62. fundur 16. júní 2026 kl. 15:00 - 16:00 í norðursal íþróttamiðstöðvar
Nefndarmenn
  • Sævar Björgvinsson aðalmaður
  • Arnrún Bára Finnsdóttir aðalmaður
  • Atli Einarsson aðalmaður
  • Ágústa Rós Ingibjörnsdóttir aðalmaður
  • Ásdís Adda Ólafsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Skipan nefndar og ákvörðun fundartíma kjörtímabilið 2026-2030.

2606008

Samkvæmt erindisbréfi Skipulags- og samgöngunefndar skal nefndin á fyrsta fundi kjörtímabilsins kjósa sér formann og varaformann. Jafnframt þarf nefndin að ákveða reglulegan fundartíma og önnur atriði er varða fyrirkomulag nefndarstarfa á kjörtímabilinu 2026-2030.
Skipulags- og samgöngunefnd kýs Atla Einarsson sem formann nefndarinnar og Sævar Örn Björgvinsson sem varaformann kjörtímabilið 2026-2030. Jafnframt ákveður nefndin að reglulegir fundir verði haldnir fyrsta þriðjudag í mánuði kl.15:00, nema annað sé ákveðið sérstaklega.

2.Erindisbréf 2026-2030

2606007

Lagt er fram til kynningar erindisbréf Skipulags- og samgöngunefndar Húnabyggðar fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Í erindisbréfinu er kveðið á um hlutverk, verkefni, skipan og starfshætti nefndarinnar, auk réttinda og skyldna nefndarmanna.
Erindisbréf lagt fram til kynningar og vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Fálkagerði, umsókn um framkvæmdarleyfi vegna vegslóða.

2606002

Lögð var fram umsókn frá Ístaki hf. um framkvæmdaleyfi vegna tímabundins vegslóða sem nýta á við efnistöku í tengslum við stækkun gagnavers Borealis. Markmið framkvæmdarinnar er að draga úr umferðarálagi og raski á Svínvetningabraut, auka öryggi við flutninga og skapa betri aðstæður til að nýta stærri vinnuvélar við framkvæmdina. Samkvæmt umsókn er áætlað að flytja um 40.000 m³ af efni á um sex vikna framkvæmdatíma.
Skipulag- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirhugað framkvæmdarleyfi.

4.Skúfur, merkjalýsing

2606001

Lögð var fram merkjalýsing vegna hnitsetningar jarðarinnar Skúfs (L145477) í Húnabyggð. Merkjalýsingin er unnin af Káraborg ehf. samkvæmt lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024. Markmið hennar er að staðfesta afmörkun eignarinnar með hnitsettum landamerkjum og skrá þau í samræmi við gildandi kröfur. Fyrir liggja undirritanir eigenda jarðarinnar og aðliggjandi landeigenda sem staðfesta afmörkunina.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu vegna hnitsetningar jarðarinnar Skúfs, landeignanúmer L145477, í Húnabyggð.

5.Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir lagningu ljósleiðara.

2606006

Lögð var fram umsókn frá Ljósleiðaranum ehf. um framkvæmdaleyfi vegna lagningar nýs ljósleiðararörs við Blönduós. Framkvæmdin felst í lagningu ljósleiðararörs á um 3.300 metra kafla frá þjóðvegi að Fálkagerði. Gert er ráð fyrir að rörið verði að mestu lagt með plægingu en grafið þar sem aðstæður krefjast þess. Samkvæmt umsókn er áætlað að framkvæmdin taki innan við viku og fari fram á tímabilinu júlí?ágúst 2026 í samráði við hlutaðeigandi lóðarleigjendur og verktaka.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu umsóknar Ljósleiðarans ehf. um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðararörs við Blönduós verði frestað þar til fundur hefur farið fram með framkvæmdaraðilum vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Að fundi loknum verði umsóknin tekin til endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn.

6.Rarik óskar eftir leyfi til lagningar hitaveitu - Enni Húnabyggð

2606005

Lögð var fram umsókn frá RARIK ohf. um framkvæmdaleyfi vegna lagningar hitaveitu að Enni í Húnabyggð. Fyrirhuguð lagnaleið er um einn kílómetri að lengd og liggur um land jarðanna Ennis (L145418), Skúlahorns (L218020) og Skúlahorns lóðar (L145154). Fram kemur að lögnin verði plægð með sambærilegum hætti og við strenglagnir Rariks og að sérstök áhersla verði lögð á vandaðan frágang að framkvæmd lokinni. Áætlað er að verkið fari fram í ágúst-september 2026.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsókn Rariks ohf. um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu hitaveitu að Enni samkvæmt framlögðum gögnum.

7.Blöndubakki, umsókn um stofnun lóðar.

2606004

Lögð var fram skiptalýsing vegna stofnunar nýrrar lóðar úr landi Blöndubakka, landnúmer L145410. Samkvæmt framlögðum gögnum er um að ræða nýja lóð, Blöndubakka 3, að stærð 2.080 m², sem afmörkuð er samkvæmt meðfylgjandi hnitsettu mæliblaði. Jafnframt er kveðið á um umferðarrétt um núverandi heimreið og aðkomuvegi auk réttar til tengingar við neysluvatn og aðgangs að lögnum vegna reksturs og viðhalds.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða skiptalýsingu vegna stofnunar lóðarinnar Blöndubakka 3 úr landi Blöndubakka, L145410.

8.Míla, umsókn um framkvæmdaleyfi vegna ljósleiðaralagna,Borealis - Breiðavað

2606009

Lögð var fram umsókn frá Mílu hf. um framkvæmdaleyfi vegna nýlagningar ljósleiðara frá Breiðavaði að gagnaveri Borealis. Framkvæmdin felst í lagningu nýs ljósleiðara frá núverandi tengibrunni Mílu við Breiðavað, þar sem ljósleiðararör verður plægt niður í jörð, dregið í núverandi rör undir þjóðveg 1 og jafnframt undir Blöndu. Fram kemur að Borealis hafi óskað eftir því að ný lega ljósleiðarans verði aðskilin frá núverandi legu inn í gagnaverið til að auka rekstraröryggi. Áætlað er að framkvæmdir standi frá 1. júlí - 15. september 2026.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu umsóknar Mílu ehf. um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara frá Breiðavaði að gagnaveri Borealis verði frestað þar til fundur hefur farið fram með framkvæmdaraðilum vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Að fundi loknum verði umsóknin tekin til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.Breikkun á innkeyrslu við Sunnubraut 3

2606011

Með innsendu erindi dags. 12. júní 2026 óskar Kristín Ósk Bjarnadóttir eftir leyfi til að breikka innkeyrslu við Sunnubraut 3 um allt að 10 metra samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsóknina að uppfylltum skilyrðum reglna um breytingar á gangstéttum við innkeyrslur á lóð frá 12. september 2023.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?