65. fundur 10. febrúar 2026 kl. 15:00 - 16:37
Nefndarmenn
  • Guðmundur Haukur Jakobsson forseti
  • Ásdís Ýr Arnardóttir aðalmaður
  • Grímur Rúnar Lárusson aðalmaður
  • Jón Gíslason aðalmaður
  • Auðunn Steinn Sigurðsson aðalmaður
  • Sverrir Þór Sverrisson aðalmaður
  • Elín Ósk Gísladóttir varamaður
  • Höskuldur Sveinn Björnsson varamaður
  • Sævar Björgvinsson varamaður
Starfsmenn
  • Pétur Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Pétur Arason sveitarstjóri

Dagskrá

  1. Byggðarráð Húnabyggðar 133. fundur

Fundargerð 133. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 65. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 1 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.

  1. Ný byggðarlína Landsnets í Húnabyggð

Landsnet hélt opin kynningarfund á Blönduósi þriðjudaginn 13. janúar um nýja 220kV byggðarlínu. Byggðarráð fagnar þeirri ákvörðun Landsnets að ný byggðarlína fari með núverandi byggðarlínu. Það hefur verið baráttumál Húnabyggðar síðustu ár að þetta yrði niðurstaðan. Það er mikilvægt að hafa í huga þegar þetta mál er skoðað að forsenda fyrir hagvexti svæðisins til framtíðar eru möguleikar svæðisins til atvinnuþróunar og uppbyggingar mismunandi atvinnutækifæra. Aðgangur að orku er grunnforsenda allrar atvinnustarfsemi og hafi svæðið ekki aðgang að megin orkuflutningsmannvirkjum Landsnets eru tækifæri svæðisins skert og í versta falli ekki fyrir hendi. Af þessari ástæðu hefur verið lögð mikil áhersla á þetta mál af hálfu Húnabyggðar og með áfangaskiptingu verkefnisins, skapast tækifæri á fyrstu stigum þessa verkefnis til uppbyggingar í Húnabyggð. Þetta er að mati Húnabyggðar eitt stærsta hagsmunamál núverandi og framtíðar íbúa þessa svæðis. Það eru að sjálfsögðu önnur hagsmunamál hvað svona verkefni varðar og hagsmunir landeigenda er dæmi um það. Miðað við áætlanir Landsnets gæti spennusetning á fyrsta áfanga byggðarlínunnar frá Blöndustöð í Laxárvatn gerst 2028-2029. Eins og áður segir væri sá áfangi mikil vítamínsprauta fyrir svæðið okkar og mundi gefa mörg tækifæri til frekari atvinnu­uppbyggingar t.d. á svæðinu við gagnaverið.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að leitast eftir því að Húnabyggð, Húnaþing vestra og Landsnet haldi sameiginlegan fund að loknum kynningarfundum Landsnets.

Bókun fundar

Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs.

  1. Stekkjarvík - úrgangsmagn 2025

Lagt fram til kynningar.

  1. Nýr gátlisti til að efla fjölbreytni í sveitarstjórnum

Lagt fram til kynningar.

  1. Fjármál Húnabyggðar

Lagður fram listi yfir félög sem skráð eru á Húnabyggð og eru mörg hver arfur af gamalli tíð og ekki félög sem þjóna neinum tilgangi.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að skoða afskráningu eftirfarandi félaga:

  • Foreldrafélag Húnavallaskóla (4502101100)
  • Nemendafélag Húnavallaskóla (5002201470)
  • Vísir,lestrarfélag (5108820409)
  • Húnavatnshreppur (4201061300)
  • Blönduósbær (4701691769)
  • Hrossaræktardeild Bólsthlíðarhrepps (5702942029)

Þá felur byggðarráð sveitarstjóra að uppfæra upplýsingar um eftirfarandi félög:

  • Skagabyggð (5406022630)
  • Húnanet ehf. (5305160320)
  • Almannavarnarnefnd Húnavatnssýslu (5607861239)
  • Félagsheimilið Blönduósi ehf. (7101973349)
  • Félagsheimilið Húnaver (6401696729)
  • Spuni,handverkshópur (7103932069)
  • Starfsmannafélag skrifstofu Blönduósbæjar (5107171710)
  1. Fundargerð 134. fundar stjórnar SSNV

Lagt fram til kynningar.

  1. Skipulags- og samgöngunefnd 54. fundur

Fundargerð 54 fundar skipulags- og samgöguefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 65. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 2 og 3 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.

  1. Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga

Áframhaldandi vinna við nýtt aðalskipulag sameinaðra sveitarfélaga.

Farið yfir landnotkun, efnistökusvæði og ofanflóð/náttúruvá.

  1. Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna framkvæmda á Skagavegi

Fyrir hönd Vegagerðarinnar óskar Magnús Björnsson eftir framkvæmdarleyfi vegna framkvæmda á Skagavegi.

Skipulags-og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að fela skipulags-og byggingafulltrúa að veita Vegagerðinni umbeðið framkvæmdarleyfii með fyrirvara um samþykki landeigenda.

Bókun fundar

Sveitarstjórn samþykkir að fela fela skipulags-og byggingafulltrúa að veita framkvæmdaleyfið.

  1. Ártún, merkjalýsing

Eigandi Ártúns sækir um stofnun 3.130m2 lóðar úr landi Ártúns undir útihús, samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ingvari K. Þorleifssyni dagsettri þann 2. október 2025. Sótt er um að ný landeign fái staðfangið Ártún 1.

Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja merkjalýsinguna.

Bókun fundar

Sveitarstjórn samþykkir merkjalýsinguna.

  1. Deiliskipulag við Hnjúkabyggð

Til umræðu breytingar á deiliskipulagi við Hnjúkabyggð.

  1. Byggðarráð Húnabyggðar 134. fundur

Fundargerð 134. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 65. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.

  1. Uppgjör vegna slita byggðarsamlaga

Drög að uppgjöri byggðarsamlaganna sem nú er verið að slíta hefur verið lagt fyrir sveitarstjórn og byggðarráði var falið að taka málið áfram. Sveitarstjóra falið að koma á framfæri við slitastjórn þeim athugasemdum sem ræddar voru á fundinum.

  1. Ályktun Hagsmunasamtaka landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 3

Lögð fram til kynningar ályktun nýstofnaðra hagsmunasamtaka landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 3. Byggðarráð áréttar að engar formlegar upplýsingar liggja fyrir um að byggðarlínuleiðin sé ekki hagkvæmasti kosturinn og að aðrar leiðir séu fjárhagslega hagstæðari. Þá liggur einnig fyrir að byggðarlínuleiðin hefur minni áhrif á náttúru og umhverfi en heiðarlínuleiðin.­vörðu­heiðarlínu 3. Byggðarráð áréttar að engar formlegar upplýsingar liggja fyrir um að byggðar­línuleiðin sé ekki hagkvæmasti kosturinn og að aðrar leiðir séu fjárhagslega hag­stæðari. Þá liggur einnig fyrir að byggðarlínuleiðin hefur minni áhrif á náttúru og umhverfi en heiðarlínuleiðin.

  1. Prjónagleði 2026

Byggðarráð samþykkir framlögð drög að fjárhagsáætlun Prjónagleðinnar 2026 og felur sveitarstjóra að tryggja framgang verkefnisins.

  1. Endurskoðun Húnabyggðar 2026

Lögð fram til kynningar skilagögn Húnabyggðar til endurskoðenda sveitarfélagsins er varðar upplýsingar um ferla á skrifstofu, tengda aðila o.fl.

  1. Skilagrein Skagabyggðar 2025

Lagt fram til kynningar skilgrein frá Íslenska Gámafélaginu vegna úrgangsmála í fyrrum Skagabyggð.

  1. Beiðni um umsögn - umsókn um rannsóknarleyfi vegna Fossárvirkjunar í Húnabyggð

Byggðarráð vísar málinu til skipulags- og samgöngunefndar og til umhverfisnefndar til frekari umfjöllunar.

  1. Rannsóknarleyfi vegna virkjunar á vatnasviði Vatnsdalsár

Byggðarráð vísar málinu til umhverfisnefndar til umfjöllunar.

  1. Framtíðin og íslenskar hafnir

Lagt fram til kynningar.

  1. Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033 og uppfærsla 9. kafla vatnaáætlunar 2022-2027 vegna nýrra gagna

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerðir 476., 477. og 478. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð bakhóps Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 14.01.2026

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 43. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra

Lagt fram til kynningar.

  1. Skipulags- og samgöngunefnd 55. fundur

Fundargerð 54 fundar skipulags- og samgöguefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 65. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 1, 2, 3, 4, 5 og 6 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.

Dagskrá

  1. Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga

Tekið fyrir að nýju, Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga, nýtt aðalskipulag fyrir Húnabyggð. Áður var skipulagslýsing tekin fyrir í skipulags- og samgöngunefnd þann 2. október 2024 og samþykkt til auglýsingar. Skipulagslýsing var auglýst frá 28. október til 28. nóvember 2024. Athugasemdir sem bárust við lýsinguna voru nýttar við mótun vinnslutillögu. Fyrir liggur vinnslutillaga að nýju aðalskipulagi fyrir Húnabyggð frá Landslagi ehf dags. 30. janúar 2025, sem felur í sér samþættingu á landnotkun fyrrum Skagabyggðar, Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Farið hefur verið yfir stefnur fyrrum sveitarstjórna og þær rýndar af skipulags- og samgöngunefnd f.h. sveitarstjórnar Húnabyggðar. Afraksturinn er settur fram í greinargerð sem inniheldur forsendur stefnumótunar og umhverfisskýrslu þar sem metin eru umhverfisáhrif stefnunnar á tiltekin efnistatriði. Aðalskipulagið innheldur stefnu sveitarstjórnar um þróun landnotkunar í sveitarfélaginu til 12 ára.

Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að vinnslutillaga að aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037 verði samþykkt og verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi þann 24. febrúar 2026 í félagsheimilinu á Blönduósi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bókun fundar

Sveitarstjórn samþykkir vinnslutillöguna með þeim athugasemdum sem lagðar voru fram og ræddar á fundinum. Sveitarstjórn felur skipulags- og byggingarfulltrúa að uppfæra vinnslutilöguna í samræmi við umræður fundarins.

  1. Breyting á aðalskipulagi Húnavatnshrepps, Blöndulína 3

Tekið fyrir að nýju erindi um breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 vegna Blöndulínu 3. Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 3. júní 2025 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að tillagan skyldi auglýst. Um er að ræða 220 kV loftlínu sem liggur um Húnabyggð á um 18 km löngum kafla frá Blöndustöð austur í Skagafjörð um Kiðaskarð niður í Mælifellsdal.

Tillaga með greinargerð, umhverfisskýrslu og uppdrætti var auglýst með athugasemdafresti frá og með 4.12.2025 - 15.01.2026. Þær athugasemdir sem bárust á kynningartíma gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.

Afgreiðslu frestað.

Bókun fundar

Sveitarstjórn Húnabyggðar staðfestir afgreiðslu skipulags- og samgöngunefndar og tekur undir þá ákvörðun að fresta afgreiðslu málsins.

Frestunin byggir á óvissu um lagalegar og fjárhagslegar forsendur orkumannvirkja, m.a. vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.

Óskað hefur verið eftir fundum með ráðherrum orkumála og innviða.

  1. Deiliskipulag fyrir vatnsaflsstöðina Blöndustöð

Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi Blöndustöðvar. Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina núverandi starfsemi vatnsaflsstöðvarinnar Blöndustöðvar ásamt fyrirhugaðri uppbyggingu.

Landsvirkjun áformar frekari nýtingu falls á núverandi veituleið Blöndustöðvar, frá Blöndulóni að Gilsárlóni skammt ofan Blöndustöðvar. Markmið verkefnisins er að fullnýta til orkuöflunar allt að 69m fall á veituleið Blöndu frá Blöndulóni að inntakslóni Blöndustöðvar.

Tillagan er í samræmi skipulagslýsingu sem kynnt var þann 14. desember 2023 til 14. janúar 2024.

Vinnslutillaga var kynnt á opnu húsi 19. nóvember 2025 og var hægt að gera athugasemdir við vinnslutillöguna frá 13. til 27. nóvember 2025.

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillaga að deiliskipulagi Blöndustöðvar verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bókun fundar

Sveitarstjórn samþykkir tillögu að deiliskipulagi Blöndustöðvar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að auglýsinga hana í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

  1. Ósk um umsögn vegna fyrirhugaðrar virkjunar Fossár og Langavatnsár með vatnsmiðlun í Langavatni í Húnabyggð

Á 134. fundi Byggðarráðs þann 21. janúar 2026 var erindi frá Umhverfis-og orkustofnun dags. 9. janúar 2026 vísað til Skipulags-og samgöngunefndar. Óskað er eftir umsögn vegna leyfis til rannsókna vegna fyrirhugaðrar virkjunar Fossár og Langavatnsár með vatnsmiðlun í Langavatni í Húnabyggð. Fyrir liggur umsögn heimastjórnar fyrrum Skagabyggðar.

Skipulags- og samgöngunefnd ákveður að vísa málinu til sveitarstjórnar. Samþykkt með fjórum atkvæðum ZAL situr hjá.

Bókun fundar

Sveitarstjórn gerir ekki athuga­semdir við málið en tekur fram að um er að ræða ósk um umsögn um rannsóknarleyfi og ekki annað.

  1. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030

Tekin fyrir tillaga að breyting á aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 eftir auglýsingu. Aðalskipulagsbreytingin var auglýst frá 16.12.2025 til 27.01.2026. Á auglýsingatíma bárust umsagnir/athugasemdir frá Minjastofnun Íslands, Rarik og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra. Ekki voru gerðar athugasemdir við tillöguna.

Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og málsmeðferð verði skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bókun fundar

Sveitarstjórn samþykkir tillöguna.

6.Breyting á deiliskipulagi íbúðabyggðar við Sunnubraut á Blönduósi.

Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Sunnubraut eftir auglýsingu. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst frá 16.12.2025 til 27.01.2026. Á auglýsingatíma bárust umsagnir/athugasemdir frá Mílu, Minjastofnun Íslands, Rarik og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra. Ekki voru gerðar athugasemdir við tillöguna.

Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og málsmeðferð verði skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bókun fundar

Sveitarstjórn samþykkir tillöguna.

7.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 25

  1. fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.
  2. Byggðarráð Húnabyggðar 135. fundur

Fundargerð 135. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 65. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 7 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.

  1. Nýtt velferðarsvið Húnabyggðar

Sigurður Erlingsson og Sara Lind Kristjánsdóttir komu inn á fundinn undir þessum lið og fóru yfir starfsemi nýs velferðarsviðs Húnabyggðar. Sigurður fór yfir fjármál nýja sviðsins og hvernig reksturinn lítur út í nýju sviði sveitarfélagsins. Sara fór yfir starfsemina, breytingarnar sem hafa verið í gangi undanfarið misseri og stöðu málaflokksins í byrjun nýs árs.

  1. Heimastjórn – fundargerð fundar 2. febrúar 2026

Fyrir fundinum lá fundargerð heimstjórnar og sveitarstjóra falið að koma á fundi með heimastjórn og verkefnahópi sem er að skipuleggja uppbygginguna í Kálfshamarsvík.

  1. Leikfélag Blönduóss

Fyrir fundinum láu drög að nýjum samningi við leikfélagið sem byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá í samhengi við umræður fundarins. Þá var samþykkt af byggðarráði að klára uppsetningu á drapperingum fyrir leiksviðið.

  1. Trúnaðarskylda og siðareglur kjörinna fulltrúa

Byggðarráð ákveður að máli sem sveitarstjórn vísaði til byggðarráðs um að kanna hvort tilefni sé til þess að fá álit nefndar á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga um ætluð brot á siðareglum sveitarfélagsins sbr. 4. mgr. 29. gr. sveitar­stjórnarlaga verði ekki vísað til nefndarinnar en frekari bókun fundarins verði færð í trúnaðarbók.

  1. Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna

Byggðarráð felur sveitarstjóra að kanna hvort einhverjar hugmyndir sem vinna mætti með í Húnabyggð komi til greina hvað þessi framlög varðar.

  1. Tilboð í verkefni í Stekkjarvík

Lögð fram til upplýsingar útboðstölur vegna frágangs á yfirborði við urðunarstaðinn Stekkjarvík.

  1. Samgönguáætlun 2026-2040

Byggðarráð felur sveitarstjóra að skoða hvort að tilefni sé til að senda inn sérstaka umsögn fyrir hönd Húnabyggðar.

Bókun fundar

Umsögn var send inn fyrir hönd Húnabyggðar.

  1. Færsla Heilbrigðiseftirlitanna frá sveitarfélögum til ríkisins

Lagt fram til kynningar.

  1. Frumvarp til laga um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum

Lagt fram til kynningar.

  1. Norðurslóðaverkefni

Lagt fram til kynningar og byggðarráð samþykkir að Húnabyggð taki þátt í verkefninu.

  1. Fundargerð 479. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

  1. Greinargerð um endurafmörkun og endurskoðun gerðarflokkunar yfirborðsvatnshlota

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerðir 88. fundar stjórnar SSKS

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 44. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra

Lagt fram til kynningar.

  1. Skýrsla sveitarstjóra

Sveitarstjóri fór yfir verkefni síðasta mánaðar og það sem verið er að vinna með núna.

Getum við bætt efni þessarar síðu?