Dagskrá
1.Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna stígagerðar í Kálfshamarsvík
2607005
Með innsendu erindi óskar Pétur Arason fyrir hönd Húnabyggðar eftir framkvæmdarleyfi fyrir stígagerð í Kálfshamarsvík
Skipulags-og samgöngunefnd samþykkir umsókn um framkvæmdarleyfi.
2.Gangbraut við Melabraut að búðinni
2607006
Á 150. fundi byggðarráðs Húnabyggðar þann 8.júlí var eftirfarandi bókað.
Byggðarráð samþykkir að ráðist verði í framkvæmdir vegna umferðaröryggismála við Melabraut frá skólalóðinni að verslunarhúsnæðinu við Húnabraut 4. Byggðarráð vísar málinu til skipulags- og samgöngunefndar.

Skipulags-og samgöngunefnd felur byggingafulltrúa að útfæra tillögur að bættu umferðaröryggi samkvæmt umræðum fundarins og leggja fyrir byggðarráð.
Nefndin leggur áherslu á að verkefnið verði sett í forgang til að tryggja umferðaröryggi á svæðinu hið allra fyrst.

3.Reykir Rarik 5, merkjalýsing
2607007
Lögð var fram merkjalýsing vegna Reykja RARIK 5 og hnitsetningar Reykja RARIK 3 í Húnabyggð, unnin af Stoð verkfræðistofu samkvæmt reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024. Merkjalýsingin tekur til afmörkunar lóðarinnar Reykir RARIK 5 og hnitsetningar Reykja RARIK 3, ásamt skilgreiningu landamerkja, hnitaskrár, stærðar lóðar, kvaða og annarra réttinda sem fylgja fasteignunum. Fyrir liggja undirritanir eigenda og annarra hlutaðeigandi aðila sem staðfesta merkjalýsinguna.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir framlagða merkjalýsingu vegna Reykja RARIK 5 og hnitsetningar Reykja RARIK 3 í Húnabyggð.
4.Breyting á aðalskipulagi gamla bæjarins og Klifamýrar
2504041
Tekin fyrir tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010?2030 vegna Gamla bæjarins og Klifamýrar á Blönduósi, dags. 2. september 2025, með síðari breytingum.
Skipulagsbreytingin tekur til um 17,4 ha svæðis sunnan Blöndu og vestan Hringvegar. Svæðið nær yfir gamla bæjarkjarnann og Klifamýri, ásamt Sýslumannsbrekku, strandsvæðinu vestan byggðarinnar og bökkum Blöndu.
Markmið breytingarinnar er að móta heildstæða stefnu um verndun og þróun svæðisins. Í tillögunni er meðal annars gert ráð fyrir nýju miðsvæði í gamla bænum, endurskilgreindu íbúðarsvæði við Koppagötu og Blöndubyggð, stækkun opinna svæða í Klifamýri og við Sýslumannsbrekku, nýju hverfisverndarsvæði yfir gamla bæinn og Klifamýri og breyttri stefnu um samgöngur. Jafnframt er fallið frá áður fyrirhuguðu íbúðarsvæði í Klifamýri og settir ítarlegri skilmálar um verndun menningarsögulegs svipmóts, uppbyggingu atvinnustarfsemi og íbúða, endurheimt horfinna húsa og virka ferðamáta.
Skipulagslýsing var kynnt frá 23. júní til 14. júlí 2025. Vinnslutillaga breytingarinnar var kynnt frá 15. september til 27. október 2025. Umsagnir og athugasemdir sem bárust við kynningu skipulagslýsingarinnar og vinnslutillögunnar hafa verið teknar til skoðunar og nýttar við áframhaldandi mótun tillögunnar.

Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 vegna Gamla bæjarins og Klifamýrar, dags. 2. september 2025, með síðari breytingum, verði samþykkt til auglýsingar og að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
5.HB- Deiliskipulag gamla bæjarins
2311019
Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi Gamla bæjarins og Klifamýrar á Blönduósi, dags. 31. júlí 2026.
Skipulagssvæðið er um 17,1 ha að stærð og liggur sunnan Blöndu og vestan Hringvegar. Það nær yfir gamla bæjarkjarnann og Klifamýri, ásamt Sýslumannsbrekku, strandsvæðinu vestan byggðarinnar og bökkum Blöndu.
Markmið tillögunnar er að móta heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið með áherslu á verndun, viðhald, endurheimt og styrkingu menningarsögulegs svipmóts, lifandi blandaða byggð, endurbyggingu horfinna húsa, samgöngukerfi fyrir fjölbreytta ferðamáta og uppbyggingu almenningsrýma, stíga og áningarstaða.
Skipulagslýsing var kynnt frá 10. júlí til 18. ágúst 2024 og kynningarfundur haldinn 5. september 2024. Vinnslutillaga deiliskipulagsins var kynnt frá 15. september til 27. október 2025 og kynningarfundur haldinn 16. október 2025. Umsagnir og athugasemdir sem bárust við kynningu skipulagslýsingarinnar og vinnslutillögunnar hafa verið teknar til skoðunar og nýttar við mótun tillögunnar.

Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillaga að deiliskipulagi Gamla bæjarins og Klifamýrar á Blönduósi, dags. 31. júlí 2026, verði samþykkt til auglýsingar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna.
Fundi slitið - kl. 17:15.