61. fundur 07. maí 2026 kl. 15:00 - 17:00 Húnabraut 5 fundarsalur
Nefndarmenn
  • Zophonías Ari Lárusson formaður
  • Höskuldur Birkir Erlingsson varaformaður
  • Sverrir Þór Sverrisson aðalmaður
  • Agnar Logi Eiríksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags-og byggingafulltrúi
Dagskrá
SB boðaði forföll og í hans stað ABF

1.Umsókn um uppsetningu spennistöðvar við Hurðabak 2

2604005

Lagt er fram erindi frá RARIK ohf. er varðar uppsetningu spennistöðvar (smáhýsis) við Hurðarbak 2 á Ásum í Húnabyggð. Framkvæmdin tengist strenglagningu sem fór fram á árinu 2025.Samkvæmt erindinu hefur staðsetningu spennistöðvarinnar verið breytt í samráði við landeigendur og er nú gert ráð fyrir að hún verði staðsett aftan við vélaskemmu á lóðinni. Fyrir liggur samþykki landeiganda fyrir staðsetningunni.
Skipulags-og samgöngunefnd gerir ekki athugasemd við umsóknina og leggur til við sveitarstjórna að samþykkja umsóknina.

2.Másstaðir, merkjalýsing.

2604004

Lögð er fram merkjalýsing dags. 13. apríl 2026 vegna jarðarinnar Másstaða. Umsóknin tekur til annars vegar samruna landeigna og hins vegar stofnunar nýrrar lóðar úr landi Másstaða, samkvæmt uppdrætti og fylgigögnum.Fyrirhugað er að fella lóðina Másstaðir lóð (L144724) inn í upprunaland Másstaða (L144723) og í kjölfarið stofna nýja lóð úr landinu. Ný lóð fær staðfangið Steinkot og er skráð stærð hennar 5.995,5 m².
Skipulags- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við erindið og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu.

3.HB - Umsókn um framkvæmdaleyfi -vegna efnistöku.

2311394

Lagt er fram erindi frá Vegagerðinni um framlengingu á útgefnu framkvæmdaleyfi vegna efnisvinnslu í námum í Húnabyggð. Sótt er um að gildistími framkvæmdaleyfis verði framlengdur til 31. desember 2027.Framkvæmdaleyfið tekur til efnisvinnslu úr námu 21777 Syðri-Löngumýri og úr námu 18039 Blöndueyrar, við Svínvetningabraut (veg 731-03). Efnið er ætlað til lagfæringa og viðhalds á héraðsvegum og tengivegum á svæðinu.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlengingu framkvæmdaleyfisins til 31. desember 2027.

4.Óverulega breytinga á deiliskipulagi við Fálkagerði

2604006

Lögð fram tillaga Arkís arkitekta ehf. fyrir hönd Borealis Facilities ehf. að óverulegri breytingu á deiliskipulagi gagnavers við Svínvetningabraut

sem nær til lóðanna Fálkagerðis 1-7, Fálkagerðis 9 og Fálkagerðis 11.

Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði sameinaðar í eina lóð og byggingarreitir verði sameinaðir.

Sameinuð lóð er einnig stækkuð til vesturs og suðurs. Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti.
Skipulags-og samgöngunefnd telur að um sé að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til framangreinds er breytingin ekki talin krefjast grenndarkynningar og verður því afgreidd án auglýsingar.
Skipulags-og samgöngunefnd samþykkir breytinguna og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Umsókn um framkvæmdaleyfi á lóðum 9-11 að Fálkagerði.

2605001

Lagt er fram erindi frá Borealis Data Center ehf. um framkvæmdaleyfi á lóðum 9-11 við Fálkagerði í Húnabyggð. Umsóknin varðar jarðvinnu, þ.m.t. uppgröft og fyllingu á lóðum í þeim tilgangi að undirbúa svæðið fyrir fyrirhugaða uppbyggingu og byggingarframkvæmdir.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir umrædda framkvæmd.

6.Breyting á aðalskipulagi Húnavatnshrepps, Blöndulína 3

2407001

Tekið fyrir að nýju erindi um breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 vegna Blöndulínu 3. Erindið var á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 3. júní 2025 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að tillagan skyldi auglýst, að lokinni auglýsingu var erindið tekið fyrir á fundi nefndarinnar þann 3. febrúar þar sem afgreiðslu erindisins var frestað. Um er að ræða 220 kV loftlínu sem liggur um Húnabyggð á um 18 km löngum kafla frá Blöndustöð austur í Skagafjörð um Kiðaskarð niður í Mælifellsdal.

Tillaga með greinargerð, umhverfisskýrslu og uppdrætti var auglýst með athugasemdafresti frá og með 4.12.2025 - 15.01.2026. Þær athugasemdir sem bárust á kynningartíma gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að ganga frá gildistöku breytingarinnar í samræmi við 2. mgr. 33. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?