69. fundur 05. nóvember 2026 kl. 15:00 - 17:15 Húnabraut 5 fundarsalur
Nefndarmenn
  • Sævar Björgvinsson aðalmaður
  • Arnrún Bára Finnsdóttir aðalmaður
  • Atli Einarsson aðalmaður
  • Ágústa Rós Ingibjörnsdóttir aðalmaður
  • Ásdís Adda Ólafsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags-og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga

2408023

Tekin fyrir að nýju tillaga að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti frá 10. september til 23. október 2026.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir innkomnar athugasemdir. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að láta vinna að lagfæringum á skipulagsgögnum í samræmi við athugasemdir nefndarinnar og leggur til við sveitarstjórn að Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037 og skrá yfir vegi í náttúru Íslands verði samþykkt til gildistöku með áorðnum breytingum og send HMS í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Kornsá 1, umsókn um stöðuleyfi

2610006

Lögð var fram umsókn frá VBF Mjölni ehf. um stöðuleyfi fyrir tímabundnum vinnubúðum á jörðinni Kornsá 1, L144684, í Húnabyggð. Umsóknin tekur til sex stakra svefngáma og tveggja samtengdra gáma sem nýttir verða sem setustofa fyrir starfsmenn verktaka vegna vegaframkvæmda á Vatnsdalsvegi. Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir tímabilið 18. október 2026 til 18. október 2027. Með umsókninni fylgir undirritaður samningur við landeiganda um aðstöðu fyrir vinnubúðir ásamt uppdrætti sem sýnir fyrirhugaða staðsetningu þeirra.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti umsókn VBF Mjölnis ehf. um stöðuleyfi fyrir tímabundnar vinnubúðir á Kornsá 1, L144684, samkvæmt framlögðum gögnum og fyrirhugaðri staðsetningu.

3.Fálkagerði 1-11, umsókn um stöðuleyfi

2610007

Lögð var fram umsókn frá Borealis Data Center Facilities ehf., dags. 6. október 2026, um stöðuleyfi fyrir 210 m² aðstöðutjaldi vegna uppbyggingar nýs gagnavers á Blönduósi. Fyrirhugað er að nýta tjaldið sem tímabundna geymslu fyrir byggingarefni á framkvæmdartíma. Gert er ráð fyrir að steypa 15 cm þykka undirstöðu undir tjaldið og óskað er eftir stöðuleyfi til eins árs. Fram kemur í umsókninni að bæði tjaldið og steypta undirstaðan verði fjarlægð að leyfistíma loknum.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti umsókn Borealis Data Center Facilities ehf. um stöðuleyfi til eins árs fyrir 210 m² aðstöðutjaldi sem nýtt verður til geymslu byggingarefnis vegna uppbyggingar gagnavers á Blönduósi.

4.Ós, merkjalýsing

2610011

Lögð var fram merkjalýsing vegna uppmælingar og hnitsetningar landamerkja jarðarinnar Óss, L145867, í Húnabyggð, dags. 8. október 2026. Merkjalýsingin er unnin í kjölfar áætlunar eignamarka og tekur til ytri landamerkja jarðarinnar ásamt nýrri skráningu landsstærðar, sem samkvæmt mælingum er 1.734.820,3 m². Við gerð merkjalýsingarinnar var meðal annars stuðst við eldri landamerkjabréf, vettvangsmælingar og fyrirliggjandi gögn um eignamörk. Fyrir liggja undirritanir eigenda og hlutaðeigandi aðila.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða merkjalýsingu vegna uppmælingar og hnitsetningar landamerkja jarðarinnar Óss, L145867, í Húnabyggð, ásamt skráningu landsstærðar samkvæmt framlögðum gögnum.

5.Hafnir, merkjalýsing

2610010

Lögð var fram merkjalýsing vegna uppmælingar og hnitsetningar ytri landamerkja jarðarinnar Hafna, L145845, í Húnabyggð, dags. 8. október 2026. Merkjalýsingin er unnin í kjölfar áætlunar eignamarka og tekur til nýrrar skráningar landsstærðar, sem samkvæmt mælingum er 34.423.542,4 m². Fram kemur að jörðin Kaldrani teljist nú hluti af Höfnum. Eyjar og sker sem tilheyra jörðinni eru ekki sérstaklega hnitsett og flatarmál þeirra er því ekki innifalið í mældri landsstærð. Við gerð merkjalýsingarinnar var stuðst við eldri landamerkjabréf, þinglýst gögn og vettvangsmælingar. Fyrir liggja undirritanir eigenda og hlutaðeigandi aðila.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða merkjalýsingu vegna uppmælingar og hnitsetningar ytri landamerkja jarðarinnar Hafna, L145845, í Húnabyggð, ásamt nýrri skráningu landsstærðar samkvæmt framlögðum gögnum.

6.Tjörn, merkjalýsing.

2610009

Lögð var fram merkjalýsing vegna uppmælingar og hnitsetningar ytri landamerkja jarðarinnar Tjarnar, L145875, í Húnabyggð, dags. 8. október 2026. Merkjalýsingin er unnin í kjölfar áætlunar eignamarka og tekur til nýrrar skráningar landsstærðar, sem samkvæmt mælingum er 23.706.801,9 m². Jafnframt er gert ráð fyrir að bæta við fasteignaskrá 54 m² kálfahúsi vestan við fjós á jörðinni. Við gerð merkjalýsingarinnar var stuðst við eldri landamerkjabréf, þinglýst gögn og vettvangsmælingar. Fyrir liggja undirritanir eigenda og hlutaðeigandi aðila.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða merkjalýsingu vegna uppmælingar og hnitsetningar ytri landamerkja jarðarinnar Tjarnar, L145875, í Húnabyggð, ásamt nýrri skráningu landsstærðar samkvæmt framlögðum gögnum.

7.Byggingaráform Ægisbraut 9

2501032

Lögð var fram til afgreiðslu grenndarkynning vegna breyttra byggingaráforma að Ægisbraut 9 á Blönduósi, mál nr. 2501032. Umsóknin er frá Mýrarbraut 23 ehf. og felur í sér endurnýjun byggingar á núverandi sökkli, hækkun vegghæðar úr 3,0 m í 4,0 m og mænishæðar úr 4,1 m í 5,4 m, ásamt nýrri steyptri gólfplötu. Grunnflötur byggingarinnar helst óbreyttur.

Við grenndarkynningu bárust athugasemdir frá eigendum Ægisbrautar 11, þar sem meðal annars eru gerðar athugasemdir við byggingarmagn, nálægð byggingar við aðliggjandi lóðir, umgengni á svæðinu og möguleg áhrif framkvæmdarinnar á nærliggjandi íbúðarhúsnæði.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir framlagða grenndarkynningu og þær athugasemdir sem bárust vegna fyrirhugaðra byggingaráforma að Ægisbraut 9.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhuguð byggingaráform samkvæmt framlögðum gögnum, að því gefnu að uppfyllt séu ákvæði gildandi skipulags, byggingarreglugerðar og önnur viðeigandi skilyrði byggingarfulltrúa.

8.Lóðarmál við Húnabraut 35, 37-39 og Ægisbraut 4

2609005

Til umræðu fyrirspurn Hermanns Herbertssonar fyrir hönd Kjarnafæðis Norðlenska ehf vegna lóðarmála við Húnabraut 35, 37-39 og Ægisbrautar 4.
Skipulags-og samgöngunefnd leggur til að A hluti erindisins er varðar sameiningu lóðanna Húnabraut 35 og Ægisbrautar 4 verði samþykkt sem Húnabraut 35 L145002. Nefndin leggur til að B hluta erindisins um stofnun nýrrar lóðar úr lóðinni Húnabraut 37-39 verði hafnað.

Fundi slitið - kl. 17:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?