Dagskrá fundarins
- Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Guðmundi Hauki Jakobssyni að fara með atkvæði sveitarfélagsins á aukaaðalfundi samtakanna miðvikudaginn 29. apríl 2026.
- Starfsemi Íþróttamiðstöðvarinnar
Katrín Benediktsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið og fór yfir starfsemi Íþróttamiðstöðvarinnar. Frábær árangur hefur náðst í rekstrinum á undanförnum árum þar sem tekjur hafa vaxið, gjöld lækkað, starfsmönnum hefur fjölgað, opnunartími hefur verið lengdur og aðsókn stóraukist. Byggðarráð fagnar góðum árangri og undirstrikar að íþróttamiðstöðin er mjög mikilvægur liður í þjónustu við íbúa og gesti sveitarfélagsins.
- Erindi frá fræðslunefnd
Tekið fyrir erindi frá fræðslunefnd vegna málefna skóladagheimilisins. Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram ásamt þeim stjórnendum sem tengjast lausn málsins og skilgreina lausn sem fyrst.
- Fundargerð Heimastjórnar
Tekin fyrir fundargerð heimastjórnar þar sem vakin er athygli á því að ekki sé rétt að semja við sveitarfélögin Skagaströnd og Skagafjörð um nýja skilgreiningu á sveitarfélagsmörkum á Skagaheiði miðað við þær forsendur sem fyrir liggja. Málið hefur verið í vinnslu um nokkurn tíma og Húnabyggð hefur vakið athygli málsaðila á því að skoða þurfi málið betur áður en Húnabyggð samþykkir endanlega niðurstöðu. Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma bókun fundarins formlega á framfæri við málsaðila og byggðarráð undirstrikar þá skoðun Húnabyggðar að skoða þurfi málið betur áður en endanleg niðurstaða fæst og að núverandi sáttarlína sé ekki viðunandi lausn.
- Umsókn í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Umsókn Húnabyggðar um styrk vegna framkvæmda í aðgengismálum að Húnabraut 5 var samþykkt og fékk sveitarfélagið styrk að upphæð 5.000.000kr. vegna verkefnisins sem kostaði alls rúmlega 16 milljónir.
- Umhverfis- og tiltektardagar Húnabyggðar
Byggðarráð samþykkir að skipuleggja umhverfis- og tiltektardaga í Húnabyggð dagana 28-30. maí. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirbúa og auglýsa málið.
- Til umsagnar 595. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lagt fram til kynningar.
- Ársreikningur Brákar hses
Lagt fram til kynningar.
- 47. Fundur fagráðs um málefni fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
- Formleg opnun ráðhúss Húnabyggðar
Byggðarráð felur sveitarstjóra að auglýsa formlega opnun á ráðuhúsi Húnabyggðar að Húnabraut 5, laugardaginn 30. maí.
