60. fundur 13. apríl 2026 kl. 15:00 - 16:15 Húnabraut 5 fundarsalur
Nefndarmenn
  • Zophonías Ari Lárusson formaður
  • Agnar Logi Eiríksson aðalmaður
  • Arnrún Bára Finnsdóttir varamaður
  • Grímur Rúnar Lárusson varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Skipulagsfulltrúi
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir embættismaður
  • Pétur Bergþór Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags-og byggingafulltrúi
Dagskrá
HBE boðaði forföll og í hans stað mætti GRL. SB boðaði einnig forföll og í hans stað mætti ABF.

1.Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga

2408023

Tekin fyrir að nýju vinnslutillaga Aðalskipulags Húnabyggðar 2025-2037. Tillagan var afgreidd til kynningar á íbúafundi á fundi nefndarinnar 3. febrúar 2026.

Tillagan var kynnt frá 12. mars til 10. apríl 2026. Opinn íbúafundur var haldinn þann 7. apríl í félagsheimilinu Blönduósi.

Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir umsagnir sem bárust á kynningartíma tillögunnar. Skipulagsfulltrúa er falið að gera lagfæringar á tillögunni í samræmi við umræður á fundinum. Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að uppfærð tillaga verði afgreidd í athugun fyrir auglýsingu hjá HMS í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Fundi slitið - kl. 16:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?