Dagskrá
1.Húnabraut 2, umsókn um breytta notkun.
2609003
Lögð var fram umsókn um breytta notkun fasteignarinnar að Húnabraut 2 á Blönduósi, F2136930. Óskað er eftir að notkun hússins, sem upphaflega var byggt og nýtt sem íbúðarhús en síðar breytt í atvinnuhúsnæði, verði breytt aftur í íbúðarhúsnæði og skráð sem slíkt. Jafnframt er óskað eftir að eldhús, 23,9 m², og kalt skýli, 16,2 m², verði skráð með sér fastanúmeri.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti að unnið verði áfram að breytingu á notkun fasteignarinnar að Húnabraut 2 úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði að hluta, samkvæmt framlögðum gögnum. Endanleg afgreiðsla og skráning verði háð því að fullnægjandi gögn liggi fyrir og að skilyrði byggingarreglugerðar og annarra viðeigandi reglna séu uppfyllt.
ABF situr hjá.
2.Sólbrekka, merkjalýsing.
2609002
Lögð var fram merkjalýsing vegna stofnunar nýrrar lóðar úr Hvammi II, L144681, í Húnabyggð. Samkvæmt merkjalýsingunni verður hin nýja lóð 6.300 m² að stærð og óskað er eftir að hún fái heitið Sólbrekka.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða merkjalýsingu vegna stofnunar 6.300 m² lóðar úr Hvammi II, L144681, samkvæmt framlögðum gögnum. Nefndin samþykkir jafnframt fyrir sitt leyti að hin nýja lóð fái heitið Sólbrekka.
3.Deiliskipulag, tjaldsvæði við Hnjúkabyggð
2608007
Hugmyndavinna fyrir nýtt tjaldsvæði við Hnjúkabyggð
Unnið var að útfærslum á nýju tjaldsvæði við Hnjúkabyggð.
Fundi slitið - kl. 16:45.
