Dagskrá
- Innritunarreglur leikskóla
Leikskólastjóri lagði fram breytingar á 2. og 5. grein innritunarreglna leikskóla og eru breytingarnar undirstrikaðar.
- Sótt er um leikskóladvöl á heimasíðu leikskólans. Innritun nemenda fer fram allt árið í samræmi við forgangsreglur og aðstæður í leikskólanum hverju sinni. Umsóknir þeirra nemenda sem hefja skólavist í upphafi nýs skólaárs skulu berast fyrir 1. júní ár hvert og eru þær umsóknir afgreiddar í lok júní/byrjun júlí. Þó gildir sú undantekning að börn sem ná 12 mánaða aldri eftir 1. maí hefja ekki vist fyrr en 1. september.
- Innritun er alfarið í höndum leikskólastjórnenda þar sem aðstæður í leikskólanum ráða því hvenær leikskólaganga getur hafist. Aðlögun á yngstu deildinni getur verið krefjandi og fylgir henni töluvert álag, bæði fyrir börn og starfsfólk. Því er það í höndum leikskólastjórnenda að skipuleggja innritun sem fer fram á miðju skólaári með þeim hætti að hún valdi sem minnstri röskun á starfsemi deildarinnar. Öllum umsóknum er svarað með tölvupósti.
Rökstuðningur leikskólastjóra er eftirfarandi:
Til að trygga gæði námsins og vellíðan barnanna á yngstu deild leikskólans
Ungbörn þurfa mikinn stöðugleika til að líða vel. Ef ný börn hefja vistun reglulega yfir allt árið getur það raskað ró og öryggistilfinningu þeirra barna sem þegar eru í hópnum.
Starfsfólk þarf svigrúm til að mynda góð og traust tengsl við hvert barn. Þegar aðlögun er afmörkuð við ákveðna tíma getur starfsfólk einbeitt sér betur að því að kynnast nýjum börnum án þess að það bitni á umönnun annarra.
Barnahópurinn þarf tíma til að mótast og finna sameiginlegan takt. Stöðugar breytingar á barnahópnum geta hamlað því að börnin nái að finna sig örugg í umhverfinu.
Leikskólastarf krefst skipulags og undirbúnings. Ef starfsfólk er stöðugt í aðlögunarferli nýtist minni tími í faglega vinnu, svo sem málörvun og hreyfingu, sem er mikilvægt fyrir þroska tólf mánaða barna.
Aðlögun nýrra barna er krefjandi verkefni fyrir starfsfólk. Með því að afmarka þetta tímabil má koma í veg fyrir langvarandi álag, sem eykur líkur á meiri starfsánægju og betri þjónustu við börnin.
Bókun fundar
Fræðslunefnd samþykkir breyttar innritunarreglur leikskóla samhljóða.
- Erindi til fræðslunefndar vegna húsnæðis skóladaheimilis (Stóri-Fjallabær)
Erindi barst frá skólastjóra Húnaskóla, forstöðumanni Skóladagheimilis, tómstundafulltrúa og fræðslustjóra vegna húsnæðismála skóladagheimilisins en síðustu skólaár hefur elsti árgangur leikskóla verið með aðstöðu í Húnaskóla, í rými sem Skóladagheimilið hafði aðsetur áður. Þetta hefur leitt til þess að þrengt er að starfsemi Skóladagheimilisins og er það á ýmsum stöðum innan Húnaskóla og er vinnuaðstaða barnanna og starfsfólks krefjandi.
Bókun fundar
Fræðslunefnd þakkar fyrir erindið og gerir sér grein fyrir að aðstaða skóladagheimilisins er krefjandi og ekki eins og best verður á kosið. Miklar umræður urðu um erindið og er lagt til að fræðslunefnd boði til auka fundar með hagaðilum sem fyrst.
- Skýrla leikskólastjóra
Sigríður B. Aadnegard fór yfir skýrslu sína er varðar starf leikskólans en þessum lið var frestað á síðasta fundi fræðsluefndar.
Skýrsla um starfsemi leikskólans
Viðburðir og félagslíf Í desembermánuði var mikið um dýrð í skólastarfinu. Elstu nemendur leikskólans sungu á aðventuhátíð í gamla bænum og tókst það mjög vel. Foreldrum var boðið í heitt kakó og piparkökur í skólanum sem skapaði góða stemningu. Foreldrafélagið stóð auk þess fyrir skemmtilegu jólaballi. Á degi leikskólans var efnt til morgunverðar þar sem foreldrar borðuðu með börnum sínum.
Upplýsingamál Ný heimasíða skólans var tekin í notkun í desember. Hún mun bæta upplýsingamiðlun til foreldra og annarra hagsmunaaðila.
Starfsmannahald og menntun Allar starfsgildi við skólann eru nú skipuð. Mikil áhersla er lögð á símenntun. Þrír starfsmenn eru í starfsnámi, sem veldur auknu álagi á aðra starfsmenn. Auk þess sækja fimm starfsmenn reglulegar námslotur.
Í febrúar hófst íslenskukennsla fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Sjö starfsmenn leikskólans taka þátt í náminu. Þrír þeirra eru á þriðja stigi íslenskunáms og fjórir á fyrsta stigi. Kennsla fer fram tvisvar í viku, tvo tíma í senn.
Starfsumhverfi og álag Mikið álag var á starfsfólki í lok janúar og byrjun febrúar. Það skýrist af miklum veikindum samhliða námsleyfum starfsmanna.
Nemendur og innritun Nemendur eru nú 71 talsins. Búið er að innrita öll börn sem fædd eru árið 2025 og hafa aldur til að hefja nám. Tvær umsóknir liggja fyrir vegna barna sem munu hefja nám eftir sumarfrí.
Bókun fundar
Fræðslunefnd þakkar Sigríði fyrir skýrsluna.
