Dagskrá
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir heimild fundarins til að bæta einu máli á dagskrá. Tvö erindi hafa borist annað frá frá Jón Gíslasyni fyrir hönd landeigenda Gilhaga, Sjálfseignarstofnunar Grímstungu-og Haukagilsheiðar, Veiðifélags Grímstungu-og Haukagilsheiðar, auk Fjallskilanefndar þessarra sömu heiða og hitt frá Fjallskilastjórn Grímstungu- og Haukagilsheiða er varðar veg upp á Haukagilsheiði. Var það samþykkt með átta atkvæðum og einn var á móti (GRL) og verður mál nr. 12 á fundinum.
- Viðaukar
Fyrir fundinum láu viðaukar 3-4 sem kynntir voru af Jóni Ara Stefánssyni og skilgreinast á eftirfarandi hátt.
Viðauki 3:
- Endurbætur á þaki Heimilisiðnaðarsafns. Áætlaður kostnaður er 1.850 þús. kr. sem færist til gjalda á menningarmál og er mætt með lækkun á handbæru fé.
- Kaup á jarðgerðarvél en áætluð eignfærsla nemur 23.000 þús. kr. sem er mætt með lækkun á handbæru fé. Áætluð afskrift af fjárfestingunni nemur 1.150 þús. kr. á árinu 2025.
- Kaup á gámaeiningum fyrir leikskóla, en áætluð eignfærsla nemur 28.315 þús. kr. sem er mætt með lækkun á handbæru fé. Áætluð afskrift af fjárfestingunni nemur 354 þús. kr. á árinu 2025.
Viðauki 4:
Húsfélagið að Þverbraut 1 hefur ákveðið að ráðast í endurnýjun á þaki hússins. Húnabyggð er einn af eigendum hússins og nemur hlutur sveitarfélagsins í framkvæmdinni 5.100 þús. kr. miðað við fyrirliggjandi tilboð. Framkvæmdinni er mætt með lækkun á handbæru fé. Áætluð afskrift af fjárfestingunni nemur 64 þús. kr. á árinu 2025.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða viðauka 3 og 4.
- Lántaka Húnabyggðar
Fyrir fundinum láu gögn um tvö lán sem fyrirhugað er að Húnabyggð taki. Sigurður Erlingsson fór yfir lánin og skilmála þess.
Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi 10.06.2025 að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 50.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til framkvæmda og uppbyggingar á nýju stjórnsýsluhúsi sveitarfélagsins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Pétri Arasyni, sveitarstjóra, kt. 270770-4879 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Húnabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns
Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkir einnig hér með á sveitarstjórnarfundi 10.06.2025 að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 150.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til endurfjármögnunar afborgana á eldri lánum sveitarfélagsins hjá Lánasjóðnum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Pétri Arasyni, sveitarstjóra, kt. 270770-4879 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Húnabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 300 milljónum í heildar lántöku og mun framhaldið hvað varðar lántökur verða ákveðið í haust.
Bókun fundar
Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkir samhljóða lántöku tveggja lána frá Lánasjóði íslenskra sveitarfélaga sem lýst er hér að ofan og felur sveitarstjóra að ganga frá lántökunni fyrir hönd Húnabyggðar.
- Samstarfssamningur um félagsþjónustu
Fyrir fundinum láu drög að samningi um samstarf um félagsþjónustu við sveitarfélagið Skagaströnd.
Bókun fundar
Sveitarstjórnn samþykkir samhljóða að vísa málinu til seinni umræðu á næsta fundi sveitarstjórnar.
- Samstarfssamningur um tónlistarskóla
Fyrir fundinum láu drög að samstarfsamningi milli Skagastrandar og Húnabyggðar um rekstur tónlistarskóla sem Skagaströnd hefur tekið yfir.
Bókun fundar
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða samninginn eins og hann kemur fyrir og felur fulltrúum Húnabyggðar í slitastjórn byggðarsamlaganna að kynna niðurstöðu fundarins.
- Nefndir og ráð Húnabyggðar
Til umfjöllunar eru breytingar á nefndarskipan Húnabyggðar. Forseti sveitarstjórnar, Guðmundur Haukur Jakobsson, lagði fram eftirfarandi tillögur á nefndarskipan:
Kosningar í byggðarráð til eins árs samkvæmt samþykktum Húnabyggðar, kjör þriggja aðalfulltrúa og þriggja varafulltrúa í Byggðarráð Húnabyggðar.
Jón Gíslason bar fram tillögu um að fram færi hlutfallskosning í byggðarráð og lagði fram lista sem er skipaður Jóni Gíslasyni og Elínu Aradóttur.
Forseti, Guðmundur Haukur Jakobsson bað um fundarhlé 15:39.
Fundur hófst aftur 16:06 og Guðmundur Haukur Jakobsson lagði fram lista meirihluta sem skipaður er Auðunni Sigurðssyni, Ragnhildi Haraldsdóttur, Zophonías Lárussyni, Grímur Lárusson, Guðmundur Haukur Jakobsson og Ásdís Ýr Arnardóttir.
Fram fór leynileg kosning sem fór þannig að listi meirihluta fékk sex atkvæði og listi Jóns og Elínar fékk þrjú atkvæði.
Byggðarráð skipa því:
- Auðunn Sigurðsson
- Ragnhildur Haraldsdóttir
- Jón Gíslason
Til vara eru:
- Zophonías Lárusson
- Grímur Lárusson
- Elín Aradóttir
Fram kom tillaga um skipun eftirfarandi aðila sem formann byggðarráðs:
- Auðunn Steinn Sigurðsson B-lista.
Tillagan var borin undir atkvæði og var samþykkt með átta atkvæðum, SÞS sat hjá.
Fram kom tillaga um skipun eftirfarandi aðila sem varaformann byggðarráðs:
- Ragnhildur Haraldsdóttir D-lista.
Tillagan var borin undir atkvæði og var samþykkt með átta atkvæðum, SÞS sat hjá.
Elín Aradóttir bað um fundarhlé 16:16.
Fundur hófst aftur klukkan 16:23
Sverrir Þór Sverrisson tók fram ósk G-lista um að listinn fengi áheyrnarfulltrúa:
- Fyrir G-lista í Byggðarráði Húnabyggðar er Sverrir Þór Sverrisson.
Fram kom breytingatillaga um skipun fræðslunefndar:
- Í stað Birgis Þór Haraldssonar komi Jón Árni Magnússon sem nýr varamaður í fræðslunefnd.
Tillagan var borin undir atkvæði og var samþykkt með sex atkvæðum, þrír (EA, JG og SÞS) sátu hjá.
Fram kom breytingatillaga um skipun Skiplags- og samgöngunefndar:
- Í stað Birgis Þór Haraldssonar komi Sævar Björgvinsson sem nýr aðalmaður í Skipulags- og samgöngunefnd.
- Í stað Sævars Björgvinssonar komi Jón Árni Magnússon sem nýr varamaður í Skipulags- og samgöngunefnd.
Tillagan var borin undir atkvæði og var samþykkt með sex atkvæðum, þrír (EA, JG og SÞS) sátu hjá.
Fram kom breytingatillaga um skipun landbúnaðarnefndar:
- Í stað Birgis Þór Haraldssonar komi Sindri Páll Bjarnason sem nýr aðalmaður í landbúnaðarnefnd.
- Í stað Sindra Bjarnasonar komi Jón Árni Magnússon sem nýr varamaður í landbúnaðarnefnd.
Tillagan var borin undir atkvæði og var samþykkt með með sex atkvæðum, þrír (EA, JG og SÞS) sátu hjá.
- Erindi frá Elínu Aradóttur
Upplýsingamiðlun og dreifing gagna til fulltrúa í fastanefndum og sveitarstjórn Húnabyggðar
Fyrir fundinum lá erindi frá Elínu Aradóttur um að sett verði upp vefgátt á vegum sveitarfélagsins þar sem gögn sveitarstjórnar, byggðaráðs og allra fastanefnda verði flokkuð og vistuð með skipulögðum hætti. Miðað skuli við að vefsvæði þetta verði virkt fyrir fund sveitarstjórnar í ágúst 2025.
Elín Aradóttir lagði fram eftirfarandi bókun
Á undanförnum misserum hefur ítrekað verið rætt að koma þurfi upp upplýsingagátt fyrir sveitarstjórnarfólk og fulltrúa í fastanefndum Húnabyggðar. Tilgangur þessa væri að færa aðgengi að og dreifingu fundargagna til betri vegar, en þessu hefur verið ábótavant. Það er því sérstakt gleðiefni að á föstudaginn síðastliðinn var sveitarstjórnarfulltrúum tilkynnt um að nú væri vefgátt komin í gagnið og lýkur þar með margra ára undirbúningsferli þessa framfaramáls.
Ragnhildur Haraldsdóttir óskaði eftir fundarhléi klukkan 16:32.
Fundurinn hófst aftur 16:43.
Bókun oddvita
Oddviti tekur undir erindið og bendir á að þetta verkefni sé þegar í vinnslu og að verið sé að vinna að innleiðingu nýs kerfis, WorkPoint, sem hjálpa mun með utanumhald gagna sveitarfélagsins. Hvenær þetta verkefni með tilliti til skilvirkrar fundargáttar verður tilbúið er ekki alveg ljóst á þessari stundu en verkefnið hefur forgang og verður klárað eins hratt og mögulegt er.
- Byggðarráð Húnabyggðar 106. fundur
Fundargerð 106. fundar Byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 6 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Fráveitumál Húnabyggðar
Sigurður Erlingsson kom inn á fundinn vegna erindis frá Jóni Gíslasyni H-lista og fór yfir kostnaðargrundvöll rotþróakerfis fráveitu Húnabyggðar. Núverandi gjöld standa undir föstum kostnaði kerfisins en ekki nýframkvæmdum.
Bókun frá Jóni Gíslasyni fulltrúa H-lista
Við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2025 var lagt til grundvallar breyttu fyrirkomulagi á rotþróargjaldi í dreifbýli að kostnaður vegna viðhalds rotþróa 2024 hefði verið 10,5 milljónir auk kostnaðar við losun. Því var ákveðið að leggja 0,25% gjald á fasteignaskattsstofn íbúðarhúsnæðis í dreifbýli sem skilar tæpum 12 milljónum í tekjur. Eftir fyrirspurn mína um nákvæma sundurliðun þessa kostnaðar vegna 2024 er byggðaráð upplýst um að kostnaður vegna losunar sé 2,8 milljónir og kostnaður vegna viðhalds 4,7 milljónir eða samtals 7,5 milljónir.
Í þessu tilfelli var verið að ákveða margfalda hækkun rotþróagjalds í dreifbýlinu sem byggði á röngum forsendum.
Bókun meirihluta
Meirihluti sveitarstjórnar vill benda á að tekið hefur verið fyrsta skref við gjaldtöku varðandi fráveitumál í dreifbýli en ljóst er að langt bil er milli gjalda og tekna í fráveitukerfi dreifbýlis.
- Framlag til Textílmistöðvar
Jöfnunarsjóður hefur lagt inn á Húnabyggð hluta þeirrar upphæðar sem eyrnamerktur var Umhverfisakademíu á sínum tíma en ákveðið hefur verið að færa yfir í Textílmiðstöð Íslands. Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá samstarfssamningi milli Húnabyggðar og Textílmiðstöðvarinnar vegna þessa og jafnframt að sameina í einn samning allt samstarf aðilanna. Þegar samningurinn er tilbúinn skal hann lagður fyrir byggðarráð og í framhaldinu er hægt að greiða út styrkinn.
- Framkvæmdir við Heimilisiðnaðarsafnið
Byggðarráð samþykkir að fara í framkvæmdir á þaki Heimilisiðnaðarsafnsins sem liggur undir skemmdum. Áætlaður verkkostnaður er um 2 milljónir og byggðaráð vísar gerð á viðauka við fjáhagsáætlun vegna þessa til næsta sveitarstjórnarfundar.
- Girðingamál Húnabyggðar
Farið var yfir þetta mál á byggðarráðsfundi 16. apríl þar sem staðfest var að þessi vinna verður með sama sniði og síðustu ár. Þetta verklag felur í sér að að starfsmenn Húnabyggðar í samstarfi við verktaka sjá um vinnuna. Byggðarráð bendir á að í þeim tilfellum sem verktakar eru notaðir, sem er um helmingur þess kostnaðar sem til fellur, verði tryggt að verðkannanir séu gerðar og/eða að tilboða sé aflað.
Bókun frá minnihluta
Fulltrúar minnihlutans fordæma þau vinnubrögð byggðaráðs að taka ekkert tillit til samhljóða ályktunar landbúnaðarnefndar um fyrirkomulag á viðhaldi girðinga.
Bókun meirihluta
Meirihluti sveitarstjórnar vill benda á að girðingamál heyra ekki undir Landbúnaðarnefnd samkvæmt erindisbréfi heldur heyra þau undir fjallskilanefnd.
Bókun minnihluta
Minnihluti hafnar því að girðingarmál séu ótengd landbúnaði í Húnabyggð. Viðhald og skipulag afréttagirðinga er mikið hagsmunamál fyrir bændur í sveitarfélaginu og getur því ekki verið óviðkomandi landbúnaðarnefnd eða undanskilið samráði við hagaðila. Ef erindisbréf landbúnaðarnefndar undanskilur þetta verkefni hafa orðið á mistök við skilgreiningu hlutverks nefndarinnar, sem ber að leiðrétta hið fyrsta.
Bókun meirihluta
Meirihluti sveitarstjórnar vill þá jafnframt benda á að girðingamál og verkefni er varða girðingarlög nr. 135/2001 eru heldur ekki á verksviði landbúnaðarnefndar samkvæmt 5. tl. A-liðar 1. mgr. 47. gr samþykkta um stjórn og fundarsköp Húnabyggðar með síðari breytingum. Hér virðast því ekki hafa orðið mistök heldur einfaldlega ætlunin sú að fjallskilanefndir færu með þennan málaflokk.
- Skipurit Húnabyggðar
Farið var yfir teikningar af skipuriti Húnabyggðar og megin línur þess samþykktar. Sveitarstjóra falið að ganga frá loka útgáfu skipuritsins þannig að leggja megi málið fyrir á næsta fundi byggðarráðs.
- Gjaldskrá Sumarfjörs 2025
Fyrir fundinum lá gjaldskrá Sumarförs sem samþykkt var samhljóma í byggðarráði. Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að auglýsa gjaldskrána á heimasíðu sveitarfélagsins.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða gjaldskrá Sumarfjörs.
- Erindi frá Hvöt
Erindi barst frá Hvöt um aðstoð við að kaupa tvö keppnismörk á Blönduósvöll. Húnabyggð hefur útvegað tvö mörk sem sett verða upp um leið og þau koma.
- Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna – erindi frá íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd
Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar sótti um styrk fyrir hönd Húnabyggðar en svör hafa ekki fengist ennþá.
- Útivistarsvæði Húnabyggðar – erindi frá Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd
Byggðarráð vísar því til skipulags- og byggingarfulltrúa að sjá til þess að heildstæð stefnumótun um útivistarsvæði Húnabyggðar verði hluti af nýju aðalskipulagi Húnabyggðar sem nú er í vinnslu. Sveitarstjóra falið að ákveða staðsetningu á ungbarnaleikvelli og koma því verkefni í framkvæmd sem fyrst.
- Rabbabarahátíð
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og ákveður að styrkja framtakið um 500.000kr. Þá er jafnframt gefið leyfi fyrir notkun á Hilllebrandtshúsi og túninu þar fyrir fram að því gefnu að húsið sé ekki í útleigu á sama tíma.
- Torfærukeppni á Húnavöku
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti erindið og leyfir þennan viðburð eins og áður hefur verið. Sveitarstjóra falið að upplýsa hestamannafélagið Neista og skotfélagið Markviss um viðburðinn.
- Fyrirspurn vegna Blöndudalsvegar
Lagt fram til kynningar erindi vegna slæms ástands vegarins í austanverðum Blöndudal. Húnabyggð hefur komið athugasemdunum á framfæri við Vegagerðina sem ber alfarið ábyrgð á þessum vegi og fengið þau svör að málið verði skoðað. Húnabyggð hefur á undaförnum misserum barist fyrir vegabótum á þessum og öðrum vegum sem tengja byggð við heiðarnar. Fyrir utan að ástand þessara vega sé algjörlega óviðunandi fyrir íbúa sem þar búa er útséð með að uppbygging orkumannvirkja á heiðunum mun aldrei verða án verulegra vegabóta á þessum vegum.
- Þátttaka í Evrópskri Samgönguviku
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 123. fundar stjórnar SSNV
Lagt fram til kynningar.
- Fagráð - málefni fatlaðs fólks – 35
Lagt fram til kynningar.
- Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2024
Lagt fram til kynningar.
- Erindi frá Elínu Aradóttur
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið sem snýr m.a. að setja upp skilti við Þrístapa um ferðamannastaði í Húnabyggð o.fl. Skoðað verður hvort að mögulegt sé að hrinda þessu í framkvæmd í sumar. Sveitarstjóra falið að skoða hvaða möguleikar eru fyrir styrkumsóknum fyrir þetta verkefni.
Elín Aradóttir vék af fundi undir umræðu um lið 17.
Ragnhildur Haraldsdóttir óskaði eftir fundarhléi 16:57 og fundur hófst aftur 17:07.
- Skipulags- og samgöngunefnd Húnabyggðar 38. fundur
Fundargerð 38. fundar skipulags- og samgöngunefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liðir 2, 3, 4 og 6 þarfnast sérstakrar afgreiðslu Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga
Áframhaldandi vinna við nýtt aðalskipulag Húnabyggðar.
Farið var yfir drög af landnýtingarflokkum í þéttbýli og dreifbýli ásamt merkingum á gönguleiðum ofl.
- Ósk um verulega breytingu á Aðalskipulagi Skagabyggðar 2010 - 2030
Tekin fyrir tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Skagabyggðar 2010 - 2030 dags. 9. maí s.l. frá Landslagi ehf.
Sveitarfélagið hyggur á breytingu á aðalskipulagi að beiðni Vegagerðarinnar sem mun heimila aukna efnistöku úr efnistökusvæðinu Skeggjastaðir-ES12 við Skagaveg (745) úr 30.000m3 í 450.000m3. Gert er ráð fyrir því að efnið verði nýtt í viðhald og endurbætur á vegum í sveitarfélaginu. Samhliða er unnið að könnun á matsskyldu þar sem framkvæmdin fellur innan viðmiða 1. viðauka í flokki B skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Erindið var síðast tekið fyrir á fundi skipulags- og samgöngunefndar þann 19. mars s.l. þar sem samþykkt var að skipulagslýsing skyldi kynnt íbúum og hagsmunaaðilum. Skipulagslýsingin var til umsagnar á skipulagsgátt frá 11. apríl til og með 2. maí s.l. og hefur verið tekið til þeirra athugasemda sem bárust við mótun vinnslutillögu.
Skipulags- og samgöngunefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna vinnslutillögu fyrir opnu húsi og leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
- Ósk Vegagerðarinnar um breytingar á aðalskipulagi Húnavatnshrepps vegna efnistökusvæðis við Hnjúk í Vatnsdal.
Tekin fyrir tillaga að breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 dags. 9. maí s.l. frá Landslagi ehf.
Sveitarfélagið hyggur á breytingu á aðalskipulagi að beiðni Vegagerðarinnar vegna skilgreiningu efnistökusvæðis að Hnjúki í Vatnsdal. Áformin fela í sér landslagsmótun fyrir nýja landbúnaðarbyggingu og nýtingu jarðefna sem falla til við framkvæmdina. Um er að ræða 10.000 m3 efnis á um 10.000 m2 svæði. Erindið var síðast tekið fyrir á fundi skipulags- og samgöngunefndar þann 1. apríl s.l. þar sem samþykkt var að skipulagslýsing skyldi kynnt íbúum og hagsmunaaðilum. Skipulagslýsingin var til umsagnar á skipulagsgátt frá 11. apríl til og með 2. maí s.l. og hefur verið tekið til þeirra athugasemda sem bárust við mótun vinnslutillögu.
Skipulags- og samgöngunefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna vinnslutillögu fyrir opnu húsi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða tillögu um breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps og að hún verði auglýst í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
- Breyting á aðalskipulagi gamla bæjarins og Klifamýrar
Tekin fyrir skipulagslýsing dags. 28. apríl s.l. vegna breytingar á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010 - 2030 fyrir gamla bæjarkjarnann og Klifamýri á Blönduósi.
Í breytingu á aðalskipulagi verða gerðar breytingar á landnotkun og skilgreint miðsvæði um gamla bæjarkjarnann með ákvæðum um vernd byggðarinnar og stefnu fyrir útlit og ásýnd bygginga á svæðinu. Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi verður stefnumótandi fyrir deiliskipulag sem unnið er samhliða breytingu á aðalskipulagi. Skipulagslýsing er í samræmi við lýsingu deiliskipulags fyrir svæðið sem kynnt var þann 28.10.2024 til 28.11.2024.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða tillögu um að skipulagslýsingin verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Framkvæmdir og gatnagerð
Á 102. fundi byggðarráðs þann 10. apríl 2025 var skipulags-og samgöngunefnd falið að skoða umferðaröryggi á Melabraut við íþróttahús og Húnabraut 5.
Skipulags- og samgöngunefnd fór yfir málið og verða tillögur um breytingar lagðar fyrir næsta fund nefndarinnar.
ZAL vék af fundi undir þessum lið kl. 16:49
- Umsókn um byggingarleyfi við Brimslóð 8
Með innsendu erindi óskar Inga Elsa Bergþórsdóttir fyrir hönd Brimslóðar ehf eftir byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á rörasteypunni við Brimslóð 8.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu erindis varðandi útgáfu byggingarleyfis við Brimslóð 8 verði hafnað þar sem að núgildandi aðalskipulag svæðisins leyfir ekki slíka framkvæmd.
Verið er að vinna deiliskipulag fyrir umrætt svæði og jafnframt breytingar á aðalskipulagi svæðisins. Það er yfirlýstur vilji sveitarfélagsins að hverfisvernd verði á gamla bænum og að ásýnd byggðarinnar verði varðveitt. Í deiliskipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag svæðisins sem auglýst var 18. júlí - 18. ágúst 2024, er skýrt tekið fram að unnið skuli að vernd, viðhaldi, endurheimt og styrkingu bæjarmyndar gamla bæjarkjarnans og Klifamýrar. Sveitarfélagið hefur um langt árabil, eða frá árinu 2017 unnið að verndun svæðisins og stefnt er að því að þær fyriráætlanir verði staðfestar í nýju deiliskipulagi og aðalskipulagi.
Nefndin bendir umsækjanda á að innsendar hugmyndir séu í takt við þá vinnu sem unnin hefur verið í nýju deiliskipulagi þar sem endurheimt horfinna húsa hefur verið rædd. Skipulagsfulltrúa er falið að ræða við umsækjanda og fara yfir og kynna stöðu skipulagsvinnunar og fara yfir þá möguleika sem hugmynd umsækjenda gæti haft í nýju deiliskipulagi.
Samþykkt með þremur atkvæðum og einn situr hjá (SÞS).
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir með sex atkvæðum, einn á móti (GRL) og einn sat hjá (SÞS) höfnun erindisins samkvæmt afgreiðslu skipulags- og samgöngunefndar.
ZAL vék af fundi undir umræðu um þennan lið.
- Byggðarráð Húnabyggðar 107. fundur
Fundargerð 107. fundar Byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 3 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með átta atkvæðum en einn (JG) sat hjá.
- Framkvæmdir við Holtabraut
Fyrirliggur að efnisskipta síðasta hluta Holtabrautar að Ennisbraut. Tilboð liggja fyrir og ákveðið hefur verið að ganga til samninga við lægstbjóðanda sem er J.Evensen ehf. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ganga frá samningi og setja framkvæmdir af stað.
- Malbiksframkvæmdir á Blönduós 2025
Fyrir fundinum lá áætlun um malbikunarframkvæmdir ársins 2025. Byggðarráð staðfestir að eftirfarandi verkefni verði farið í:
- Garðarbyggð – lagfæring á horninu við Brekkubyggð 1 og Garðarbyggð 2.
- Brekkubyggð – kaflinn frá Þingbraut að Brekkubyggð 36.
- Hólabraut – kaflinn frá Melabraut að Þjóvegi ásamt gangstétt meðfram götunni að austanverðu.
- Þverbraut – kaflinn á milli Húnabrautar og Mýrarbrautar.
- Holtabraut – kaflinn frá Sunnubraut að Heiðarbraut.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma verkefnunum af stað.
- Framkvæmdir við Þverbraut 1
Húsfélagið við Þverbraut 1 hefur ákveðið að ráðst í viðgerðir á þaki hússins. Húnabyggð sem einn af eigendum hússins samþykkir þessar framkvæmdir fyrir sitt leiti miðað við það tilboð sem liggur fyrir. Hlutur Húnnabyggðar er 32,44% af heildarkostnaði verkefnisins. Áætlaður heildarkostnaður verkefnisins er u.þ.b. 17 milljónir og byggðaráð vísar gerð viðauka við fjáhagsáætlun vegna þessa til næsta sveitarstjórnarfundar.
Bókun fundar
Viðauki vegna þessa máls var afgreiddur undir lið 1 þessa fundar sveitarstjórnar.
- Úrgangsmál Húnabyggðar
Fyrir fundinum lá samantekt PureNorth á mótttöku heyrúlluplasts á árinu 2024. Alls sendi sveitarfélagið frá sér um 30 tonn af heyrúlluplasti sem endurunnin voru á Íslandi og sveitarfélagið dró þannig úr umhverfisáhrifum sinnar úrgagnsmeðhöndlunar sem því nemur.
- Umsögn um sögn um 270. mál er varðar Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Umsögnin lögð fram til kynningar og Í framhaldi af þessari umsögn mætti sveitarstjóri á fund samgöngu- og umhverfisnefndar þar sem grein var gerð fyrir umsögn Húnabyggðar.
- Afnám undanþágu fasteignaskatta á orkumannvirki
Fyrir fundinum lá fundargerð samtaka orkusvetiarfélaga, en á þeim fundi var kynnt sérstaklega sú vinna sem er í gangi hvað varðar breytingar á orkulögum. Þar sem málið er mikið hagsmunamál fyrir íbúa Húnabyggðar er sveitarstjóra falið að senda inn umsögn Húnabyggðar í samráðsgátt stjórnvalda en þar hafa verið birt til umsagnar áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja).
- Erindi frá Dansskóla Menningarfélags Húnaþings vestra
Byggðarráð hafnar beiðni um styrk þar sem sveitarfélagið hefur þegar styrkt skólann hvað varðar starfsemi hans á svæðinu. Sveitarstjóra falið að upplýsa umsækjendur um afstöðu byggðarráðs.
- Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
- Tillaga að starfsleyfi Norðurár
Lagt fram til kynningar.
- Skipulags- og samgöngunefnd Húnabyggðar 39. fundur
Fundargerð 39. fundar skipulags- og samgöngunefndar Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 4 og 5 þarfnast sérstakrar afgreiðslu Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Merkjalýsing vegna Geirastaða
Til afgreiðslu merkjalýsing vegna hnitsetningar Geirastaða.
Nefndin gerir ekki athugasemdir og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
- Merkjalýsing vegna stofnunar spildu úr Beinakeldu 2.
Til afgreiðslu umsókn um stofnun spildu úr landi Beinakeldu 2 ásamt meðfylgjandi merkjalýsingu.
Nefndin gerir ekki athugasemdir og felur skipulagsfulltrúa að stofna umbeðna spildu.
- Umsókn um leyfi til uppsetningar á skilti
Með innsendu erindi óskar Stefán Jónsson fyrir hönd meistaraflokksráðs Kormáks/Hvatar eftir leyfi til uppsetningar á skilti samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Skipulags-og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við staðsetningu á skiltinu en bendir umsækjanda á að samkvæmt 2.5.1.gr byggingarreglugerðar nr. 112/2012, þarf að sækja um byggingarheimild fyrir framkvæmdinni.
- Ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna fimm efnistökusvæða
Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010 - 2030. Tillagan var samþykkt til auglýsingar í sveitarstjórn þann 11. febrúar 2025 og auglýst með athugasemdafresti frá og með 10. mars 2025 til og með 24. apríl 2025. Umsagnir frá 6 umsagnaraðilum bárust á auglýsingatíma.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir umsagnir sem bárust á auglýsingatíma og svör við þeim. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að taka tillit til athugasemda sem bárust við breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010 - 2030 og að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að sjá um málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða tillöguna og að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að sjá um málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Breyting á aðalskipulagi Húnavatnshrepps, Blöndulína 3
Tekið fyrir að nýju erindi um breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 vegna Blöndulínu 3. Um er að ræða 220 kV loftlínu sem liggur um Húnabyggð á um 18 km löngum kafla frá Blöndustöð austur í Skagafjörð um Kiðaskarð niður í Mælifellsdal.
Skipulags- og matslýsing var kynnt frá 27. ágúst - 20. september sl. og umsagnir nýttar við mótun tillögu að breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps.
Fyrir liggur tillaga dags. 2. október 2024 frá Landslagi ehf. með greinargerð, umhverfisskýrslu og uppdrætti.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir að tillagan verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og leggur til við sveitarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða tillöguna og að hún verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
- Framkvæmdir og gatnagerð
Á 102. fundi byggðarráðs þann 10. apríl 2025 var skipulags-og samgöngunefnd falið að skoða umferðaröryggi á Melabraut við íþróttahús og Húnabraut 5.
Skipulags- og samgöngunefnd felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram og jafnframt að skoða staðsetningu á gangbrautum á Húnabraut þar sem að hámarkshraðinn er 30 km/klst.
- Byggðarráð Húnabyggðar 108. fundur
Fundargerð 108. fundar Byggðarráðs Húnabyggðar lögð fram til staðfestingar á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Liður 5 þarfnast sérstakrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um fundargerðina var hún borin upp og staðfest af sveitarstjórn með níu atkvæðum samhljóða.
- Innleiðing Meta-Geta í Húnaskóla
Þórhalla Guðbjartsdóttir kom á fundinn og kynnti áform um að innleiða Meta-Geta kerfið í Húnaskóla, en um er að ræða heildstætt gæðakerfi fyrir innra mat í skólum. Byggðarráð felur skólastjóra Húnaskóla að vinna verkefnið áfram fyrir hönd Húnabyggðar.
- Umsögn um kerfisáætlun Landsnets
Umsögn Húnabyggðar vegna kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034. Húnabyggð fór vel yfir málið og lagði fram nokkuð umfangsmikla umsögn enda miklir hagsmunir fyrir íbúa Húnabyggðar og alls svæðisins í húfi varðandi framtíðar uppbyggingu orkudreifikerfisins.
- Malbikun á Ennisbraut 3
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til skipulags- og byggingarfulltrúa til frekari útfærslu.
- Hestagerði fyrir ofan Blönduós
Byggðarráð vísar málinu til skipulags- og samgöngunefndar þar sem kanna þarf skipulag svæðisins með tillit til erindisins, en mannvirkið mun vera á framtíðar útivistarsvæði þéttbýlis Húnabyggðar og þarf að passa inn í það skipulag.
- Gjaldskrá Húnabyggðar
Byggðarráð samþykkir að hækka núgildandi gjaldskrá Þjónustumiðstöðvar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta uppfæra gjaldskrána.
Bókun fundar
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða breytingar á gjaldskrá Þjónustumiðstöðvar Húnabyggðar.
- Götulokun og bílastæði vegna Rabbabarahátíðar
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið um að skoða lokanir og sérstaklega að ástæða sé til þess að skilgreina bílastæði og auglýsa þau sérstaklega. Byggðaráð vísar útfærslu erindisins til skipulags- og bygggarfulltrúa Húnabyggðar. Byggðarráð tekur fram að um slíkar lokanir gilda ávkeðnar reglur og t.d. þarf að tryggja íbúum aðgengi að húsum sínum o.s.frv.
- Danskur farkennari í Húnaþingi
Byggðarráð samþykkir umsókn fræðslustjóra um að hingað komi danskur farkennari og felur fræðslustjóra að sjá um verkefnið fyrir hönd Húnabyggðar.
- Eftirlitsskýrslur Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra
Fyrir fundinum láu eftirlitsskýrslur vegna þéttbýlis Blönduóss, Húnaskóla og Húnavers. Byggðarráð fór yfir athugasemdirnar og sveitarstjóra er falið að bregðast við þeim athugasemdum sem ekki er búið að bregðast við.
- Styrkur valnefndar um verkefnastyrki til almenningssamgangna á milli byggða
Byggðarráð fagnar að Húnabyggð fékk styrk upp á fimm milljónir frá valnefndinni til að þróa og efla almenningssamgöngur á milli byggðarlaga innan sveitarfélagsins, með áherslu á samgöngur fyrir börn og ungmenni. Byggðarráð væntir þess að þetta geri okkur kleift að útfæra lausn sem gagnast ungmennum Húnabyggðar.
- Prjónagleði
Prjónagleðin var haldin um síðustu helgi eins og verið hefur árlega nú um nokkuð langan tíma en þetta er í fyrsta skipti sem Húnabyggð sér alfarið um rekstur viðburðarins. Dagskráin var svipuð og venjulega með námskeiðum, garnatorgi, kvöldvökum o.s.frv. og mikið af gestum komu í heimókn í Húnabyggð í blíðunni og eitthvað var um að tekið væri í prjóna. Byggðarráð þakkar öllum starfsmönnum og sjálfboðaliðum sem komu að skipulagningu og framkvæmd Prjónagleðinnar og áréttað er að Prjónagleðin 2026 verður haldin helgina 5-7. júní.
- Styrkur vegna uppbyggingar í Kálfshamarsvík
Fyrir fundinum lá undirskrifaður samningur við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna uppbyggingar í Kálfshamarsvík upp á 18.520.000kr. Lagt fram til kynningar.
- Reglur Skagafjarðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks
Byggðarráð frestar ákvörðun um málið og felur sveitarstjóra að óska eftir fundi með leiðtoga fatlaðs og eldra fólks í Skagafirði þannig að hægt sé að fá frekari upplýsingar um málið.
- Niðurstöður vinnustofunnar Spjörum okkur
Byggðarráð þakkar Textílmiðstöðinni fyrir vinnustofuna sem haldin var á dögunum og það efni sem unnið var upp úr þeirri vinnu. Ljóst er að ýmiskonar tækifæri liggja í frekari þróun vinnu Textílmiðstöðvarinnar og einkum sér byggðarráð tækifæri í móttöku textílúrgangs og frekari vinnslu hans í Húnabyggð. Byggðarráð bindur vonir við að áframhald verði á þessari vinnu og lýsir yfir stuðningi við þá vinnu sem fram hefur farið.
- Hveravellir - bréf, dags. 23.5.2025 f.h. Hveravallafélagsins ehf.
Fyrir fundinum lá bréf frá Lögmannsstofu Norðurlands fyrir hönd Hveravallafélagsins vegna fyrirhugaðrar auglýsingar Húnabyggðar á uppbyggingu á Hveravöllum. Byggðarráð felur sveitarstjóra að svara bréfinu og upplýsa sendanda um að auglýst lóð verði ekki sú sem fyrirhugað var upphaflega að auglýsa og er tilefni erindisins. Byggðarráð felur sveitarstjóra þess í stað að auglýsa lóð sem er utan friðlýsta svæðisins. Byggðarráð áréttar að samkvæmt skilningi Húnabyggðar er umrædd lóð sem Hveravallafélagið telur sig vera með á leigu innan þjóðlendu og einnig innan friðlýsts svæðis. Byggðarráð telur að eftir uppkvaðningu úrskurðar óbyggðanefndar um að svæðið sé þjóðlenda geti Hveravallafélagið ekki byggt rétt á eldri leigusamningum.
- Starfsleyfi Norðurár bs.
Lagt fram til kynningar.
- Fasteignamat 2026
Lagðar fram til kynningar nýjar tölur frá HMS um fasteignamat ársins 2026 en hækkunin er 10,6% að meðaltali í Húnabyggð.
- Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 36. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
- Félagsdómur - niðurstaða í máli 12/2024
Lagt fram til kynningar.
- Erindi er varðar veg upp á Haukagilsheiði í gegnum Haukagil
Fyrir fundinum láu tvö erindi sem borist hafa annað frá Jóni Gíslasyni fyrir hönd landeigenda Gilhaga, Sjálfseignarstofnunar Grímstungu-og Haukagilsheiðar, Veiðifélags Grímstungu-og Haukagilsheiðar, auk Fjallskilanefndar þessarra sömu heiða og hitt frá Fjallskilastjórn Grímstungu- og Haukagilsheiða er varðar veg upp á Haukagilsheiði.
Upp er kominn ágreiningur milli landeiganda Haukagils og þeirra aðila sem nota veg í gegnum land Haukagils upp að Gilhaga og á afrétti Haukagilsheiðar. Landeigandi hefur lokað veginum og ósætti er um þá lokun og áhöld eru um hver sé veghaldari o.fl.
Bókun fundar
Sveitarstjórn harmar að deilur íbúa sveitarfélagsins séu komnar á það stig sem raunin er. Sveitarstjórn er sammála því að brýnt sé að fá úr því skorið hver veghaldari vegarins upp á Haukagilsheiði er. Að fá úr því skorið með óyggjandi hætti gæti tekið langan tíma. Því er mikilvægt að leita allra leiða til að ná sáttum aðila á milli og tryggja umferðarrétt til skamms tíma. Þá er mikilvægt að aðilar málsins sammælist um að leita lausna til framtíðar. Sveitarstjóra falið að halda samtalinu áfram og reyna að leiða aðila saman að lausn málsins.
GRL sat hjá við afgreiðslu þessarar bókunar.