Dagskrá fundarins
- Málefni Heimilisiðnaðarsafnsins
Fyrir fundinum lá fundargerð stjórnar Heimilisiðaðarsafnsins frá 31.03.2026, ársreikingur fyrir árið 2025 og umsókn Heimilisiðaðarsafnsins um rekstrarstyrk.
Styrkurinn sem óskað er eftir er að upphæð 10.400.000kr. fyrir árið 2026, þar af eru áætlaðar 1.500.000-2.000.000kr. vegna sérstakra og nauðsynlegra endurbóta á safnhúsinu.
Byggarráð samþykkir samhljóða að veita Heimilisiðnaðarsafninu umbeðinn styrk og felur sveitarstjóra að láta útbúa viðauka vegna framkvæmdastyrksins.
- Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga 2026
Kjörstaður Húnabyggðar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi – Norðursal, gengið inn frá Melabraut.
Utankjörfundaatkvæðagreiðsla hefst 17. apríl hjá Sýslumönnum.
- Minnisblað vegna vsk á skemmtiferðaskip
Lagt fram til kynningar.
- Umsagnir frá stjórn SSKS
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 138. fundar stjórnar SSNV
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Lagt fram til kynningar.
- Framkvæmdaáætlun 2026
Bergþór Gunnarsson kom inn á fundinn undir þessum lið.
Jón Gíslason kom inn á fundinn klukkan 15:24.
Farið var yfir helstu verkefni sem verið er að vinna en nú er að ljúka endurgerð tveggja íbúða í Hnitbjörgum. Farið var sérstaklega yfir verkefni sem liggja fyrir og tengjast fjárfestingaáætlun 2026. Vegna sumra verkefna er verið að tala við verktaka og fá verðhugmyndir o.s.frv. Vinna þarf áætlunina áfram og skipuleggja tímaröð verkefna ársins eins og þau koma fyrir. Sveitarstjóra falið að vinna áætlunin áfram og kynna uppfærða útgáfu sem fyrst fyrir byggðarráði.
