14. fundur 23. febrúar 2026 kl. 16:08 - 17:03
Nefndarmenn
  • Grímur Rúnar Lárusson formaður
  • Agnar Logi Eiríksson aðalmaður
  • Ólafur Sigfús Benediktsson aðalmaður
  • Ásdís Ýr Arnardóttir varamaður
  • Jenný Lind Gunnarsdóttir varamaðir
Starfsmenn
  • Kristín Ingibjörg Lárusdóttir menningar-
  • Pétur Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Grímur Rúnar Lárusson formaður

Grímur Rúnar Lárusson, formaður nefndarinnar, bauð fundarmenn velkomna til fjórtánda fundar í Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd Húnabyggðar.

Gengið var til dagskrár.

Dagskrá:

  1. Sumarfjör sumarið 2026

Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar mætti á fundinn og kynnti Sumarfjör í Húnabyggð sumarið 2026. Kristín greindi frá því að hún væri búin að manna Sumarfjörið í sumar í samvinnu við velferðarsvið Húnabyggðar. Fyrirkomulagið á Sumarfjöri í sumar verður með svipuðu sniði og í fyrra. Fyrirhugað er að Sumarfjörið byrji mánudaginn 8. júní nk. og ljúki fimmtudaginn 16. júlí nk.

Dagskrá og skráning í Sumarfjör verður kynnt á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins um miðjan maí nk.

Lagt fram til kynningar.

  1. 2402034 - Skjólið – starfið

Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar, mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir starfið í félagsmiðstöðinni í vetur. Aðsókn í Skjólið í vetur hefur verið með fínasta móti. Tveir starfsmenn hafa unnið í dagopnun Skjólsins og sex starfsmenn hafa verið í tímavinnu á kvöldin í vetur.

Kristín fór yfir að Landsmót Samfés hefði verið haldið í Húnabyggð helgina 3.-5. október sl. þar sem um 400 ungmenni mættu ásamt starfsfólki. Landsmótið fór vel fram og hafði mjög jákvæð áhrif á samfélagið hér í Húnabyggð.

Lagt fram til kynningar.

  1. 2504020 - Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna

Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar, mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti áætlanir um nýtingu styrks sem Húnabyggð fékk á haustmánuðum á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A. 10 Almenningssamgöngur á milli byggða. Hugmyndir eru um að börn í dreifbýli fái akstur heim úr félagsmiðstöð eitt kvöld í viku á fyrir fram ákveðnar stoppistöðvar. Á næstu vikum verður sett af stað tilraunaverkefni vegna þessa. Verið er að kortleggja leiðir og á næstu vikum verður hugmyndin kynnt fyrir foreldrum barna í 8.-10. bekk í dreifbýli Húnabyggðar. Aukinheldur verði lögð könnun fyrir þau um fyrirkomulag akstursins. Umræður urðu á fundinum um málið og tekur nefndin jákvætt í verkefnið.

Þá hefur Innviðaráðherra auglýst eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A. 10 Almenningssamgöngur á milli byggða. Við forgangsröðun umsókna verður litið til verkefna sem m.a. auka möguleika ungs fólks á dreifbýlum svæðum til að sækja íþrótta- og menningarstarfsemi.

Hugmyndir eru uppi um að Húnabyggð sæki að nýju um framlag og þá vegna aksturs í íþrótta-, tómstunda-, og fræðslustarfsemi á Sauðárkróki fyrir íbúa Húnabyggðar. Nefndin felur menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa Húnabyggðar að útfæra hugmyndina nánar og sækja um framlag.

  1. 2206034 - Önnur mál

Engin önnur mál lágu fyrir fundinum.

Getum við bætt efni þessarar síðu?