Dagskrá
1.Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga
2408023
Til umfjöllunar lokayfirferð á vinnslutillögu.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að vinnslutillaga að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025 - 2037 verði samþykkt og verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2.Deiliskipulag vestan Svínvetningarbrautar
2509002
Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi nýs verslunar- og þjónustusvæðis við gatnamót Svínvetningabrautar og Norðurlandsvegar. Samhliða er fellt úr gildi deiliskipulag Undraveraldar við Blöndubakka.
Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 9. desember 2025 þar sem tillagan var afgreidd til auglýsingar að lokinni kynningu. Tillagan var kynnt á opnu húsi þann 12. desember og auglýst með athugasemdafresti frá 2. janúar til 13. febrúar 2026.

Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir athugasemdir sem bárust við kynningu tillögunnar. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt til gildistöku skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að ganga frá afgreiðslu.
3.Tilkynningarskyld framkvæmd vegna útlitsbreytinga við Brekkubyggð 18
2602006
Með innsendu erildi dags. 12. febrúar 2026 óskar Aðalheiður Lilja Magnúsdóttir eftir leyfi fyrir útlitsbreytingum að Brekkubyggð 18 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Nefndin telur að umrædd útlitsbreyting sé óveruleg og þarfnist því ekki grenndarkynningar.
Byggingafulltrúa falið að veita umbeðið leyfi.
Byggingafulltrúa falið að veita umbeðið leyfi.
4.Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lagningu láspennustrengja við Húnabraut 2
2602007
RARIK ohf óskar hér með eftir framkvæmdaleyfi til Húnabyggðar skv. 13. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerð nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
Framkvæmdin felur í sér lagningu tveggja lágspennustrengja frá spennistöð S-055 að Húnabraut 2A.
skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerð nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
Framkvæmdin felur í sér lagningu tveggja lágspennustrengja frá spennistöð S-055 að Húnabraut 2A.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framkvæmdarleyfið.
Samráð skal haft við skipulags-og byggingafulltrúa um framkvæmd og lagnaleið.
Samráð skal haft við skipulags-og byggingafulltrúa um framkvæmd og lagnaleið.
5.Hvammur, merkjalýsing
2602009
Eigendur Hvamms í langadal sækja um stofnun 450,0 m2 lóðar úr landi Hvamms undir undir íbúðarhús sem þar stendur, samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Birni Magnúsi Árnasyni hjá Stoð ehf dagsettri þann 22. janúar 2026. Sótt er um að ný landeign fái staðfangið Hvammur 2.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórnar að samþykkja merkjalýsinguna.
6.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 27
2602003F
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
-
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 27 Ekki eru gerðar athugasemdir að hálfu slökkviliðs, en þar sem í gildandi aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 er einungis heimild fyrir þrjú stök frístundarhús á lögbýlum er ekki hægt að heimila byggingu fleiri er þriggja húsa. Í vinnslu er nýtt aðalskipulag sem muna líklega heimila fleiri frístundarhús á lögbýlum.
Er því veitt heimild til byggingar allt að þriggja hús í Friðvík á þessari stundu.
Fundi slitið - kl. 18:00.