8. fundur 28. apríl 2026 kl. 15:30 - 17:05 Ráðhús
Nefndarmenn
  • Guðmundur Rúnar Halldórsson fyrir hönd fjallskiladeildar Eyvindastaðarheiðar.
  • Helgi Páll Gíslason fyrir hönd fjallskiladeildar Auðkúluheiðar.
  • Anna Margrét Jónsdóttir fyrir hönd fjallskiladeildar Skrapatunguafrétta.
  • Hilmar Smári Birgisson fyrir hönd fjallskiladeildar Grímstungu- og Haukagilsheiða.
  • Jón Helgi Sigurgeirsson fyrir hönd fjallskiladeilda Skagaheiða
Starfsmenn
  • Pétur Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Pétur Arason sveitarstjóri

Dagskrá

  1. Sauðadalur

Báðar deildir hafa tekið málið fyrir og bókanir deildanna eru samhljóða þ.e. að báðar deildir leggja til að núverandi samningi verði sagt upp og samningaviðræður fyrir fjallskil á Sauðadal fyrir næsta ár hefjist sem fyrst. Fjallskilanefnd beinir því til byggðarráðs að núgildandi samningi verði sagt upp.

 

  1. Styrkvegaframkvæmdir

Lagðar fram þrjár nýjar tillögur um styrkvegaframkvæmdir frá fjallskiladeild Skaga­heiða. Tillögurnar verða settar inn í þær tillögur sem þegar eru komnar fram. Endanlegar ákvarðanir um styrkvegaframkvæmdir verða teknar á næsta fundi nefndarinnar.

 

  1. Göngur og réttir

Réttir í Skrapatungu-, Auðkúlu-, Hlíðar og Undirfellsréttum verða 5-6. september. Dagsetningar fyrir aðrar réttir eru ekki endanlega ákveðnar.

 

Í yfirstandnandi vinnu með breytingar á fjallskilasamþykkt A-Hún hefur verið gert ráð fyrir því að réttir geti verið fyrr en nú er. Þær fjallskiladeildir sem ákveðið hafa að hafa réttir fyrr en skilgreint er í núgildandi fjallskilasamþykkt, þurfa að sækja um sérstaka undanþágu til sveitarstjórnar.

 

  1. Fjallskilasamþykkt A-Hún

Ný drög að samþykktinni rædd og ákveðið að fela sveitarstjóra að leita álits sérfræðinga á álitamálum sem þarf að uppfæra eins og t.d. um mörk o.fl. Ákveðið að halda umræðum um uppfærsluna áfram á næsta fundi nefndarinnar. Áréttað er að í uppfærði fjallskilasamþykkt er lagt til að Kjalarlandsrétt verði skilgreind sem skilarétt.

 

  1. Önnur mál

Rætt um upprekstur hrossa á afrétti innan Húnabyggðar og mögulegri uppbyggingu stóðrétta þ.e. að slíkir viðburðir geti vaxið og dafnað. Það eru ýmis mál sem þarf að skoða hvað þetta varðar en í dag eru það helst Hrossahólf á Auðkúluheiði, Laxárdalur og Skagaheiði sem notuð eru fyrir upprekstur hrossa. Upprekstur er einnig á Grímstunguheiði en fjallskiladeild Grímstungu- og Haukagilsheiða telur að upprekstur hrossa á þær heiðar séu barn síns tíma, sérstaklega þar sem yfirleitt er um að ræða trippi. Finna þurfi þessum málum í betri farveg á þessu svæði.

 

Ekkert annað rætt og ákveðið að næsti fundur nefndarinnar verði 15. júní klukkan 15:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?