Dagskrá
BHÞ boðaði forföll og í hans stað mætti SB
1.Aðalskipulag sameinaðara þriggja sveitarfélaga
2408023
Áframhaldandi vinna við nýtt aðalskipulag Húnabyggðar.
Farið var yfir drög af landnýtingarflokkum í þéttbýli og dreifbýli ásamt merkingum á gönguleiðum ofl.
2.Ósk um verulega breytingu á Aðalskipulagi Skagabyggðar 2010 - 2030
2503030
Tekin fyrir tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Skagabyggðar 2010 - 2030 dags. 9. maí s.l. frá Landslagi ehf.
Sveitarfélagið hyggur á breytingu á aðalskipulagi að beiðni Vegagerðarinnar sem mun heimila aukna efnistöku úr efnistökusvæðinu Skeggjastaðir-ES12 við Skagaveg (745) úr 30.000 m3 í 450.000 m3. Gert er ráð fyrir því að efnið verði nýtt í viðhald og endurbætur á vegum í sveitarfélaginu. Samhliða er unnið að könnun á matsskyldu þar sem framkvæmdin fellur innan viðmiða 1. viðauka í flokki B skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Erindið var síðast tekið fyrir á fundi skipulags- og samgöngunefndar þann 19. mars s.l. þar sem samþykkt var að skipulagslýsing skyldi kynnt íbúum og hagsmunaaðilum. Skipulagslýsingin var til umsagnar á skipulagsgátt frá 11. apríl til og með 2. maí s.l. og hefur verið tekið til þeirra athugasemda sem bárust við mótun vinnslutillögu.

Skipulags- og samgöngunefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna vinnslutillögu fyrir opnu húsi og leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
3.Ósk Vegagerðarinnar um breytingar á aðalskipulagi Húnavatnshrepps vegna efnistökusvæðis við Hnjúk í Vatnsdal.
2503053
Tekin fyrir tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 dags. 9. maí s.l. frá Landslagi ehf.
Sveitarfélagið hyggur á breytingu á aðalskipulagi að beiðni Vegagerðarinnar vegna skilgreiningu efnistökusvæðis að Hnjúki í Vatnsdal. Áformin fela í sér landslagsmótun fyrir nýja landbúnaðarbyggingu og nýtingu jarðefna sem falla til við framkvæmdina. Um er að ræða 10.000 m3 efnis á um 10.000 m2 svæði. Erindið var síðast tekið fyrir á fundi skipulags- og samgöngunefndar þann 1. apríl s.l. þar sem samþykkt var að skipulagslýsing skyldi kynnt íbúum og hagsmunaaðilum. Skipulagslýsingin var til umsagnar á skipulagsgátt frá 11. apríl til og með 2. maí s.l. og hefur verið tekið til þeirra athugasemda sem bárust við mótun vinnslutillögu.

Skipulags- og samgöngunefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna vinnslutillögu fyrir opnu húsi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
4.Breyting á aðalskipulagi gamla bæjarins og Klifamýrar
2504041
Tekin fyrir skipulagslýsing dags. 28. apríl s.l. vegna breytingar á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010 - 2030 fyrir gamla bæjarkjarnann og Klifamýri á Blönduósi.
Í breytingu á aðalskipulagi verða gerðar breytingar á landnotkun og skilgreint miðsvæði um gamla bæjarkjarnann með ákvæðum um vernd byggðarinnar og stefnu fyrir útlit og ásýnd bygginga á svæðinu. Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi verður stefnumótandi fyrir deiliskipulag sem unnið er samhliða breytingu á aðalskipulagi. Skipulagslýsing er í samræmi við lýsingu deiliskipulags fyrir svæðið sem kynnt var þann 28.10.2024 til 28.11.2024.

Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5.Framkvæmdir og gatnagerð
2305035
Á 102. fundi byggðarráðs þann 10. apríl 2025 var skipulags-og samgöngunefnd falið að skoða umferðaröryggi á Melabraut við íþróttahús og Húnabraut 5.
Skipulags- og samgöngunefnd fór yfir málið og verða tillögur um breytingar lagðar fyrir næsta fund nefndarinnar.
ZAL vék af fundi undir þessum lið kl. 16:49
6.Umsókn um byggingarleyfi við Brimslóð 8
2503057
Með innsendu erindi óskar Inga Elsa Bergþórsdóttir fyrir hönd Brimslóðar ehf eftir byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á rörasteypunni við Brimslóð 8.
Skipulags- og samgöngunefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu erindis varðandi útgáfu byggingarleyfis við Brimslóð 8 verði hafnað þar sem að núgildandi aðalskipulag svæðisins leyfir ekki slíka framkvæmd.
Verið er að vinna deiliskipulag fyrir umrætt svæði og jafnframt breytingar á aðalskipulagi svæðisins. Það er yfirlýstur vilji sveitarfélagsins að hverfisvernd verði á gamla bænum og að ásýnd byggðarinnar verði varðveitt. Í deiliskipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag svæðisins sem auglýst var 18. júlí - 18. ágúst 2024, er skýrt tekið fram að unnið skuli að vernd, viðhaldi, endurheimt og styrkingu bæjarmyndar gamla bæjarkjarnans og Klifamýrar. Sveitarfélagið hefur um langt árabil, eða frá árinu 2017 unnið að verndun svæðisins og stefnt er að því að þær fyriráætlanir verði staðfestar í nýju deiliskipulagi og aðalskipulagi.
Nefndin bendir umsækjanda á að innsendar hugmyndir séu í takt við þá vinnu sem unnin hefur verið í nýju deiliskipulagi þar sem endurheimt horfinna húsa hefur verið rædd. Skipulagsfulltrúa er falið að ræða við umsækjanda og fara yfir og kynna stöðu skipulagsvinnunar og fara yfir þá möguleika sem hugmynd umsækjenda gæti haft í nýju deiliskipulagi.

Samþykkt með þremur atkvæðum og einn situr hjá (SÞS).
Fundi slitið - kl. 17:30.