146. fundur 20. maí 2026 kl. 15:30 - 17:09
Nefndarmenn
  • Auðunn Steinn Sigurðsson aðalmaður
  • Ragnhildur Haraldsdóttir aðalmaður
  • Jón Gíslason aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Pétur Arason sveitarstjóri

Formaður byggðarráðs lagði til að tveimur málum yrði bætt við dagskrá fundarins annað er varðar umsagnarbeiðni og hitt er varðar gjaldskrá Sumarfjörs. Byggðarráð samþykkir tillöguna samhljóða og málin verða númer 25 og 26 á dagskrá fundarins.

Dagskrá fundarins

  1. Yfirlit HMS vegna húsnæðis- og skipulagsmála

Lagt fram til kynningar samamtekt HMS á byggingu íbúða á svæðinu og þar kemur fram að nýbyggingar eru á undan fólksfjölgun sem er jákvætt þ.e. að nýjir íbúar geta flutt inn á svæðið án þess að hafa miklar áhyggjur af húsnæðismálum.

  1. Erindi frá Jóni Gíslasyni vegna framkvæmda við Brautarhvamm

Erindi er varðar þær framkvæmdir sem eru í Brautarhvammi og það mikla magn af jarðvegi sem þar er ófrágenginn á veghelgunarsvæði Vegagerðarinnar var lagt fram og spurt hvaða möguleika sveitar­félagið hafi til að hlutast til um að frá þessu verði gengið.

Sveitarfélagið hefur ekki hingað til verið aðili málsins og byggðarráð ítrekar það við Vegagerðina að sótt verði um framkvæmdaleyfi og það skilgreint hvernig málið verður leyst. Sveitarstjóra falið að koma þessari bókun á framfæri við Vegagerðina og að leggja á það áherslu að málið verið leyst sem fyrst.

  1. Samningur um kaup á landi á Reykjum

Rætt var um hugmyndir að sveitarfélagið kaupi hluta úr landi Reykja umhverfis nýjar borholur Rarik og sveitarstjóra falið að ganga frá samningsdrögum.

  1. Leiga á íbúðum á Húnavöllum

Komin er ósk leigutaka á Húnavöllum um að leigja þær íbúðir sem þar eru lausar og byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá samningi þar um.

  1. Samningur um vatnsveitu

Byggðarráð samþykkir drög að samningi og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ganga frá samningnum og að samningnum verði síðan vísað til staðfestingar sveitarstjórnar.

  1. Þjónustukjarni fyrir fólk með fötlun á Blönduósi

Byggðarráð samþykkir að sótt verði aftur um stofnframlag til HMS vegna þjónustkjarna fyrir fólk með fötlun og felur sveitarstjóra verkefnið.

  1. Úrskurður í máli nr. UUA2602030

Lagt fram til kynningar.

  1. Hjartastuðtæki

Byggðarráð samþykkir að fjárfest verði í hjartastuðtækjum í þær byggingar sveitarfélagsins sem talin er þörf á slíkum búnaði.

  1. Höfnun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á umsóknum Húnabyggðar

Lagðar fram til kynningar synjanir Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna þriggja umsókna Húnabyggðar þ.e. vegna Þrístapa, Bakka Blöndu og Kálfshamarsvík. Byggðarráð lýsir yfir miklum vonbrigðum yfir þessari niðurstöðu og leggur á það áherslu að sérstakt sé að engir stykrir hafi komið inn á Norðurland vestra og mjög fá inn á Norðurland í heild sinni. Þetta skýtur skökku við þar sem svæðið hefur færri ferðamenn en önnur svæði og styrkirnir að þessu sinni komi sérstaklega inn á svæði þar sem mikil ferðamennska er. Þar sem mikið er af ferðamönnum er augljóst að ekki er sama þörfin fyrir styrkveitingum og á stöðum sem eru á fáfarnari slóðum.

  1. Afskráningar á félögum

Byggðarráð staðfestir að Hrossaræktardeild Bólstaðarhlíðarhrepps og félagasamtökin Vísir lestrarfélag verði afskráð.

  1. Útboð í hreinsun rotþróa

Lagt fram til kynningar og samningnum vísað til staðfestingar sveitarstjórnar.

  1. Samstarfssamningar um FNV

Samningarnir lagðir fram til kynningar og byggðarráð felur sveitarstjórn að álykta um málið.

  1. Áhersluverkefnið Bæjarhátíðir

Lagt fram til kynningar og byggðarráð fagnar því að Húnavaka fékk 1.000.000kr. úthlutun.

  1. Frá Farskólanum

Lagt fram til kynningar.

  1. Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2026

Byggðarráð fagnar því að styrkir hlutust vegna endurmenntunarverkefna kennara grunnskólans sem fræðslustjóri Húnabyggðar sótti um.

  1. Fundur um ferðamannamál á Norðurlandi

Lagt fram til kynningar.

  1. Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2026

Lagt fram til kynningar.

  1. Endurskoðun á byggðakvótakerfinu

Lagt fram til kynningar.

  1. Bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til allra framkvæmdastjóra sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

  1. Jöfnun kostnaðar við dreifingu á raforku - umsögn SSKS

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 48. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 139. fundar stjórnar SSNV

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 482. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambandsins

Lagt fram til kynningar.

  1. Gjaldskrá sumarfjörs

Lögð fram drög að gjaldskrá Sumarfjörs sem byggðarráð samþykkir samhljóða og felur sveitarstjóra að láta auglýsa á heimasíðu sveitarfélagsins.

  1. Umsagnabeiðni - Gistileyfi flokkur II

Lögð fram umsókn frá Blöndu ehf. vegna leyfis til reksturs gististaðir í flokki II – B stærra gistiheimili. Byggðarráð veitir jákvæða umsögn fyrir sitt leiti.

Getum við bætt efni þessarar síðu?