Formaður byggðarráðs lagði fram tillögu í upphafi fundar um að við dagskrá fundarins yrði bætt einu máli er varðar lóðaumsókn. Byggðarráð samþykkir tillöguna samhljóða og erindið verður tekið fyrir undir lið 2.
Dagskrá fundarins
- Framkvæmdaáætlun 2026
Farið var yfir verkefnaáætlun ársins og þá sérstaklega framkvæmdir við fasteignir sveitarélagsins. Vinna við áætlunina mun halda áfram og sveitarstjóra falið að kynna uppfærða útgáfu sem fyrst fyrir byggðarráði.
- Lóðaumsókn
Fyrir fundinum lá umsókn Borealis um lóðir við Fálkagerði 6, 9 og 11. Byggðarráð samþykkir lóðaumsóknirnar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ganga frá málinu.
- Niðurstaða útboðs á hreinsun rotþróa
Lögð fram niðurstaða útboðs á hreinsun rotþróa sem unnið var af Consensa fyrir Húnaþing vestra, Húnabyggð og Skagafjörð. Byggðarráð samþykkir mat umsjónarmanns útboðs og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.
- Umsögn til Umhverfis- og samgöngunefndar frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra
Lagt fram til kynningar.
- Bréf frá umboðsmanni barna: sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
Lagt fram til kynningar.
- Samtök orkusveitarfélaga: Umsögn um verndar- og orkunýtingaráætlun
Lagt fram til kynningar.
