51. fundur 09. desember 2025 kl. 15:30 - 17:30 Húnabraut 5
Nefndarmenn
  • Zophonías Ari Lárusson formaður
  • Höskuldur Birkir Erlingsson varaformaður
  • Sverrir Þór Sverrisson aðalmaður
  • Grímur Rúnar Lárusson varamaður
    Aðalmaður: Agnar Logi Eiríksson
  • Sævar Björgvinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir
  • Pétur Bergþór Arason
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags-og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Breyting á aðalskipulagi gamla bæjarins og Klifamýrar

2504041

Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 vegna breytinga á landnotkun í Gamla bænum og Klifamýri. Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 2. september 2025 þar sem vinnslutillaga var samþykkt til kynningar. Kynning vinnslutillögu fór fram 15. september - 27. október 2025 og var íbúafundur haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi fimmtudaginn 16. október s.l.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur fjallað um þær athugasemda sem bárust við kynningu. Skipulags-og byggingafulltrúa falið að vinna málið áfram.

2.HB- Deiliskipulag gamla bæjarins

2311019

Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi Gamla bæjar og Klifamýri. Erindið var síðast á dagskrá skipulags- og samgöngunefndar þann 2. september 2025 þar sem vinnslutillaga var samþykkt til kynningar. Kynning vinnslutillögu fór fram 15. september 2025 - 27. október 2025 og var íbúafundur haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi fimmtudaginn 16. október s.l.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur fjallað um þær athugasemda sem bárust við kynningu. Skipulags-og byggingafulltrúa falið að vinna málið áfram.

3.Aðalskipulagsbreyting vestan Svínvetningarbrautar

2511006

Tekin fyrir tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030.

Í tillögunni er gert ráð fyrir því að á svæðinu byggist upp verslun og fjölorkustöð. Áður var í gildi landnotkunin opið svæði og deiliskipulag skemmtigarðsins Undraveröld við Blöndubakka.

Áður var skipulagslýsing tekin fyrir á fundi skipulags- og samgöngunefndar þann 7. október s.l. og samþykkt að lýsingin yrði kynnt. Lýsingin var í kynningu frá 17. október til 7. nóvember. Athugasemdir sem bárust við lýsinguna voru nýttar við mótun skipulagstillögu.
Skipulags- og samgöngunefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna tillögur að breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2022 vegna þjónustulóðar við Svínvetningabraut skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst að lokinni athugun Skipulagsstofnunar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Deiliskipulag vestan Svínvetningarbrautar

2509002

Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi fyrir þjónustulóð við Svínvetningabraut.

Í tillögunni er gert ráð fyrir því að á svæðinu byggist upp verslun og fjölorkustöð. Áður var í gildi deiliskipulag skemmtigarðsins Undraveröld við Blöndubakka.

Áður var skipulagslýsing tekin fyrir á fundi skipulags- og samgöngunefndar þann 7. október s.l. og samþykkt að lýsingin yrði kynnt. Lýsingin var í kynningu frá 17. október til 7. nóvember. Athugasemdir sem bárust við lýsinguna voru nýttar við mótun skipulagstillögu.
Skipulags- og samgöngunefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna tillögu að deiliskipulag þjónustulóðar við Svínvetningabraut skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúi verði falið að auglýsa tillöguna að lokinni kynningu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Merkjalýsing vegna Merkjalækjar

2511004

Sigurður H. Pétursson sækir um hnitsetning landamerkja Merkjalæks, L145293, samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Stoð verkfræðistofu ehf. dagsettri þann 2. október 2025.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja hnitsetningu landamerkja.

6.Merkjalýsing, Nautabú vegsvæði.

2511018

Vegagerðin sækir um að stofna 9570 m² vegsvæði úr landi Nautabús L144691 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 7. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Nautabú vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

7.Merkjalýsing, Kornsá vegsvæði.

2511017

Vegagerðin sækir um að stofna 24.732 m² vegsvæði úr landi Kornsá L144684 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 8. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Kornsá vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

8.Merkjalýsing, Kornsá 2 vegsvæði.

2511016

Vegagerðin sækir um að stofna 20.946 m² vegsvæði úr landi Kornsá 2 L144685 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 8. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Kornsá 2 vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

9.Merkjalýsing, Hnjúkur vegsvæði.

2511015

Vegagerðin sækir um að stofna 60.570 m² vegsvæði úr landi Hnjúks L144716 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 7. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Hnjúkur vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

10.Merkjalýsing, Breiðabólstaður 2 vegsvæði

2511014

Vegagerðin sækir um að stofna 4.196 m² vegsvæði úr landi Breiðabólstaðs 2 L144705 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 7. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Breiðabólstaður 2 vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

11.Merkjalýsing, Breiðabólstaður 1 vegsvæði

2511013

Vegagerðin sækir um að stofna 24.120 m² vegsvæði úr landi Breiðabólstaðs 1 L144702 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 7. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Breiðabólstaður 1 vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

12.Merkjalýsing, Miðhús vegsvæði

2511012

Vegagerðin sækir um að stofna 26.827 m² vegsvæði úr landi Miðhúsa L144725 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 7. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Miðhús vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

13.Merkjalýsing, Litlu Sveinsstaðir vegsvæði.

2511011

Vegagerðin sækir um að stofna 703 m² vegsvæði úr landi Litlu Sveinsstaða L221013 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 7. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Litlu Sveinsstaðir vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

14.Merkjalýsing, Sveinsstaðarétt vegsvæði

2511010

Vegagerðin sækir um að stofna 398 m² vegsvæði úr landi Sveinsstaðarétt L227455 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 7. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Sveinsstaðarétt vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

15.Merkjalýsing, Sveinsstaðir vegsvæði.

2511019

Vegagerðin sækir um að stofna 34.860 m² vegsvæði úr landi Sveinsstaða L144729 undir vegsvæði Vatnsdalsvegar (722-01), samkvæmt merkjalýsingu gerðri af Ástu Guðrúnu Beck dagsettri þann 15. maí 2025. Sótt er um að vegsvæðið fái staðfangið Sveinsstaðir vegsvæði.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórna að samþykkja stofnun vegsvæðis.

Fundi slitið - kl. 17:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?