Dagskrá
- Girðingamál
Björn Þórisson starfsmaður Þjóustumiðstöðvar kom inn á fundinn undir þessum lið og fór yfir helstu verkefni síðasta árs og rædd voru helstu verkefni sem fyrirséð er að vinna þarf í sumar.
Þau eru m.a.:
- Vinna þarf í girðingum í eftirfarandi réttum; Stafnsrétt, Auðkúlurétt og Fossárrétt.
- Skoða þarf ástand og aðgerðir á girðingum í Rugludalshólfi.
- Eins og áður er ætlunin að taka niður girðingar á Auðkúluheiði sem ekki eru notaðar.
- Skoða þarf girðingar með fram veginum í Norðurárdal, ræða við landeigendur og Vegagerðina um hvaða aðgerðir er hægt að gera núna og á næstu árum.
- Girðing sem er u.þ.b. 3km milli Víðidalsfjalls og Miðhóps, sem er til helminga við Húnaþing vestra. Nefndin felur sveitarstjóra að kanna málið með Húnaþingi vestra.
- Laga girðingarstubb vestan við Friðmundarvatn.
- Laga girðingu milli Svínadalsfjalls og Gafls (200-300m).
- Skoða sveitarfélagsmörk og skipulag girðingavinnu vegna hreppagirðingar á Skaga.
- Fjallskilasamþykkt A-Hún
Nefndin fór yfir athugasemdir við núgildandi fjallskilasamþykkt og rædd voru atriði sem þarf að uppfæra og laga. Sveitarstjóra falið að færa inn leiðréttingar og senda uppfærða fjallskilasamþykkt á nefndina.
3. Önnur mál
Ekkert annað rætt og ákveðið að næsti fundur nefndarinnar verði 12. mars klukkan 15:15.
