63. fundur 07. júlí 2026 kl. 15:00 - 16:00 Húnabraut 5 fundarsalur
Nefndarmenn
  • Sævar Björgvinsson aðalmaður
  • Arnrún Bára Finnsdóttir aðalmaður
  • Atli Einarsson aðalmaður
  • Ágústa Rós Ingibjörnsdóttir aðalmaður
  • Ásdís Adda Ólafsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags-og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu vega af vegaskrá

2606018

Lagt var fram bréf frá Vegagerðinni, dags. 16. júní 2026, þar sem kynnt er fyrirhuguð niðurfelling hluta Svínadalsvegar (727-01) úr vegaskrá. Um er að ræða um þriggja kílómetra kafla frá Rútsstöðum að Hrafnabjörgum. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar uppfyllir vegurinn ekki lengur skilyrði vegalaga fyrir flokkun sem héraðsvegur þar sem ekki er lengur búseta á Hrafnabjörgum. Vegagerðin óskar eftir athugasemdum við fyrirhugaða ákvörðun innan fjögurra vikna frá dagsetningu bréfsins.
Skipulags- og samgöngunefnd Húnabyggðar hefur farið yfir erindi Vegagerðarinnar um fyrirhugaða niðurfellingu hluta Svínadalsvegar (727-01) úr vegaskrá. Nefndin felur skipulags-og byggingafulltrúa að svara erindinu í samráði við landeigendur.

2.Umsókn um leyfisveitingu fyrir vöktunarreit austan Kleifa

2606017

Lagt var fram erindi frá Landi og skógi þar sem óskað er eftir heimild til að koma fyrir vöktunarreit í landi Húnabyggðar við Blönduós í tengslum við kolefnisverkefni sem er hluti af loftslagsbókhaldi Íslands. Fram kemur að á svæðinu verði lagður út 10 x 10 metra vöktunarreitur þar sem framkvæmdar verða mælingar á gróðri og jarðvegi auk sýnatöku til að meta kolefnisbirgðir jarðvegs. Að loknum mælingum verði einungis tveir litlir tréhælar eftir til að marka staðsetningu reitsins. Áætlað er að vinna á svæðinu fari fram um miðjan júlí 2026.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja erindi Lands og skógar um uppsetningu vöktunarreits í landi Húnabyggðar við Blönduós vegna mælinga á kolefnisbirgðum jarðvegs.

3.Umsókn um leyfisveitingu fyrir vöktunarreit á Grímstunguheiði

2606016

Lagt var fram erindi frá Landi og skógi þar sem óskað er eftir leyfi til að leggja út sex vöktunarreiti í landi Grímstunguheiðar í tengslum við kolefnisverkefni sem er hluti af loftslagsbókhaldi Íslands. Markmið verkefnisins er að mæla kolefnisbirgðir í jarðvegi með gróður- og jarðvegsmælingum og sýnatöku á skilgreindum reitum. Fram kemur að fjórir reitanna hafi áður verið lagðir út árið 2023 í tengslum við langtímavöktunarverkefnið Grólind. Að loknum mælingum verða einungis tveir litlir tréhælar eftir á hverjum reit til að marka staðsetningu hans.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja erindi Lands og skógar með fyrirvara um samþykki landeiganda á uppsetningu sex vöktunarreita í landi Grímstunguheiðar vegna mælinga á kolefnisbirgðum jarðvegs.

4.Húnabraut 1-9, merkjalýsing.

2606019

Lögð var fram merkjalýsing fyrir Húnabraut 1, 3, 5, 7 og 9 í Húnabyggð, dags. 18. júní 2026, unnin samkvæmt lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024. Merkjalýsingin felur í sér breytingar á lóðarmörkum umræddra lóða og skilgreinir nýja afmörkun þeirra með hnitsettum landamerkjum. Jafnframt eru gerð grein fyrir stærðum lóða fyrir og eftir breytingar, eignarhaldi og þinglýstum kvöðum og réttindum sem á lóðunum hvíla. Merkjalýsingin hefur verið undirrituð af hlutaðeigandi aðilum.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu fyrir Húnabraut 1, 3, 5, 7 og 9 í Húnabyggð.

5.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 29

2606002F

Lögð fram til kynningar 29. fundargerð afgreiðslufundar byggingafulltrúa.
Lagt fram til kynningar.
  • 5.1 2606015 Kjarr, umsókn um byggingarleyfi.
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 29 Byggingarfulltrúi samþykkir umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á landeigninni Kjarr, L230782, samkvæmt framlögðum aðaluppdráttum og öðrum fylgigögnum.
  • 5.2 2606014 Hnausar Lóð 2, umsókn um byggingarleyfi.
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 29 Byggingarfulltrúi samþykkir umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu frístundahúss á Hnausum lóð 2, L221552, samkvæmt framlögðum aðaluppdráttum og öðrum fylgigögnum.
  • 5.3 2606013 Umsókn um stöðuleyfi, tjaldsvæði.
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 29 Byggingarfulltrúi samþykkir umsókn Húnabyggðar um stöðuleyfi fyrir einum 20 feta gám sem nýta á sem salernisaðstöðu á fyrirhuguðu tjaldsvæði sveitarfélagsins.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?