Dagskrá
1.Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga
2408023
Tekið fyrir að nýju, Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga, nýtt aðalskipulag fyrir Húnabyggð. Áður var skipulagslýsing tekin fyrir í skipulags- og samgöngunefnd þann 2. október 2024 og samþykkt til auglýsingar. Skipulagslýsing var auglýst frá 28. október til 28. nóvember 2024. Athugasemdir sem bárust við lýsinguna voru nýttar við mótun vinnslutillögu. Fyrir liggur vinnslutillaga að nýju aðalskipulagi fyrir Húnabyggð frá Landslagi ehf dags. 30. janúar 2025, sem felur í sér samþættingu á landnotkun fyrrum Skagabyggðar, Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Farið hefur verið yfir stefnur fyrrum sveitarstjórna og þær rýndar af skipulags- og samgöngunefnd f.h. sveitarstjórnar Húnabyggðar. Afraksturinn er settur fram í greinargerð sem inniheldur forsendur stefnumótunar og umhverfisskýrslu þar sem metin eru umhverfisáhrif stefnunnar á tiltekin efnistatriði. Aðalskipulagið innheldur stefnu sveitarstjórnar um þróun landnotkunar í sveitarfélaginu til 12 ára.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að vinnslutillaga að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025 - 2037 verði samþykkt og verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi þann 24. febrúar 2026 í félagsheimilinu á Blönduósi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2.Breyting á aðalskipulagi Húnavatnshrepps, Blöndulína 3
2407001
Tekið fyrir að nýju erindi um breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 vegna Blöndulínu 3. Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 3. júní 2025 þar sem lagt var til við sveitarstjórn að tillagan skyldi auglýst. Um er að ræða 220 kV loftlínu sem liggur um Húnabyggð á um 18 km löngum kafla frá Blöndustöð austur í Skagafjörð um Kiðaskarð niður í Mælifellsdal.
Tillaga með greinargerð, umhverfisskýrslu og uppdrætti var auglýst með athugasemdafresti frá og með 4.12.2025 - 15.01.2026. Þær athugasemdir sem bárust á kynningartíma gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.

Afgreiðslu frestað.
3.Deiliskipulag fyrir vatnsaflsstöðina Blöndustöð.
2510011
Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi Blöndustöðvar. Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina núverandi starfsemi vatnsaflsstöðvarinnar Blöndustöðvar ásamt fyrirhugaðri uppbyggingu.
Landsvirkjun áformar frekari nýtingu falls á núverandi veituleið Blöndustöðvar, frá Blöndulóni að Gilsárlóni skammt ofan Blöndustöðvar. Markmið verkefnisins er að fullnýta til orkuöflunar allt að 69 m fall á veituleið Blöndu frá Blöndulóni að inntakslóni Blöndustöðvar.
Tillagan er í samræmi skipulagslýsingu sem kynnt var þann 14. desember 2023 til 14. janúar 2024.
Vinnslutillaga var kynnt á opnu húsi 19. nóvember 2025 og var hægt að gera athugasemdir við vinnslutillöguna frá 13. til 27. nóvember 2025.

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillaga að deiliskipulagi Blöndustöðvar verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4.Ósk um umsögn vegna fyrirhugaðrar virkjunar Fossár og Langavatnsár með vatnsmiðlun í Langavatni í Húnabyggð.
2601012
Á 134. fundi Byggðarráðs þann 21. janúar 2026 var erindi frá Umhverfis-og orkustofnun dags. 9. janúar 2026 vísað til Skipulags-og samgöngunefndar. Óskað er eftir umsögn vegna leyfis til rannsókna vegna fyrirhugaðrar virkjunar Fossár og Langavatnsár með vatnsmiðlun í Langavatni í Húnabyggð. Fyrir liggur umsögn heimastjórnar fyrrum Skagabyggðar.
Skipulags- og samgöngunefnd ákveður að vísa málinu til sveitarstjórnar.
Samþykkt með fjórum atkvæðum ZAL situr hjá.
Samþykkt með fjórum atkvæðum ZAL situr hjá.
5.Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030.
2508009
Tekin fyrir tillaga að breyting á aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 eftir auglýsingu. Aðalskipulagsbreytingin var auglýst frá 16.12.2025 til 27.01.2026. Á auglýsingatíma bárust umsagnir/athugasemdir frá Minjastofnun Íslands, Rarik og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra. Ekki voru gerðar athugasemdir við tillöguna.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og málsmeðferð verði skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6.Breyting á deiliskipulagi íbúðabyggðar við Sunnubraut á Blönduósi.
2508007
Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Sunnubraut eftir auglýsingu. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst frá 16.12.2025 til 27.01.2026. Á auglýsingatíma bárust umsagnir/athugasemdir frá Mílu, Minjastofnun Íslands, Rarik og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra. Ekki voru gerðar athugasemdir við tillöguna.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og málsmeðferð verði skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

7.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 25
2601003F
25. fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 17:00.