Forðmaður byggðarráðs lagði fram tillögu um að einu máli yrði bætt á dagskrá vegna tækifærisleyfis og að málið verði númer 10 á dagskrá. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Dagskrá fundarins
- Eignayfirlýsingar vegna slita á byggðasamlögum
Lagt fram til kynningar.
2.Erindi frá fræðslunefnd vegna dreifnáms
Á fundi fræðslunefndar 20. apríl síðastliðinn var eftirfarandi bókað:
Fræðslustjóri kynnti könnun á hug nemenda varðandi framhaldsskóla. Fyriséð er að enginn sæki um dreifnám á Blönduósi á næsta skólaári.
Formaður greindi frá samtali sínu við skólameistara FNV og eru þeir samþykkir því að gera hlé á starfsemi dreifnáms á Blönduósi.
Fræðslunefnd beinir því til byggðarráðs og síðar til staðfestingar í sveitastjórn að ekki verði boðið upp á dreifnám á Blönduósi næsta skólaár en leiti allra leiða til þess að bjóða upp á akstursþjónustu í FNV frá og með næsta hausti ef vilji foreldra og nemenda er fyrir því.
Byggðarráð staðfestir samhljóða ályktun fræðslunefndar og vísar málinu til staðfestingar sveitarstjórnar.
- Erindi frá foreldrafélagi Húnaskóla
Erindið er móttekið og lausn á málinu verður unnin í sumar.
- Uppsetning vegriðs við Stóru Giljá
Byggðarráð fagnar verkefninu sem eykur öryggi vegfarenda en áréttar að Vegagerðinni ber að sækja um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins varðandi verkefni við vegakerfi Vegagerðarinnar innan marka sveitarfélagsins.
- Ósk um leyfisveitingu til að halda torfærukeppni
Byggðarráð veitir leyfi fyrir sitt leiti eins og áður hefur verið gert og felur sveitarstjóra að upplýsa hestamaafélagið Neista og skotfélagið Markviss um viðburðinn.
- Afsal Hnjúkabyggð 33
Lagt fram til kynningar.
- Norðurá – grænt bókhald 2025
Lagt fram til kynningar.
- Norðurá – aðalfundur 2026
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
- Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi til áfengisveitinga
ASS vék af fundi undir þessum lið.
Tekið fyrir erindi frá Guðjóni Ebba Guðjónssyni vegna tækifærisleyfis og byggðarráð veitir jákvæða umsögn fyrir sitt leiti.
