4. fundur 12. júní 2025 kl. 13:00 - 14:30 Skagabúð
Nefndarmenn
  • Erla Jónsdóttir
  • Magnús Björnsson
  • Bjarney Jónsdóttir
  • Kristján Steinar Kristjánsson
  • Vignir Sveinsson

Heimastjórn fyrrum Skagabyggðar


Heimastjórn fundur 2025-4
Skagabúð 12.júní 2025 kl 13:00


Mætt voru: Erla Jónsdóttir, Magnús Björnsson, Bjarney Jónsdóttir, Kristján Steinar Kristjánsson
og Vignir Sveinsson.
Erla setti fundinn, gengið var til dagskrár.


1. Vatnsöflun fyrir Skagabúð
Búið er að bora og fannst mikið magn af vatni, formanni falið að vinna málið áfram.

2. Vegaframkvæmdir
Innviðaráðuneytið lofaði sveitarstjórnum Skagabyggðar og Húnabyggðar að bundið slitlag yrði
lagt á Skagaveg á árinu 2025 en nú hefur því verið frestað til 2026. Formanni falið að senda
erindi til Innviðaráðuneytisins og þingmönnum kjördæmisins og mótmæla fyrirhugaðri frestun á
framkvæmdum við Skagaveg.


3. Styrkveiting Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða til Kálfshamarsvíkur
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur gert samning við sveitarfélagið um 18.250.000 kr
styrk “til hönnunar á grundvelli gildandi deiliskipulags, s.s. skiltum sem og fyrstu útfærslum á
öðrum innviðum. Framkvæmdin felst í lagningu stíga með aðgengi fyrir öll frá núverandi
bílastæði að vitanum í Kálfshamarsvík, sem og styrkingu þeirra gönguleiða sem skilgreindar eru
í gildandi deiliskipulagi.” Stjórnin leggur til að hafið verði strax vinnu við þessa hönnun.


4. Erindi frá Magnúsi Davíð NorðdahlLagt er til við sveitarstjórn Húnabyggðar að leita samninga við Magnús um aðgengi að
borholuvatni fyrir Kálfshamarsnesið.


5. Skipulagsmál
Erindi lá fyrir um sýslumörk á Skaganum á milli Austur-Húnavatnssýslu og Skagafjarðar,
ágreiningur hefur ríkt um þessi mörk. Heimastjórn vísar í fund með sveitarstjórn Húnabyggðar í
mars þar sem þetta var rætt. Heimastjórn leggur til að byggingarfulltrúi Húnabyggðar kalli
Kristján Steinar Kristjánsson og Magnús Björnsson á fund til þess að fara yfir þessi mál.


6. Önnur mál
Umræður urðu um girðingarmál í fyrrum Skagabyggð, heimastjórn leggur áherslu á að samið
verði við verktaka hið fyrsta til þess að fara með girðingum sveitarfélagsins. Það sé mikilvægt
að yfirfara allar girðingar strax og aðstæður leyfa.
Fundargerð lesin upp og samþykkt, fundi slitið kl. 14:30

Getum við bætt efni þessarar síðu?