
Fyrir fundinum lá álit Ólafs Dýrmundssonar frá 10.03.2026 þar sem farið var yfir málið. Fjallskilanefnd Húnabyggðar leggur fram eftirfarandi tillögu miðað við álitið sem liggur fyrir:
Horft verður á Sauðadal sem heimaland, þar sem landeigendur einir mega sleppa fé. Fjallskiladeildir Auðkúluheiðar og Grímstungu- og Haukagilsheiða munu skipuleggja og kosta fyrstur leitir að hausti. Að öðru leiti er smölun landsins á ábyrgð landeigenda.
Skoða þyrfti í samhengi við lausn þessa hvort að ástæða sé til þess að breyta skipulagssvæði fjallskiladeilda þessa svæðis.
Fjallskilanefnd vísar þessu máli til umfjöllunnar fjallskiladeilda Auðkúluheiða og Grímstungu- og Haukagilsheiða áður en málið verður tekið fyrir í sveitarstjórn.
Fjallskilanefnd vísar því til byggðarráðs að samningi um fjallskil á Sauðadal verði sagt upp.
3.2. Fjallskilasamþykkt A-Hún
Farið var yfir nýja útgáfu fjallskilasamþykktarinnar og sú vinna mun halda áfram á næstu mánuðum og áframhaldandi vinnu vísað til næsta fundar fjallskiannefndar.
3.3. Styrkvegaframkvæmdir
Eftirfarandi hugmyndir að styrkvegaframkvæmdum og tillögu um verkefni vísað til næsta fundar fjallskilanefndar:
- Bera í veg frá Mánaskál að Núpi.
- Fara yfir veginn í Hallárdal, laga ræsi o.s.frv.
- Vegur heim að Stafnsrétt og grjótvarnir á þeim vegi. Leitað hefur verið eftir sérstökum styrkjum í þetta verkefni og skoða verður hvað hægt er að gera þar sem framkvæmdir eru orðnar aðkallandi.
- Vaglavegur þ.e. að klára það sem byrjað var á árið 2025.
- Framkvæmdir ofarlega í brekkunni upp Grímstunguheiði.
- Skipulags- og samgöngunefnd 58. fundur
Fundargerð 58. fundar skipulags- og samgönguefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 67. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
Á fundinn mættu kjörnir fulltrúar úr sveitarstjórn ásamt Páli Jakobi Lindal og Ásgeir Erni Jóhannsyni.
4.1. HB- Deiliskipulag gamla bæjarins
Farið yfir deiliskipulag gamla bæjarins og Klifamýrar. Páll Lindal og Ásgeir Örn Blöndal fóru yfir stöðu skipulagssins og næstu skref. Miklar umræður urðu um skipulagið.
- Byggðarráð Húnabyggðar 139. fundur
Fundargerð 139. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 67. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 1, 2 og 3 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
5.1. Fráveitugjaldskrá Húnabyggðar
Lögð fram til kynningar ný uppfærð gjaldskrá fráveitu Húnabyggðar en vegna nýs útboðs á losun rotþróa í sveitarfélaginu er nauðsynlegt að uppfæra gjaldskrána. Núna er öllum sem hafa rotþrær sem ekki eru í eigu sveitarfélagsins skylt að tæma þær í gegnum skipulag sveitarfélagsins og borga tæmingagjald samkvæmt því. Gjaldskráin hvað varðar tæmingu gildir því núna fyrir rotþrær sem ekki eru í eigu sveiarfélagsins þ.e. sumarhús o.s.frv.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir uppfærða gjaldskrá fráveitu Húnabyggðar.
5.2. Persónuverndarstefna Húnabyggðar
Lögð fram til kynningar persónuverndarstefna Húnabyggðar sem byggðarráð vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir persónuverndarstefnu Húnabyggðar.
5.3. Sala eigna Húnabyggðar
ZAL vék af fundi undir þessum lið.
Kauptilboð í eignir sveitarfélagsins við Hnjúkabyggð 27 tekin til umræðu.
Byggðarráð samþykkir kauptilboð á eign sveitarfélagsins við Hnjúkabyggð 27 (íbúð JD) upp á 16.600.000kr. og felur sveitarstjóra að láta ganga frá sölu eignarinnar.
ZAL vék af fundi og GRL kom inn á fundinn.
Byggðarráð samþykkir kauptilboð á eign sveitarfélagsins við Hnjúkabyggð 27 (íbúð 3C) upp á 23.000.000kr. og felur sveitarstjóra að láta ganga frá sölu eignarinnar.
GRL vék af fundi og ZAL kom inn á fundinn.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða sölu á þessum eignum Húnabyggðar.
5.4. Skýrsla um stjórnsýsluskoðun Húnabyggðar 2025
Lögð fram til kynningar stjórnsýsluúttekt KPMG fyrir árið 2025. Í úttektinni er nokkrar athugasemdir sem verið er að vinna með og einnig eru nokkrar athugasemdir sem þegar hafa verið leystar. Sveitarstjóra falið að bregðast við og setja af stað verkefni sem leysa umræddar athugasemdir.
5.5. Þjónustusamningur við Spektra
Lagður fram til kynningar þjónustusamningur við Spektra vegna WorkPoint.
5.6. Línustæði, eignarréttur og endurgjald
Lögð fram til kynningar skýrsla sem Torfi Jóhannsson vann fyrir SSNV um línustæði, eignarrétt og endurgjald vegna flutnings- og dreifikerfi raforkukerfisins. Skýrslan dregur fram helstu þætti sem skipta máli og gefur góða fyrirsýn yfir þau álitamál sem þessum framkvæmdum fylgja. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta setja skýrsluna á heimasíðu sveitarfélagsins.
5.7. Tillaga sveitarstjórnar um sérstök skilyrði vegna byggðakvóta fiskveiðiárið 2025-2026
Lagt fram til kynningar.
5.8. Umsögn SSNV um grænbók um byggðarmál
Lagt fram til kynningar.
5.9. Aðalfundur Norðurár
Aðalfundur Norðurár verður haldin mánudaginn 23. mars og byggðarráð felur sveitarstjóra að tilkynna framboð Húnabyggðar í stjórn byggðarsamlagsins.
5.10. 46. fundur fagráðs um málefni fatlaðra á NV
Lagt fram til kynningar.
- Byggðarráð Húnabyggðar 140. fundur
Fundargerð 140. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 67. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 1 og 4 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
6.1. Samþykkt um fráveitu í Húnabyggðar
Uppfærð samþykkt Húnabyggðar um fráveitu lögð fram og samþykkt samhljóða með áorðnum breytingum af byggðarráði.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir uppfærða samþykkt um fráveitu Húnabyggðar.
6.2. Erindi frá HMS vegna Brunavarna A-Hún
Lagt fram til kynningar erindi frá HMS sem ítrekar kröfu um að brunavarnaráætlun sveitarfélagsins verði kláruð. Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga á eftir því við slökkviliðsstjóra Húnabyggðar að þetta verði klárað sem fyrst.
6.3. Uppgjör Flúðabakka ehf.
Lagður fram til kynningar samningur við Flúðabakka ehf. vegna uppgjör félagsins við sveitarfélagið á þeim ívilinum sem félagið fékk að upphæð 2.503.613kr. þegar sex íbúðir við Flúðabakka voru byggðar. Uppgjörið kemur í kjölfarið á því að félagið seldi íbúðirnar til Bríetar.
6.4. Félagsheimilið á Blönduósi ehf.
Fyrir fundinum lá fundargerð stjórnar Félagsheimilis Blönduós ehf. þar sem lagt er til við sveitarstjórn að félagið verði lagt niður. Byggðarráð vísar afgreiðslu málsins til sveitarstjórnar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir tillögu stjórnar Félagsheimilisins á Blönduósi ehf. um að leggja niður félagið.
6.5. Tilboð í tómstundaakstur
SÞS vék af fundi undir þessum lið.
Lögð fram til kynningar verðkönnun meðal verktaka í tómstundaakstur. Sveitarstjóra falið að leita samninga miðað við umræður fundarins.
SÞS vék af fundi undir þessum lið.
6.6. Styrkúthlutun Húsafriðunarsjóðs 2026
Lagt fram til kynningar að Húnabyggð hefur fengið 500.000kr. framlag frá Húsafriðunarsjóði til þess að endurgera Gústasjoppu.
Þá fengu Svínavatnskirkja 1.000.000kr., Undirfellskirkja 1.600.000kr. og Þingeyraklausturskirkja 800.000kr. frá Húsafriðunarsjóði í sömu úthlutun.
6.7. Lokaskýrsla um nýtingu glatvarma á Blönduósi
Lagt fram til kynningar.
6.8. Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks
Lögð fram til til kynningar umsögn Húnabyggðar sem skilað var inn vegna málsins.
6.9. Varðandi áform umhverfisráðherra um að leggja niður heilbrigðiseftirlitið
Lagt fram til kynningar.
6.10. Opinber innkaup - bréf frá Samkeppniseftirlitinu
Lagt fram til kynningar.
6.11. Fundargerð 122. stjórnarfundar Norðurár
Lagt fram til kynningar.
6.12. Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
6.13. Fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
- Skipulags- og samgöngunefnd 59. fundur
Fundargerð 59. fundar skipulags- og samgönguefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 67. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 1, 2 og 3 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
7.1 Deiliskipulag fyrir vatnsaflsstöðina Blöndustöð
Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi Blöndustöðvar. Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina núverandi starfsemi vatnsaflsstöðvarinnar Blöndustöðvar ásamt frekari orkuvinnslu á veituleið.
Landsvirkjun áformar frekari nýtingu falls á núverandi veituleið Blöndustöðvar, frá Blöndulóni að Gilsárlóni skammt ofan Blöndustöðvar. Markmið verkefnisins er að fullnýta til orkuöflunar allt að 69 m fall á veituleið Blöndu frá Blöndulóni að inntakslóni Blöndustöðvar.
Fyrir liggur tillaga að deiliskipulagi frá Landslagi ehf, greinargerð ásamt þremur uppdráttum dags. 30. janúar 2026. Tillagan var síðast á dagskrá skipulags- og umhverfisnefndar þann 3. febrúar s.l. þar sem hún var afgreidd til auglýsingar. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti frá 12. febrúar - 26. mars 2026.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir innkomnar athugasemdir og leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagið verði afgreitt skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulags- og byggingafulltrúa verði falið að ganga frá gildistöku og auglýsa niðurstöðu sveitarstjórnar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu deiliskipulagsins og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ganga frá gildistöku og auglýsingu niðurstöðunnar. Sveitarstjórn felur skipulags- og byggingarfulltrúa að árétta við Landsvirkjun að hönnun og framkvæmd þess hluta verkefnisins sem snýr að rennslisvirkjununum verði tekin upp sem fyrst og uppfærð miðað við þá reynslu og breytingar sem orðið hafa frá því að upphaflegar hugmyndir um rennslisvirkjanirnar voru skilgreindar. Tryggja þarf að framkvæmdir vegna rennslisvirkjananna verði í fullri sátt við nærsamfélag framkvæmdanna og að tekið verði tillit til athugasemda sveitarfélagsins áður en framkvæmdaleyfi er gefið.
7.2. Auðkúla 3 afrétt, umsókn um stöðuleyfi
SÞS vék af fundi undir þessum lið.
Fyrir liggur umsókn frá Sverri Þór Sverrissyni um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á lóðinni Auðkúlu 3 afrétt, samkvæmt framlögðum gögnum.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að veita umsækjanda stöðuleyfi fyrir einn 40 feta gám á lóðinni Auðkúlu 3 afrétt, til eins árs.
SÞS kom aftur inn á fundinn kl: 15:30.
SÞS vék af fundi undir þessum lið.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita stöðuleyfið.
7.3. Breyting á deiliskipulagi við Hnjúkabyggð
Breyting á deiliskipulagi fyrir nýtt tjaldsvæði við Hnjúkabyggð.
Skipulags-og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að gildandi deiliskipulag við Hnjúkabyggð verði skipt upp í tvö svæði og annar hlutinn tekin fyrir tjaldsvæði.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir tillögu skipulags- og samgöngunefndar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að láta vinna nýtt deiliskipulag fyrir nýtt tjaldsvæði sem fyrst.
- Byggðarráð Húnabyggðar 141. fundur
Fundargerð 141. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 67. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 2 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
8.1. Uppgræðsla á Eyvindastaðaheiði
Guðmundur Ögmundsson frá Landsvirkjun kom inn á fundinn undir þessum lið og fór yfir uppgræðsluverkefni Landsvirkjunar á Eyvindastaðaheiði. Byggðarráð þakkar Guðmundi fyrir áhugaverða og fræðandi kynningu.
8.2. Húsnæðisáætlun Húnabyggðar
Börkur Þór Óttósson og Elísa Ýr Sverrisdóttir komu inn á fundinn og fóru yfir uppfærða húsnæðisáætlun Húnabyggðar fyrir árið 2026. byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir húsnæðisáætlun Húnabyggðar fyrir árið 2026 með áorðnum breytingum.
8.3. Málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Sara Lind Kristjánsdóttir komu inn á fundinn og fóru yfir málefni fólks með fötlun á árinu 2025 og stöðuna það sem af er ársins 2026.
8.4. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Húnabyggð
Lögð fram til kynningar uppfærð samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Húnabyggð og byggðarráð vísar henni til umfjöllunar í umhverfisnefnd Húnabyggðar.
8.5. Brú milli byggða – aðgengi barna að íþróttum
Húnabyggð hefur fengið styrk frá valnefnd um verkefnastyrki til almenningssamgangna á milli byggða upp á fimm milljónir króna. Byggðarráð fagnar þessu enda eru akstursmál með ungmenni vegna íþróttaiðkunar umfangsmikil fyrir íbúa sveitarfélagsins. Styrkurinn verður notaður til áframhaldandi tilrauna með þjónustuakstur ungmenna í sveitarfélaginu.
8.6. Viðauki I við skiptayfirlýsingu
Lagt fram til kynningar umboð til handa sveitarstjóra sveitarfélagsins Skagastrandar til að selja fasteignina Sæborg sem er að Ægisgrund 14, Skagaströnd.
8.7. Söguupplifun - samstarfsyfirlýsing
Lögð fram kynningar samstarfsyfirlýsing um „Stafræn sögumiðlun í Gamla bænum á Blönduósi“ við Sýndarveruleika ehf. sem þegar hefur fengið styrk vegna þessa verkefnis og er nú að sækja um áframhaldandi styrk hjá Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.
8.8. Stefna um opinbera þjónustu
Lagt fram til kynningar.
8.9. Ályktun tekin á fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands
Lagt fram til kynningar.
8.10. Til umsagnar 582. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lagt fram til kynningar.
8.11. Ástand vega vegna vatnsveðurs
Vegna vatnavaxta síðustu daga hafa vegir víða í dreifbýli Húnabyggðar látið verulega á sjá og eru sums staðar svo skemmdir að þeir geta skapað hættu fyrir vegfarendur. Af þeim sökum hafði skólaakstri verið frestað á meðan unnið væri að nauðsynlegum lagfæringum.
Byggðaráð Húnabyggðar telur ljóst að bregðast þarf hraðar við af hálfu Vegagerðarinnar og tryggja að framkvæmdir og viðhald fari fram með þeim hætti að öryggi vegfarenda sé ávallt tryggt. Það er brýnt að íbúar í dreifbýli geti sótt atvinnu, börn komist í skóla og að aðkoma viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs, sé tryggð við allar aðstæður.
Sveitarstjóra er falið að senda Vegagerðinni áskorun um úrbætur í samræmi við framangreint.
- Skipulags- og samgöngunefnd 60. fundur
Fundargerð 60. fundar skipulags- og samgönguefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 67. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 1 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
HBE boðaði forföll og í hans stað mætti GRL. SB boðaði einnig forföll og í hans stað mætti ABF.
- Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga
Tekin fyrir að nýju vinnslutillaga aðalskipulags Húnabyggðar 2025-2037. Tillagan var afgreidd til kynningar á íbúafundi á fundi nefndarinnar 3. febrúar 2026.
Tillagan var kynnt frá 12. mars til 10. apríl 2026. Opinn íbúafundur var haldinn þann 7. apríl í félagsheimilinu Blönduósi.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir umsagnir sem bárust á kynningartíma tillögunnar. Skipulagsfulltrúa er falið að gera lagfæringar á tillögunni í samræmi við umræður á fundinum. Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að uppfærð tillaga verði afgreidd í athugun fyrir auglýsingu hjá HMS í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir að tillagan verði afgreidd í athugun fyrir auglýsingu hjá HMS í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Umboð vegna aðalfundar veiðifélags Blöndu og Svartár
ZAL bar fram tillögu um að Guðmundi Hauki Jakbossyni verði falið umboð sveitarfélagsins til að fara með atkvæði Húnabyggðar á fundinum.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita Guðmundi Hauki Jakobssyni umboð sveitarfélagsins á aðalfundi veiðifélags Blöndu og Svartár.
- Skýrsla sveitarstjóra
Sveitarstjóri fór yfir núverandi verkefni og fór sérstaklega yfir skipulagsbreytingar sem verið er að vinna að innan skipurits Húnabyggðar.
