Dagskrá
BÞH og ALE boðuðu forföll og í þeirra stað komu SB og GRL.
1.Merkjalýsing vegna Geirastaða
2505008
Til afgreiðslu merkjalýsing vegna hnitsetningar Geirastaða.
Nefndin gerir ekki athugasemdir og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
2.Merkjalýsing vegna stofnunar spildu úr Beinakeldu 2.
2505009
Til afgreiðslu umsókn um stofnun spildu úr landi Beinakeldu 2 ásamt meðfylgjandi merkjalýsingu.
Nefndin gerir ekki athugasemdir og felur skipulagsfulltrúa að stofna umbeðna spildu.
3.Umsókn um leyfi til uppsetningar á skilti
2505007
Með innsendu erindi óskar Stefán Jónsson fyrir hönd meistaraflokksráðs Kormáks/Hvatar eftir leyfi til uppsetningar á skilti samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Skipulags-og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við staðsetningu á skiltinu en bendir umsækjanda á að samkvæmt 2.5.1.gr byggingarreglugerðar nr. 112/2012, þarf að sækja um byggingarheimild fyrir framkvæmdinni.
4.Ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna fimm efnistökusvæða
2402037
Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010 - 2030. Tillagan var samþykkt til auglýsingar í sveitarstjórn þann 11. febrúar 2025 og auglýst með athugasemdafresti frá og með 10. mars 2025 til og með 24. apríl 2025. Umsagnir frá 6 umsagnaraðilum bárust á auglýsingatíma.
Skipulags- og samgöngunefnd hefur farið yfir umsagnir sem bárust á auglýsingatíma og svör við þeim. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að taka tillit til athugasemda sem bárust við breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010 - 2030 og að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að sjá um málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5.Breyting á aðalskipulagi Húnavatnshrepps, Blöndulína 3
2407001
Tekið fyrir að nýju erindi um breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 vegna Blöndulínu 3. Um er að ræða 220 kV loftlínu sem liggur um Húnabyggð á um 18 km löngum kafla frá Blöndustöð austur í Skagafjörð um Kiðaskarð niður í Mælifellsdal.
Skipulags- og matslýsing var kynnt frá 27. ágúst - 20. september sl. og umsagnir nýttar við mótun tillögu að breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps.
Fyrir liggur tillaga dags. 2. október 2024 frá Landslagi ehf. með greinargerð, umhverfisskýrslu og uppdrætti.
Skipulags- og matslýsing var kynnt frá 27. ágúst - 20. september sl. og umsagnir nýttar við mótun tillögu að breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps.
Fyrir liggur tillaga dags. 2. október 2024 frá Landslagi ehf. með greinargerð, umhverfisskýrslu og uppdrætti.
Skipulags- og samgöngunefnd samþykkir að tillagan verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og leggur til við sveitarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
6.Framkvæmdir og gatnagerð
2305035
Á 102. fundi byggðarráðs þann 10. apríl 2025 var skipulags-og samgöngunefnd falið að skoða umferðaröryggi á Melabraut við íþróttahús og Húnabraut 5.
Skipulags- og samgöngunefnd felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram og jafnframt að skoða staðsetningu á gangbrautum á Húnabraut þar sem að hámarkshraðinn er 30 km/klst.
Fundi slitið - kl. 16:15.