59. fundur 07. apríl 2026 kl. 15:00 - 16:30 Húnabraut 5 fundarsalur
Nefndarmenn
  • Zophonías Ari Lárusson formaður
  • Höskuldur Birkir Erlingsson varaformaður
  • Sverrir Þór Sverrisson aðalmaður
  • Agnar Logi Eiríksson aðalmaður
  • Sævar Björgvinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Skipulagsfulltrúi
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir embættismaður
  • Pétur Bergþór Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags-og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Deiliskipulag fyrir vatnsaflsstöðina Blöndustöð.

2510011

Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi Blöndustöðvar. Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina núverandi starfsemi vatnsaflsstöðvarinnar Blöndustöðvar ásamt frekari orkuvinnslu á veituleið.

Landsvirkjun áformar frekari nýtingu falls á núverandi veituleið Blöndustöðvar, frá Blöndulóni að Gilsárlóni skammt ofan Blöndustöðvar. Markmið verkefnisins er að fullnýta til orkuöflunar allt að 69 m fall á veituleið Blöndu frá Blöndulóni að inntakslóni Blöndustöðvar.

Fyrir liggur tillaga að deiliskipulagi frá Landslagi ehf, greinargerð ásamt þremur uppdráttum dags. 30. janúar 2026. Tillagan var síðast á dagskrá skipulags- og umhverfisnefndar þann 3. febrúar s.l. þar sem hún var afgreidd til auglýsingar. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti frá 12. febrúar - 26. mars 2026.

Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir innkomnar athugasemdir og leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagið verði afgreitt skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulags- og byggingafulltrúa verði falið að ganga frá gildistöku og auglýsa niðurstöðu sveitarstjórnar.
SÞS vék af fundi undir þessum lið.

2.Auðkúla 3 afrétt, umsókn um stöðuleyfi.

2604003

Fyrir liggur umsókn frá Sverri Þór Sverrissyni um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á lóðinni Auðkúlu 3 afrétt, samkvæmt framlögðum gögnum.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að veita umsækjanda stöðuleyfi fyrir einn 40 feta gám á lóðinni Auðkúlu 3 afrétt, til eins árs.
SÞS kom aftur inn á fundinn kl: 15:30

3.Breyting á deiliskipulagi við Hnjúkabyggð.

2604002

Breyting á deiliskipulagi fyrir nýtt tjaldsvæði við Hnjúkabyggð.
Skipulags-og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að gildandi deiliskipulag við Hnjúkabyggð verði skipt upp í tvö svæði og annar hlutinn tekin fyrir tjaldsvæði.

Fundi slitið - kl. 16:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?