Í byrjun fundar lagði formaður fram tillögu um að tveimur liðum yrði bætt við dagskrá fundarins sem eru annars vegar fjallar um formlega opnun ráðhúss Húnabyggðar og hins vegar um fundargerð fagráðs fólks með fötlun á Norðurlandi vestra. Liðirnir verða númer 11 og 12.
Dagskrá fundarins
- Leiga á íbúðum á Húnavöllum
Fyrir fundinum lá samningur um leigu á tveimur íbúðum á Húnavöllum tímabilið 01.06-01.10.2026. Samningurinn samþykktur samhljóða og sveitarstjóra falið að ganga frá undirritun.
- Tækjabúnaður fyrir refil
Fyrir fundinum láu upplýsingar um nauðsynleg tækjakaup fyrir stafræna upplifun af Vatnsdælureflinum. Byggðarráð samþykkir samhljóða að leggja fram styrk upp á 140.000kr. á móti SSNV til að hægt sé að klára verkefnið.
- Streymi og upptaka sveitarstjórnarfunda
Erindi frá Grími Lárussyni er varðar streymi á sveitarstjórnarfundum Húnabyggðar tekið fyrir og byggðarráð samþykkir og leggur til við sveitarstjórn að sveitarstjórnarfundum verði streymt í beinni útsendingu og að séð verði til þess að íbúar hafi aðgang að beinu streymi í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins og að upptaka verði gerð aðgengileg á heimasíðu Húnabyggðar þremur dögum eftir lok hvers sveitarstjórnarfundar.
Byggðarráð áréttar að tímasetning á fyrsta sveitarstjórnarfundi í beinu streymi ráðist af því hvenær tæknileg lausn er tilbúin, en ekki liggur fyrir hvenær það verður.
Sveitarstjóra falið að kanna tæknilegar kröfur og útfærslur á beinu streymi sveitarstjórnarfunda og leggja fram tillögu að lausn sem fyrst fyrir byggðarráð Húnabyggðar.
- Héraðsdómur Norðurlands vestra – mál nr. E-89/2025
Lagt fram til kynningar.
- Aðgengi að Haukagilsheiðarvegi
Erindi frá fjallskiladeild Grímstungu- og Haukagilsheiða um aðgengi að vegi upp á Haukagilsheiðir í landi Haukagils. Byggðarráð vísar erindinu til umsagnar fjallskilanefndar og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram samkvæmt umræðu fundarins.
- Brunavarnir Austur-Húnvetninga
Borist hefur kæra vegna málsmeðferðar slökkviliðs Húnabyggðar nánar tiltekið vegna öryggisúttekta, skoðunarskýrslna og bréfasamskipta er varða afmörkuð mál tengd tilteknum fasteignum á Blönduósi. Vegna m.a. veikindaleyfis slökkviliðsstjóra Húnabyggðar hefur málið tafist umfram eðlilega málsmeðferð og því felur byggðarráð sveitarstjóra að hlutast til um að málið fái eðlilega málsmeðferð.
- Afskráningar á félögum
Lagt fram til kynningar afskráning á félaginu „Foreldrafélag Húnavallaskóla“ sem byggðarráð staðfestir samhljóða.
- Útboð vegna hreinsun rotþróa
Lagt fram til kynningar.
- Bakhópur Sambandsins - úrgangsmál og hringrásarhagkerfi
Lagt fram til kynningar.
- Samgönguvika 2026
Lagt fram til kynningar.
- Formleg opnun ráðhúss Húnabyggðar
Dagskrá formlegrar opnunar ráðhúss Húnabyggðar rædd og sveitarstjóra falið að skipuleggja dagskrá í samræmi við umræðu fundarins.
- Fundargerð 49. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
