Sigurður Erlingsson frá Performare og Þorsteinn Þorsteinsson frá KPMG komu inn á fundinn undir liðum 1-3.
EA leggur fram eftirfarandi tillögu:
Ekki hefur verið staðið með eðlilegum hætti að dreifingu gagna fyrir þennan fund. Fundargögnum vegna dagskrárliða 1 og 2 var ekki dreift fyrr en seint á sunnudagskvöldi, eða um 16 klst. áður en fundur hófst. Jafnframt hefur fundargögnum er varða 7. lið ekki verið dreift yfirhöfuð.
Skýrt er kveðið á um hvernig standa skuli að boðun funda og dreifingu gagna í 15. grein sveitarstjórnarlaga. Það er ólíðandi að sveitarstjórnarfulltrúum sé ekki gefið ráðrúm til að kynna sér gögn. Með þessu verklagi er komið í veg fyrir að fulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála. Í ljósi þessa er lagt til að liðir 1, 2 og 7 verði teknir af dagskrá.
Tillagan var borin upp og samþykkt með átta atkvæðum, einn sat hjá (GHJ).
Dagskrá
- Fjárhagsáætlun 2026
Tekin var fyrir til seinni umræðu fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun áranna 2027-2029. Áætlað er að heildartekjur A og B hluta verði 2.883 milljónir kr. á árinu 2026, rekstrargjöld 2.423 milljónir kr. og afskriftir rúmar 161 milljónir kr. Fjárhagsáætlun 2026 gerir ráð fyrir að rekstur A og B hluta verði jákvæður um tæpar 299 milljónir kr. fyrir fjármagnsliði. Fjárhagsáætlun 2026 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A og B hluta verði jákvæð um rúmar 124 milljónir að teknu tilliti til fjármagnsliða. Veltufé frá rekstri A og B hluta er áætlað rúmar 362 milljónir á árinu 2026, en afborganir langtímalána tæpar 274 milljónir kr.
Áætlað er að nýjar lántökur á árinu 2026 nemi 150 miljóna kr. Fjárfestingar A og B hluta eru áætlaðar 400 milljónir króna á árinu 2026 sem er aðeins hærra en á yfirstandandi ári. Verkefnin verða svipuð þ.e. uppbygging og viðhald þeirra grunninnviða sem sveitarfélagið er með til að veita þá þjónustu sem sveitarfélaginu ber. Stærri verkefni eru t.d. vatnsveitu- og fráveituverkefni, gatnagerð, framkvæmdir við fasteignir o.fl.
Útgönguspá ársins 2025 var gerir ráð fyrir tapi upp á um 50 milljónir króna en fjárhagsáætlun ársins 2025 gerði ráð fyrir um 19 milljóna króna tekjuafgangi.
Umræður urðu um fjárhagsáætlunina og sveitarstjórn samþykkir samhjóða fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun Húnabyggðar 2027-2029.
JG, EA og SÞS settu fram eftirfarandi bókun
Þrátt fyrir að okkar áherslur í fjárfestingaráætlun 2026 hafi ekki hlotið brautargengi meirihlutans, berum við þá von í brjósti að ný sveitarstjórn sem tekur við stjórn sveitarfélagsins í júní 2026 taki tillit til okkar sjónarmiða við framkvæmd fjárfestinga á árinu 2026 og stiðjum við því þá fjárhagsáætlun sem hér er lögð fyrir.
- Gjaldskrá fasteignagjalda Húnabyggðar 2026
Sveitarstjón hefur ákveðið að þær hækkanir sem koma á íbúa vegna hækkunar fasteignamats sem er 10,6% verði ekki fleytt óbreyttum út í álögur sveitarfélagsins á íbúa. Í stað þessara hækkana þ.e. 10,6% verði hækkanirnar að jafnaði 3,8%. Þetta er gert með eftirfarandi breytingum:
- Álagning A hluta fasteignaskatts verður 0,45% í stað 0,5%.
- Álagning C hluta fasteignaskatts verður 1,58% í stað 1,65%.
- Sorpgjöld hækka um 17,9%.
- Fráveitugjöld reiknast nú út frá fastagjaldi og stærð ibúðarhúsa í fermetrum. Sömu reglur gilda nú óháð staðsetningu.
- Lóðarleigugjöld verða nú 1,88% í stað 2,0% af fasteignamati lóðar.
- Vatnsgjald verður nú 0,258% í stað 0,275% af fasteignamati lóðar.
Með þessu móti verður heildarhækkun fasteignagjalda að jafnaði 3,8% þó sorpgjöld hækki hlutfallslega meira þar sem enn er verið að vinna að því að sveitarfélagið greiði ekki með sorphirðu.
Gjaldskrá um fasteignagjöld 2026 var borin upp með áorðnum breytingum og samþykkt samhljóða.
- Gjaldskrár Húnabyggðar 2026
Gjaldskrár hækka almennt um 3,8% og eins og síðustu ár hefur verið tekið til í gjaldskrám sveitarfélagsins til einföldunar, einstaka liðir lagfærðir. Þá hafa einstaka liðir verið uppfærðir um fram 3,8% vegna þess að þeir hafa ekki verið uppfærðir síðustu ár.
Eftirfarandi gjaldskrár Húnabyggðar voru lagðar fram til formlegrar samþykktar sveitarstjórnar Húnabyggðar:
- Gjaldskrá um fráveitu
- Gjaldskrá um vatnsveitu
- Gjaldskrá félagsheimila
- Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar
- Gjaldskrá um hunda- og kattahald
- Gjaldskrá minka- og refaveiða
- Gjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa
- Gjaldskrá slökkviliðs Húnabyggðar
- Gjaldskrá úrgangsmála
- Gjaldskrá úrgangsmála fyrrum Skagabyggðar
- Gjaldskrá Þjónustumiðstöðvar
Ofangreindar gjaldskrár voru bornar upp og samþykktar samhljóða.
- Byggðarráð Húnabyggðar 129. fundur
Fundargerð 129. fundar byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 62. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 6 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Mál frá fjallskilanefnd
Hilmar Birgisson og Helgi Páll Gíslason komu á fundinn undir þessum lið. Rædd voru fjallskil á Sauðadal og samning sem þar er í gildi. Ýmiskonar sjónarmið eru nú uppi um þetta samkomulag sem gert var fyrir mörgum árum og samkomulag er um í fjallskiladeildum að þurfi að endurskoða. Byggðarráð þakkar formönnum fjallskiladeilda Auðkúluheiðar og Grímstungu- og Haukagilsheiða fyrir upplýsingarnar og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og fá lögfræðiálit á þeim álitamálum sem eru í þessu máli.
- Mál Húnavalla ehf. gegn Fasteignum Húnavatnshrepps ehf.
Lögð fram til kynningar dómsniðurstaða Landsréttar sem staðfesti að hinn áfrýjaði dómur skal vera óraskaður. Áfrýjandi, Húnavellir ehf., greiði stefnda, Fasteignum Húnavatnshrepps ehf., 800.000 krónur í málskostnað fyrir Landsrétti.
- Samstarf við leigufélagið Bríet
Lögð fram til kynningar drög að viljayfirlýsingu milli Bríetar leigufélags og Húnabyggðar um samstarf og uppbyggingu nýrra íbúða á Blönduósi.
- Þjónustukjarni fyrir fólk með fötlun
Lögð fram til kynningar fundargerð af fundi með Húsbyggingarsjóði Þroskahjálpar sem og útskýringar á reglum HMS um lánveitingu vegna byggingar þjónustukjarna fyrir fólk með fötlun. Umræður urðu um málið og sveitarstjóra falið að afla svara miðað við umræðu fundarins.
- Samningar Húnabyggðar
Farið var yfir samninga Húnabyggðar sem þarfnast skoðunar t.d. vegna þess að þeir renna út um áramótin. Byggðarráð vísar samningi um félagsheimilið á Blönduósi til stjórnar Félagsheimilisins á Blönduósi ehf. Umræðu um samning um tjaldsvæðið er vísað til næsta fundar byggðarráðs.
- Erindi frá Húnabyggð til Innviðaráðuneytis vegna samgöngumála sveitarfélagsins
Svar hefur borist frá Innviðaráðuneytinu vegna fyrirspurna Húnabyggðar um stærstu samgönguverkefni Vegagerðarinnar í sveitarfélaginu. Svörin voru eftirfarandi:
- Vatnsdalsvegur: Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins var tekin ákvörðun hjá Vegagerðinni að hanna lengri kafla í upphafi fyrst og fremst að viðbótarhönnun kostaði tiltölulega lítið, þar sem undirlagið var svipað. Vegagerðin mun nýta það svigrúm sem hagstætt tilboð í verkefnið gaf til þess að stækka verkefnið þannig að fjármagnið nýtist.
- Skagavegur: Skagavegur er í hönnun og undirbúningi. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins kom ábending frá sveitarfélaginu um fýsileika þess að færa veglínu á ákveðnum kafla í verkinu. Vegagerðin hafi fallist á þá athugasemd og telur breytinguna koma verkinu til góða. Ný veglína kallar hins vegar á auknar jarðvegsrannsóknir og lengir því undirbúningstímann. Útboð tefst því um nokkra mánuði og er áætlað í lok ársins eða byrjun þess næsta.
- Svínvetningabraut: Næstu tengivegaverkefni á Norðursvæði Vegagerðarinnar skv. tengivegaáætlun eru áætluð í þessari röð Svarfaðardalsvegur, Sæmundarhlíðarvegur og Hegranesvegur, Víðidalsvegur og Svínvetningabraut. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að framkvæmdir við Svínvetningabraut muni hefjast innan fyrsta tímabils, þ.e. árin 2026-2030.
Byggðarráð vill fyrst taka fram að það sé ótækt að Svínvetningabraut sé númer fimm í röðinni af vegum á Norðursvæði. Svínvetningabraut er varaleið fyrir þjóðveg 1 ásamt því að loforð um vegabætur á Svínvetningabraut eru orðin meira en 30 ára gömul. Þá spilar Svínvetningabraut lykilhlutverk í uppbyggingu byggðarlínu HH3 sem nú á að ráðast í og er byggðarlínan meðfram Svínavetningabraut fyrsti áfangi þess verkefnis. Byggðarráð leggur áherslu á að svörin eru óskýr og gefa tilefni til þess að efast um að verkefnin verði sannarlega sett af stað á tilsettum tíma. Byggðarráð leggur þó traust á að loforð ráðuneytisins um Vatnsdalsveg og Skagaveg standi.
Bókun fundar
Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs.
- Erindi frá SSNV
Fyrir fundinum lá fyrirspurn frá SSNV um hvort að sveitarfélagið ætti fasteign sem hentar sem úrræði sem hentar börnum með sértækar þarfir. Byggðarráð felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um stærð þeirrar starfsemi sem um ræðir.
- Erindi frá Björgunarfélaginu Blöndu
Byggðarráð samþykkir ósk Björgunarfélaginu Blöndu um að halda brennu og flugeldasýningu um áramótin.
- Erindi frá Lárusi Jónssyni
Grímur Rúnar Lárusson vék af fundi undir þessum lið. Byggðarráð frestar afgreiðslu málsins fram til næsta fundar og felur sveitarstjóra að vinna málið milli funda í samræmi við umræður fundarins.
- Samstarfssamningur um svæðisbundið farsældarráð á Norðurlandi vestra
Lagt fram til kynningar.
- Skýrsla og raforkumál á Norðurlandi vestra
Lagt fram til kynningar.
- Samband íslenskra sveitarfélaga tekur við söfnun fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2026
Lagt fram til kynningar.
- Niðurstaða stýrihóps um eignarhlut sveitarfélaga í hjúkrunarheimilum
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 989. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
- 41. fundargerð fagráðs um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð fundur Markaðsstofunnar um ferðamál 21.11.2025
Lagt fram til kynningar.
- Fjárhagsáætlun 2026
Byggðarráð fer fram á að uppfærðar gjaldskrár verði lagðar fyrir næsta fund. Þá felur byggðarráð sveitarstjóra að útbúa handbók fjárhagsáætlunar 2026 og hafa hana tilbúna við seinni umræðu fjárhagsáætlunar Húnabyggðar 2026.
- Byggðarráð Húnabyggðar 130. fundur
Fundargerð 130. fundar byggðarráðs lögð fram til staðfestingar á 62. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Eftirfylgni vegna öryggismála á skólalóð Húnaskóla
Þórhalla Guðbjarsdóttir og Elvar Jóhannesson komu inn á fundinn undir þessum lið þar sem farið var yfir öryggismál á skólalóð Húnaskóla fyrir ofan Íþróttamiðstöðina.
Settar hafa verið strangari kröfur um umgengni á svæðinu á skólatíma og tillaga fundarins er að skoðað verði að setja upp varnargirðingu þar sem mesta hætta skapast á því að börn fari sér að voða.
- Samningur við Textílmiðstöðina
Farið var yfir þá samninga sem nú gilda og þær spurningar sem byggðarráð hefur er varðar gerð nýs samnings. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
- Erindi frá Farskólanum
Byggðarráð samþykkir árlegt framlag til Farskólans sem er 242.000kr.
- Lóðarumsókn
Byggðarráð samþykkir umsókn um lóð í Brautarhvammi 6.
Bókun fundar
Vakin er athygli á því að afgreiðsla byggðarráðs er fullnaðarafgreiðsla þessa máls.
- Samningur um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 133. fundar stjórnar SSNV
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 42. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra
Lagt fram til kynningar.
- Fjármögnun stafræns samstarfs 2026
Lagt fram til kynningar.
- Gjaldskrár Húnabyggðar
Lagt var fram til kynningar yfirlit yfir gjaldskrárhækkanir einstakra gjaldskráa Húnabyggðar 2026. Byggðarráð samþykkir að hækka taxta tímagjalds starfsmanna Þjónustumiðstöðvar um 3,8% sem gerir 9.130kr. í dagvinnu og 16.440kr. í yfirvinnu (fjárhæðir án virðisaukaskatts). Þessi hækkun er gerð til þess að tryggja að þessi gjaldskrá hækki í samræmi við verðlagsþróun.
- Fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2026
Eftirfarandi styrkir sem ekki eru samningsbundnir eru samþykktir og tekið tillit til í fjárhagsáætlun 2026:
- Sóknarnefnd Þingeyrasóknar 1.000.000kr. vegna Þingeyrakirkjugarðs.
- Anna Fjóla Gísladóttir og Gísli B. Björnsson 100.000kr. vegna gerð bókar um fjárréttir Íslands.
- Stjórnmálasamtök í Húnabyggð 550.000kr. á árinu 2026. Framlagið er hærra á árinu 2026 þar sem að það er kosningaár, en framlagið hefur undanfarin ár verið 350.000kr. Framlagið er greitt samkvæmt reglum Húnabyggðar þar um.
Umræða varð um fjárhagsáætlun árins 2026 en engar breytingar eru lagðar til og byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og vísar henni til seinni umræðu í sveitarstjórn.
- Skýrsla sveitarstjóra
Sveitarstjóri fór yfir starfsemina síðasta mánuðinn en skrifstofan hefur verið upptekin við gerð fjárhagsáætlunar sem og að flytja í nýtt húsnæði. Árið hefur verið viðburðarríkt með miklum áskorunum í rekstrinum sem stafað hafa að utanaðkomandi áhrifum. Þrátt fyrir það hefur reksturinn gengið vel, framkvæmdastigið verið hátt, nýtt velferðarsvið komið inn í starfsemi Húnabyggðar og almennt mikið að gerast. Nýjar fréttir um uppbyggingu gefa tilefni til jákvæðni og bjartsýni og við lítum björtum augum á framtíðina.
