Dagskrá
- Ársreikningur Húnabyggðar 2024 – seinni umferð
Ársreikningur Húnabyggðar fyrir árið 2024 tekinn til seinni umræðu. Þorsteinn G. Þorsteinsson endurskoðandi hjá KPMG mætti til fundar undir þessum lið og fór yfir samstæðureikning sveitarfélagsins. Að því loknu svaraði hann fyrirspurnum sveitarstjórnarmanna.
Bókun fundar vegna ársreiknings 2024 er eftirfarandi:
Ársreikningur Húnabyggðar fyrir árið 2024 var lagður fram til annarar umræðu í sveitarstjórn 28. maí.
Árið 2024 var annað heila árið sem sveitarfélagið er rekið fjárhagslega sem eitt sveitarfélag, en þó urðu þær breytingar á miðju ári að Skagabyggð sameinaðist Húnabyggð og varð því hluti af uppgjöri ársins.
Hagnaður ársins nam rúmum 210 milljónum króna en áætlun hljóðaði upp á um 26 milljóna króna hagnað. Þetta er mjög ánægjuleg niðurstaða en aldrei fyrr hefur samanlagður hagnaður þeirra sveitarfélaga sem nú mynda Húnabyggð verið meiri.
Heildartekjur námu um 2,9 milljörðum króna og hafa þær vaxið um rúmlega 11% á milli ára. Heildargjöld námu tæpum 2,5 milljörðum króna og hafa þau vaxið um 3% á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) er um 539 milljónir króna og hækkar umtalsvert milli ára í krónutölu. EBITDA hlutfall er nú um 18,4%, en var 12% árið 2023.
Veltufé frá rekstri var um 373 milljónir en áætlunin hljóðaði upp á 306 milljónir. Veltufé frá rekstri heldur áfram að aukast og er nú 13,3% af rekstrartekjum en var 8,63% árið 2023.
Það er traustvekjandi að að þessir lykilmælikvarðar haldi áfram að hækka milli ára sem sýnir að stjórn rekstursins er á góðum stað.
Efnahagur nam um 5,1 milljörðum og þar af eru fastafjármunir tæpir 4,3 milljarðar en veltufé 609 milljónir. Eigið fé nam um 1,5 milljarði eða sem gerir 29,0% eiginfjárhlutfall. Skuldir námu rúmum 3,6 milljörðum og skammtímaskuldir voru þar af 555 milljónir og veltufjárhlutfall því 1,1.
Fjárfestingar í rekstrarfjámunum námu 332 milljónum sem eru að lang mestu leiti verkefni tengd uppbyggingu grunninnviða. Fjármögnunarhreyfingar námu um rúmum 12 milljónum og voru í samræmi við áætlun.
Laun og launatengd gjöld sem hlutfall af rekstrartekjum er nú 46,9%, en voru 51,8% árið 2023. Annar rekstrarkostnaður sem hlutfall af rekstrartekjum er nú 34,7%, en voru 36,3% árið 2023.
Niðurstaða ársins 2024 er mjög jákvæð og jákvæð þróun allra lykilmælikvarða sveitarfélagsins er skýrt dæmi um að reksturinn er góður. Sú góða þróun sem hefur verið á síðustu tveimur árum heldur því áfram og sveitarfélagið er nú komið í ágætis stöðu fjárhagslega til að takast á við verkefni sín.
Á árinu 2024 tókst að halda áfram að sækja því umfang fjárfestingaverkefna var hátt, sameiningarframlög Jöfnunarsjóðs lækkuðu milli ára og sameining Skagabyggðar og Húnabyggðar gekk í gegn, en þrátt fyrir þetta var útkoman enn betri en á síðasta ári.
Enn eru áskoranir framundan og vinnu við endurskipulagningu sveitarfélagsins eftir sameiningarnar 2022 og 2024 er ekki lokið. Það verður því að halda áfram þeirri vinnu að koma sveitarfélaginu á þann stað að hægt sé að segja að það sé fjárhagslega sjálfbært þegar að sameiningarframlög Jöfnunarsjóðs falla niður, þó segja megi að þeim stað sé þegar náð. Niðurstöður síðasta árs sýna að við erum á réttri leið og erum komin lengra en við vonuðumst eftir sem er jákvætt og óhætt að segja að ársreikningur ársins 2024 gefi fullt tilefni til bjartsýni á stöðuna og framhaldið.
Sveitarstjórn vill nota tækifærið og þakka starfsfólki Húnabyggðar fyrir frábæra vinnu og góð störf á síðustu tveimur árum sem hafa verið krefjandi t.d. vegna álags sem fylgt hefur sameiningum sveitarfélaganna.
Forseti bar upp ársreikning Húnabyggðar 2024 til samþykktar, sem sveitarstjórn samþykkti samhljóða.
- Skýrsla sveitarstjóra
Sveitarstjóri fór nánar yfir afkomu síðasta árs og sýndi myndræna framsetningu á fjárhagstölum Húnabyggðar og þeirra sveitarfélaga sem nú mynda Húnabyggð. Gögnin ná yfir tíu ára tímabil og eru mjög fróðleg og sýna vel hvernig fjárhagur sveitarfélaga á svæðinu hafa þróast í gegnum tíðina. Sveitarstjóri fór einnig yfir helstu verkefni sem eru í gangi en sumarið er mesti framkvæmdatími ársins og því mörg verkefni í gangi.