67. fundur 06. október 2026 kl. 15:00 - 17:45 Húnabraut 5 fundarsalur
Nefndarmenn
  • Sævar Björgvinsson aðalmaður
  • Arnrún Bára Finnsdóttir aðalmaður
  • Atli Einarsson aðalmaður
  • Ágústa Rós Ingibjörnsdóttir aðalmaður
  • Ásdís Adda Ólafsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags-og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Umferðaröryggisáætlun Húnabyggðar

2507002

Berglind Hallgrímsdóttir frá EFLU kemur á fund nefndarinnar og fer yfir vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir Húnabyggð. Farið verður yfir helstu áherslur áætlunarinnar, stöðu verkefnisins og næstu skref í vinnunnar.
Skipulags- og samgöngunefnd þakkar Berglindi Hallgrímsdóttur fyrir góða kynningu og yfirferð á vinnu við umferðaröryggisáætlun Húnabyggðar.

2.Aðgengismál á opnum svæðum í Húnabyggð

2610005

Til umræðu aðgengismál á opnum svæðum í Húnabyggð
Nokkrar umræður urðu um aðgengismál á göngustígum. Nefndin vill beina því til Byggðarráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2027 að gera ráð fyrir endurbótum á stíg undir vestur enda Blöndubrúar að Flúðabakka. Samhliða vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar verði síðan unnin áætlun um endurbætur göngustíga og gangstétta.

3.Deiliskipulag, tjaldsvæði við Hnjúkabyggð

2608007

Tekin er fyrir skipulagslýsing vegna deiliskipulagsgerðar fyrir nýtt tjaldsvæði að Hnjúkabyggð.

Til stendur að taka upp gildandi deiliskipulag og fella það úr gildi með nýju deiliskipulagi sem felur m.a. í sér uppbyggingu tjaldsvæðis við Hnjúkabyggð.

Fyrir liggur skipulagslýsing frá Landslagi ehf dags. 18. september 2026.

Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að auglýsa skipulagslýsingu að nýju deiliskipulagi við Hnjúkabyggð skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Óverulega breytinga á deiliskipulagi við Fálkagerði, fjölgun lóða

2608013

Lögð fram tillaga Arkís arkitekta ehf. að óverulegri breytingu á deiliskipulagi gagnavers við Svínvetningabraut sem nær til lóðanna Fálkagerðis 1- 19



Í deiliskipulagstillögunni felst að:



Lóðir Fálkagerðis 4 og 6 eru sameinaðar í eina lóð.



Lóð Fálkagerðis 8 er skipt upp í tvær lóðir, Fálkagerði 8 og 8a.



Afmarkaðar eru fjórar nýjar lóðir, Fálkagerði 10 og 10a, 17 og 19.



Byggingarreitur á lóðum stækkar en byggingarmagn er óbreytt. Að öðru leyti gilda gildandi núverandi deiliskipulagsskilmálar.



Samhliða deiliskipulagsbreytingunni eru lóðnúmer uppfærð.
Skipulags-og samgöngunefnd telur að um sé að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin varðar eingöngu hagsmuni sveitarfélagsins og/eða umsækjanda og hefur engin áhrif á hagsmuni annarra aðila, né á heildarskipulag svæðisins.
Með vísan til framangreinds er breytingin ekki talin krefjast grenndarkynningar og verður því afgreidd án auglýsingar.
Skipulags-og samgöngunefnd samþykkir breytinguna og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Kvörtun vegna auglýsingaskiltis við Norðurlandsveg 3

2609001

Til umræðu athugasemd frá íbúa vegna auglýsingaskiltis við Norðurlandsveg 3.
Skipulags-og samgöngunefnd felur skipulags-og byggingarfulltrúa að vinna áfram að málinu.

6.Árbraut 1-13, merkjalýsing.

2609004

Lögð var fram merkjalýsing vegna breytinga á lóðarmörkum og skráðum lóðarstærðum við Árbraut 1, 3, 5, 7, 9, 11 og 13 í Húnabyggð, dags. 22. september 2026. Tilgangur merkjalýsingarinnar er að staðfesta breytt lóðarmörk og ný flatarmál samkvæmt hnitsettum lóðarblöðum.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða merkjalýsingu vegna breytinga á lóðarmörkum og lóðarstærðum við Árbraut 1, 3, 5, 7, 9, 11 og 13 samkvæmt framlögðum gögnum og hnitsettum lóðarblöðum.

7.Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna þverunar á Fálkagerði

2610004

Með innsendu erindi dags. 6. október 2026 óskar Sveinn Hallgrímsson fyrir hönd Borealis Data center Facilities ehf eftir framkvæmdarleyfi vegna þverunar á Fálkagerði samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Skipulags-og samgöngunefnd leggur til að umbeðið leyfi verði veitt með þeim fyrirvara að gengið verði frá svæðinu í sama horf og áður en umrædd framkvæmd hefst.
Nefndin vill þó benda á að framkvæmdarleyfi er ekki gefið út fyrr en við afgreiðslu sveitarstjórnar.

8.Umsókn um stofnun lóðar við Húnabraut 35

2610003

Með innsendu erindi dags. 2 október 2026 óskar Hermann Herbertsson eftir stofnun nýrrar lóðar úr Húnabraut 37-39 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Skipulags-og samgöngunefnd leggur til að umbeðin lóð verði stofnuð úr Húnabraut 37-39 og fái númerið 37.

Fundi slitið - kl. 17:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?