Dagskrá
1.Sunnubraut 8-16, merkjalýsing
2608015
Lögð var fram merkjalýsing vegna stofnunar nýrra lóða við Sunnubraut 8, 10, 12, 14 og 16 á Blönduósi. Afmörkun lóðanna byggir á samþykktri deiliskipulagsbreytingu fyrir íbúðarbyggð við Sunnubraut og hnitsettum lóðarblöðum Landmótunar, dags. 27. ágúst 2026. Um er að ræða þrjár 806 m² einbýlishúsalóðir við Sunnubraut 8, 10 og 12, tvær 403 m² lóðir fyrir parhús við Sunnubraut 14 og 2.123 m² lóð við Sunnubraut 16 fyrir raðhúsakjarna með allt að fimm íbúðum.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða merkjalýsingu vegna stofnunar nýrra lóða við Sunnubraut 8, 10, 12, 14 og 16 samkvæmt framlögðum gögnum og hnitsettum lóðablöðum. Nefndin telur að stofnun og afmörkun lóðanna sé í samræmi við samþykkta deiliskipulagsbreytingu fyrir íbúðarbyggð við Sunnubraut.
2.Merkjalýsing, Dunhóll-Stóra-Búrfell
2608006
Lögð var fram merkjalýsing landamerkja milli Stóra Búrfells, L145321, og Dunhóls, L145322, í Húnabyggð, dags. 2. júlí 2026. Merkjalýsingin er unnin samkvæmt lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 og tekur jafnframt til aðliggjandi fasteignarinnar Dunhóls lóðar, L177430. Markmið merkjalýsingarinnar er að mæla upp og staðfesta landamerki milli Stóra Búrfells og Dunhóls. Fram kemur að stærðir fasteignanna breytist ekki við merkjalýsinguna og að vegslóði frá Svínvetningabraut að Svínavatni liggi við landamerkin, þar sem kvöð hvílir á eigendum um að hindra ekki umferð um vegslóðann.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða merkjalýsingu landamerkja milli Stóra Búrfells, L145321, og Dunhóls, L145322, í Húnabyggð.
Ágústa Rós vék af fundi undir þessum lið
3.Merkjalýsing, Dunhóll-Tindar
2608005
Lögð var fram merkjalýsing landamerkja milli Tinda, L145329, og Dunhóls, L145322, í Húnabyggð, dags. 6. júlí 2026. Merkjalýsingin er unnin samkvæmt lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 og tekur jafnframt til aðliggjandi fasteignarinnar Dunhóls lóðar, L177430. Með merkjalýsingunni, ásamt merkjalýsingu landamerkja Stóra Búrfells og Dunhóls, eru landamerki Dunhóls að fullu lýst og staðfest. Fram kemur að stærðir fasteignanna breytist ekki við merkjalýsinguna.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða merkjalýsingu landamerkja milli Tinda, L145329, og Dunhóls, L145322, í Húnabyggð.
4.Merkjalýsing, Stóra-Búrfell-Tindar
2608004
Lögð var fram merkjalýsing landamerkja milli Stóra Búrfells, L145321, og Tinda, L145329, í Húnabyggð, dags. 7. júlí 2026. Merkjalýsingin er unnin samkvæmt lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 og tekur jafnframt til aðliggjandi fasteigna Dunhóls lóðar, L177430, og Hamars, L145296. Markmið merkjalýsingarinnar er að mæla upp og staðfesta landamerki milli Stóra Búrfells og Tinda. Fram kemur að stærðir fasteignanna breytist ekki við merkjalýsinguna.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða merkjalýsingu landamerkja milli Stóra Búrfells, L145321, og Tinda, L145329, í Húnabyggð.
Ágústa Rós kom aftur inn á fundinn eftir þennan lið
5.Brekkubyggð 5, merkjalýsing.
2608011
Lögð fram merkjalýsing vegna lóðaruppfærslu fyrir Brekkubyggð 5, L144852, í Húnabyggð. Samkvæmt merkjalýsingu er lagt til að lóðarstærð verði leiðrétt úr 760 m² í 938 m², eða um 178 m².
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, framlagða merkjalýsingu vegna lóðaruppfærslu fyrir Brekkubyggð 5, L144852, í Húnabyggð, þar sem lóðarstærð er leiðrétt úr 760 m² í 938 m², í samræmi við framlagða merkjalýsingu og uppdrátt.
6.Byggingaráform Ægisbraut 9
2501032
Með innsendu erindi dags. 25. ágúst 2026 óskar Hjörleifur Júlíusson fyrir hönd Mýrarbrautar 23 ehf. eftir byggingarleyfi að Ægisbraut 9 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Skipulags-og samgöngunefnd leggur til að byggingaráformin verði grenndarkynnt fyrir eftirfarandi lóðarhöfum.
Árbraut 35
Ægisbraut 3,11 og 12.
Árbraut 35
Ægisbraut 3,11 og 12.
Undir þessum lið vék Sævar Örn Björgvinsson
7.Raunteikningar vegna breytinga við Efstubraut 1
2608014
Með innsendu erindi dags. 27 ágúst 2026 leggur Atli Gunnar Arnórsson hjá Stoð ehf fram raunteikningar af eignahlut Líflands ehf vegna innanhúss breytinga ásamt skýli við anndyrir við aðalinngang.
Skipulags-og samgöngunefnd veitir umbeðið leyfi með fyrirvara um samþykki meðeigenda í húsinu vegna bíslags. Byggingafulltrúa falið að óska eftir skriflegu samþykki meðeigenda frá umsækjanda.
Sævar Örn Björgvinsson kom aftur inn á fundinn.
8.Fálkagerði 1-11, umsókn um stöðuleyfi.
2608008
Ístak hf. sækir um stöðuleyfi á lóð Fálkagerðs 1-11 fyrir vinnubúðum vegna framkvæmda á svæðinu.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að veita Ístaki hf. stöðuleyfi fyrir vinnubúðum.
9.Míla, umsókn um framkvæmdaleyfi vegna ljósleiðaralagna,Borealis - Breiðavað
2606009
Tekin fyrir að nýju umsókn frá Mílu hf. um framkvæmdaleyfi vegna nýlagningar ljósleiðara frá Breiðavaði að gagnaveri Borealis. Erindinu var frestað á 62. fundi nefnarinnar þann 16. júní 2026. Framkvæmdin felst í lagningu nýs ljósleiðara frá núverandi tengibrunni Mílu við Breiðavað, þar sem ljósleiðararör verður plægt niður í jörð, dregið í núverandi rör undir þjóðveg 1 og jafnframt undir Blöndu. Fram kemur að Borealis hafi óskað eftir því að ný lega ljósleiðarans verði aðskilin frá núverandi legu inn í gagnaverið til að auka rekstraröryggi.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu umsóknar Mílu ehf. um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara frá Breiðavaði að gagnaveri Borealis og felur skipulags-og byggingafulltrúa að afgreiða leyfið.
10.Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir lagningu ljósleiðara.
2606006
Tekin fyrir að nýju umsókn frá Ljósleiðaranum ehf. um framkvæmdaleyfi vegna lagningar nýs ljósleiðararörs við Blönduós. Erindinu var frestað á 62. fundi nefnarinnar þann 16. júní 2026. Framkvæmdin felst í lagningu ljósleiðararörs á um 3.300 metra kafla frá þjóðvegi að Fálkagerði samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Gert er ráð fyrir að rörið verði að mestu lagt með plægingu en grafið þar sem aðstæður krefjast þess. Samkvæmt umsókn er áætlað að framkvæmdin taki innan við viku og í samráði við hlutaðeigandi lóðarleigjendur og verktaka.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu umsóknar Ljósleiðarans ehf. um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðararörs við Blönduós og felur skipulags-og byggingafulltrúa að afgreiða leyfið.
11.Umsagnarbeiðni, breyting á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026, nr. 09172026
2608001
Lögð var fram til umsagnar skipulags- og matslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og gerðar nýs deiliskipulags fyrir tengivirki og spennistöð í landi Reykja við Laugarbakka. Fyrirhugað er að breyta landnotkun svæðisins úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði og stofna tvær um 2.500 m² lóðir, annars vegar fyrir tengivirki Landsnets og hins vegar fyrir spennistöð RARIK.
Skipulags- og samgöngunefnd Húnabyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagða skipulags- og matslýsingu vegna tengivirkis og spennistöðvar í landi Reykja við Laugarbakka og veitir henni jákvæða umsögn.
12.Deiliskipulag, tjaldsvæði við Hnjúkabyggð
2608007
Til kynningar og umræðu drög að deiliskipulagi tjaldsvæðis við Hnjúkabyggð.
Lögð fram til kynningar fyrstu drög að tjaldsvæði við Hnjúkabyggð.
Nefndin mun funda eftir tvær vikur til að rýna skipulagið frekar og í framhaldi af því óska eftir fundi með hönnuðum.
Nefndin mun funda eftir tvær vikur til að rýna skipulagið frekar og í framhaldi af því óska eftir fundi með hönnuðum.
13.Óverulega breytinga á deiliskipulagi við Fálkagerði, fjölgun lóða
2608013
Lögð fram tillaga Arkís arkitekta ehf. að óverulegri breytingu á deiliskipulagi gagnavers við Svínvetningabraut sem nær til lóðanna Fálkagerðis 1- 15 ( eftir breytingu Fálkagerði 1-11)
Í deiliskipulagstillögunni felst að:
Lóðir Fálkagerðis 4 og 6 eru sameinaðar í eina lóð.
Lóð Fálkagerðis 8 er skipt upp í tvær lóðir, Fálkagerði 8 og 8a.
Afmarkaðar eru fjórar nýjar lóðir, Fálkagerði 7, 9, 10 og 10a.
Byggingarreitur á lóðum stækkar en byggingarmagn er óbreytt. Að öðru leyti gilda gildandi núverandi deiliskipulagsskilmálar.
Samhliða deiliskipulagsbreytingunni eru lóðnúmer uppfærð.
Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti.
Í deiliskipulagstillögunni felst að:
Lóðir Fálkagerðis 4 og 6 eru sameinaðar í eina lóð.
Lóð Fálkagerðis 8 er skipt upp í tvær lóðir, Fálkagerði 8 og 8a.
Afmarkaðar eru fjórar nýjar lóðir, Fálkagerði 7, 9, 10 og 10a.
Byggingarreitur á lóðum stækkar en byggingarmagn er óbreytt. Að öðru leyti gilda gildandi núverandi deiliskipulagsskilmálar.
Samhliða deiliskipulagsbreytingunni eru lóðnúmer uppfærð.
Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
14.Krafa um bætt umferðaröryggi á Hólabraut
1810014
Lagt var fram erindi frá íbúa vegna umferðaröryggis á Hólabraut á Blönduósi. Í erindinu er vakin athygli á hraðakstri um götuna og þeirri hættu sem af honum getur stafað, sérstaklega fyrir börn, gangandi og hjólandi vegfarendur. Óskað er eftir að aðstæður á Hólabraut verði teknar til skoðunar og metið hvort og hvar koma megi fyrir hraðahindrun, þrengingu eða öðrum viðurkenndum hraðalækkandi aðgerðum.
Skipulags- og samgöngunefnd þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að tryggja öryggi allra vegfarenda, sérstaklega barna, gangandi og hjólandi vegfarenda. Nefndin upplýsir að vinna við að bæta umferðaröryggi á Hólabraut er í vinnslu og að þar verði meðal annars horft til viðeigandi hraðalækkandi og umferðaröryggisaðgerða. Nefndin ítrekar jafnframt mikilvægi þess að gerð verði umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið.
15.Kvörtun vegna Norðurlandsvegar 3
2608016
Lögð var fram kvörtun frá íbúa við Melabraut vegna hávaða frá bílastæði N1 við Norðurlandsveg á Blönduósi. Í erindinu kemur fram að eftir að bílastæðið var tekið í notkun árið 2023 hafi umferð um svæðið verið mikil, meðal annars vegna vörubíla og annarra stærri ökutækja, og að af því hljótist ónæði fyrir nærliggjandi íbúðabyggð. Óskað er eftir að ráðist verði í hljóðverndandi aðgerðir milli lóðar N1 og íbúðabyggðar við Melabraut.
Skipulags- og samgöngunefnd tekur erindið alvarlega og telur mikilvægt að brugðist verði við ábendingum íbúa um ónæði vegna starfsemi og umferðar á svæðinu. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að lóðarhafa við Norðulandsveg 3 verði gert að reisa hljóðvegg í samræmi við gildandi deiliskipulag og þeim heimildum sem þar eru varðandi hljóðvarnir milli atvinnusvæðis og aðliggjandi íbúðabyggðar.
16.Gangbrautir á Húnabraut.
2608009
Til umfjöllunar er umferðaröryggi á Húnabraut og tillaga um lagningu þriggja gangbrauta með það að markmiði að bæta öryggi gangandi vegfarenda og skapa öruggari tengingar yfir götuna. Í tengslum við málið telur nefndin jafnframt mikilvægt að horfa heildstætt á umferðaröryggi í sveitarfélaginu og meta þörf fyrir frekari aðgerðir á götum, við gatnamót og á helstu göngu- og akstursleiðum.
Skipulags- og samgöngunefnd vísar ákvörðun um staðsetningu gangbrauta við Húnabraut til vinnu við umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið.
Fundi slitið - kl. 17:30.
